Tilhögun þingstarfa
Miðvikudaginn 06. mars 1991


     Forseti (Árni Gunnarsson) :
    Að lokum þessarar þingskapaumræðu vill forseti geta þess að hann mun reyna eftir mætti að sýna hv. þm. tillitssemi eins og hann hyggur að hann hafi reynt að gera allt kjörtímabil sitt í þessum virðulega stóli. Forseti vill þá láta þess getið að hann hefur mikinn hug á því ef unnt væri að ná samkomulagi um að halda áfram fundarhöldum á milli klukkan sex og sjö í dag. Vandinn sem forseti stendur frami fyrir nú er fyrst og fremst tímaskortur. Það er þess vegna mjög freistandi að boða til kvöldfundar í kvöld, annað kvöldið í röð. Ég er hins vegar ekki alveg viss um að allir hv. þingdeildarmenn séu sáttir við það. Í þessu máli eins og mörgum öðrum verður að reyna að fara bil beggja og sætta ólíkar skoðanir manna og það mun forseti reyna að gera með því valdi sem hann hefur til þess.