Forseti (Árni Gunnarsson) :
Vegna þessara orða vill forseti geta þess að því fyrr sem atkvæðagreiðslunni lýkur því meiri líkur eru á því að önnur mál komist á dagskrá. (Gripið fram í.) Nei, það er alveg ljóst. Hins vegar er það á valdi forseta hvernig hann raðar upp dagskrármálum og hver hann tekur fyrir. Hann mun, eins og hann sagði fyrr í dag, reyna að gæta fyllstu tillitssemi gagnvart öllum. Hér verður fundur milli kl. 6 og 7 og ekki áætlaður kvöldfundur. Forseti mun eftir mætti að loknum atkvæðagreiðslum taka fyrir þau mál sem hér er á dagskrá. Önnur svör er ekki unnt að gefa á þessari stundu.
Umræðu um þingsköp er lokið og hefst nú atkvæðagreiðsla. ( ÓÞÞ: Ég óska eftir nafnakalli.) Það er óskað eftir nafnakalli, en nú vill forseti spyrja hv. þingdeildarmann, sem óskar eftir nafnakalli, hvort hann muni óska eftir nafnakalli við allar greinar. ( ÓÞÞ: Já, hverja einustu grein.) Hverja einustu grein. Þá á forseti engan annan kost en að fresta þessari atkvæðagreiðslu og slíta þessum fundi og það mun hann gera. Ef hv. stjórnarliðar hegða sér þannig hér að ekki er hægt að koma fram atkvæðagreiðslum, þá þýðir auðvitað ekkert að halda fund. Það hlýtur öllum hv. þingdeildarmönnum að vera ljóst og þolinmæði þingforseta vegna þeirra atburða sem hér hafa gerst að undanförnu er alveg á þrotum.