Friðrik Sophusson :
Virðulegi forseti. Yfirlýsing virðulegs forseta um það að hann hefði aldrei tekið mál á dagskrá ef hann hefði vitað að hæstv. fjmrh. mundi flytja eins og hálfs tíma ræðu er ákaflega merkileg í sjálfu sér og það má þess vegna kannski spyrja í framhaldi af því hvort hæstv. forseti ætli að tryggja það að sá ágæti maður, hæstv. fjmrh., tali ekki í öðrum málum nema innan við einn og hálfan tíma. En það er nú kannski ekki það sem menn eru að tala um hér í þessari umræðu um þingsköp heldur hitt hvort hægt sé að ljúka máli sem var byrjað að ræða hér í gærkvöldi og hvort hæstv. forseti ætli að láta það líðast að einn af ráðherrum hæstv. ríkisstjórnar eigi að komast upp með það að stjórna þannig þingfundum að hæstv. forseti ætli sér ekki að taka mál á dagskrá ef hæstv. ráðherra sýnist svo að hóta því fyrir fram að tala lengi í ákveðnum málum. Sé svo komið er hæstv. forseti þessarar hv. deildar orðinn nokkurs konar fangi hæstv. ráðherra sem getur með hótunum stjórnað þinghaldinu það sem eftir lifir þingsins.
Ég eins og aðrir almennir þingmenn geri kröfu til þess að hæstv. þingforseti stjórni samkvæmt þingsköpum eins og honum þykir best og réttast. Ég treysti hæstv. þingforseta til þess, hæstv. forseta deildarinnar, og skora á hann að láta ekki hótanir einstakra hæstv. ráðherra hafa þessi áhrif á sig og mælist til þess að hæstv. forseti láti þá umræðu sem hófst hér í gærkvöldi um þetta þingmannafrv., sem nauðsyn er að fái afgreiðslu á yfirstandandi þingi, halda áfram á þingfundi hér í dag.