Tilhögun þingstarfa
Miðvikudaginn 06. mars 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Forseti mun ekki veigra sér við að taka það mál á dagskrá þegar tími gefst til og eins fljótt og unnt er. Hins vegar lét forseti þess getið í gærkvöldi vegna þeirrar umræðu sem þá fór fram um ábyrgðadeild fiskeldislána að hann hefði aldrei tekið það mál á dagskrá ef honum hefði verið kunnugt um það að hæstv. fjmrh. mundi halda allt að því hálfs annars klukkutíma ræðu um málið.