Mannanöfn
Miðvikudaginn 06. mars 1991


     Frsm. menntmn. (Ragnar Arnalds) :
    Virðulegi forseti. Hv. menntmn. hefur fjallað um frv. til laga um mannanöfn og fékk til viðræðna um það fjölmarga aðila eins og greint er frá í nál. á þskj. 794.
    Nefndin sendi málið til umsagnar dómsmrn. og fékk frá því allmargar brtt. Síðan voru þessar brtt. bornar undir Hagstofuna sem gerði sínar athugasemdir við þær tillögur. Það var fundað með fulltrúum beggja aðila og einnig með fulltrúum Íslenskrar málnefndar og niðurstaðan kemur fram í brtt. hv. menntmn. á þskj. 795. Um þessar brtt. varð full samstaða í nefndinni og vísa ég til þeirra og þeirra skýringa sem fram koma í nál. 794.
    Ég vil taka það fram að einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. er fram kunna að koma og eru nokkrar brtt. þegar komnar fram. Að öðru leyti er nefndin á einu máli um þær brtt. sem hún leggur hér sameiginlega fram. Og eins og ég hef þegar getið var haft mjög náið samráð við aðila málsins, Íslenska málnefnd, dómsmrn. og Hagstofuna, um gerð þessara brtt.
    Ég legg til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem að ofan greinir.