Kristín Einarsdóttir :
Virðulegur forseti. Ég sá hér að hv. formaður heilbr. - og trn. var í húsinu. Ég hefði gjarnan viljað að hann hefði haft tækifæri til að vera hér.
Við ræðum hér frv. til laga um breytingu á lögum um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Megininntak þessa frv. er að banna algerlega fóstureyðingar. Í 7. gr., g - lið, segir:
,,Líf sem kviknað hefur í móðurlífi er friðheilagt. Að öðru leyti en lög þessi heimila má ekki binda enda á kviknað líf.`` Og síðan segir í h - lið sem verður þá 8. gr.: ,,Fóstureyðing er leyfileg ef ætla má að lífi eða heilsu konu sé hætta búin af áframhaldandi meðgöngu og fæðingu.``
Í núgildandi lögum um fóstureyðingar, 8. gr., segir: ,,Fóstureyðing samkvæmt lögum þessum er læknisaðgerð, sem kona gengst undir í því skyni að benda enda á þungun, áður en fóstrið hefur náð lífvænlegum þroska.`` Síðan eru nefndar ástæður, bæði félagslegar og læknisfræðilegar, fyrir því að fóstureyðingar eru heimilaðar skv. núgildandi lögum. Í þessu frv. hér eru engin slík ákvæði. T.d. eru felld út eftirfarandi ákvæði um læknisfræðilegar ástæður: ,,Þegar ætla má að barn, sem kona gengur með, eigi á hættu að fæðast vanskapað eða haldið alvarlegum sjúkdómi vegna erfða eða sköddunar í fósturlífi. Þegar sjúkdómur, líkamlegur eða geðrænn, dregur alvarlega úr getu konu eða manns til að annast og ala upp barn. Ef konu hefur verið nauðgað eða hún orðið þunguð sem afleiðing af öðru refsiverðu atferli.``
Í athugasemdum við frv. við h - lið er talað um, þó ekki sé það mjög skýrt og hefði ég viljað fá nánari skýringar á því hvað við er átt, þó má skilja að ef um nauðgun sé að ræða, þá geti kona hugsanlega óskað eftir fóstureyðingu. Í athugasemdum á bls. 12 segir um þessa grein, með leyfi forseta:
,,Að sjálfsögðu er sú skylda frumskilyrði að viðkomandi kona hafi tilkynnt verknaðinn nauðgun samstundis eða eins fljótt og auðið var og nútímalæknisfræðilegar aðgerðir verið framkvæmdar til þess að fyrirbyggja að raunveruleg frjóvgun geti átt sér stað, auk þess að sannað sé að nauðgun hafi átt sér stað og hinn seki fundinn.``
Ég vil benda á: hinn seki fundinn. Þangað til það gerist getur liðið langur tími. Minnist ég þess að nýlega var dæmt í nauðgunarmáli en ekki fyrr en mörgum, mörgum mánuðum seinna. Mig minnir að það hafi verið ári síðar en verknaðurinn átti sér stað og var hann sekur fundinn þá. Það getur verið dálítið seint að framkvæma fóstureyðingu þegar barn er e.t.v. fætt ef um það væri að ræða. Sem betur fer er kannski ekki oft um þunganir að ræða við þessa hrottalegu verknaði, en samt sem áður er nauðsynlegt að gera ráð fyrir því og gera ráð fyrir að kona geti fengið fóstureyðingu ef um það er að ræða.
Einnig er talað um aldur stúlkunnar sem verður barnshafandi fyrr en hún óskar í þessari sömu grein. Það verður bara að hafa það í huga að sjálft lagafrv.
gerir ekki ráð fyrir neinum undantekningum og ákaflega óljósar skýringar með lagafrv. eru ekki nægjanlegar þegar þarna er svona með farið.
Ég vildi líka benda á að það eru ýmsar einkennilegar fullyrðingar í greinargerð með frv. T.d. á bls. 4 í IV. kafla, þar sem talað er um reynsluna af lögunum, stendur, með leyfi forseta: ,,Frá gildistöku laga nr. 25/1975 hefur fóstureyðingum fjölgað mikið frá því sem var í tíð eldri laga, einkum og sér í lagi hin síðustu ár.`` Ef maður síðan horfir á síðu 5, þar sem er tafla um fóstureyðingar, og lítur á hin síðari ár, þ.e. 1981 -- 1988, það eru ekki gefnar upp tölur síðar,
þá er nánast engin fjölgun. Meira að segja er árið 1988 aðeins minnkun en þó varla marktæk. Það eru ákaflega sambærilegar tölur öll þessi ár. Ekki er gerð nein tilraun til þess að meta það, þegar fullyrt er um fjölgun fóstureyðinga, hversu margar ólöglegar fóstureyðingar voru gerðar hér á landi, sem er verulegur fjöldi, auk þess sem fjöldi fóstureyðinga fór fram erlendis. Konur fóru jafnvel í hópum utan til þess að fá fóstureyðingar og meira að segja eru til tölur um þær sem fóru til Bretlands. Þessar fullyrðingar geta því varla staðist.
Á bls. 7 segir að ,,75% þeirra kvenna sem fóru í fóstureyðingu á tímabilinu . . . notuðu alls engar getnaðarvarnir sem bendir ótvírætt til þess að fóstureyðingin var notuð sem getnaðarvörn.`` Mér finnst þetta alveg ótrúleg fullyrðing og allt of mikið sagt því að það geta verið ýmsar ástæður til þess að ekki voru notaðar getnaðarvarnir. T.d. getur verið að kona hafi þurft að hvíla sig á pillunni eða einhverjar aðrar ástæður sem hafa orðið til þess að ekki hafa verið notaðar getnaðarvarnir, en að fóstureyðing sé notuð sem getnaðarvörn er alls ekki það sama. Mér finnst þar allt of mikið sagt. Síðar á þessari síðu segir: ,,Reynslan hefur leitt það í ljós að fóstureyðingum hefur fjölgað verulega,`` þar kemur aftur þessi sama fullyrðing.
Ég vil ekki gera mikið að umtalsefni það sem kemur fram í þessari greinargerð. En mig langar til að snúa mér aftur að frv. og þá fyrst og fremst g - lið (7. gr.) þar sem talað er um að líf, sem kviknað hefur í móðurlífi, sé friðheilagt. Eins og þingmenn vita, þá frjóvgast eggið í eggjaleiðaranum á leið sinni frá eggjastokkunum og inn í legið. Frá frjóvgun geta liðið um það bil sjö dagar þar til eggið festist í leginu. Ef þetta líf, sem kviknað hefur í móðurlífi, er friðheilagt hljótum við að segja að allar konur sem eru með lykkjuna brjóti hugsanlega þessa grein mánaðarlega, þ.e. ef sú skilgreining hv. 11. þm. Reykv. er viðurkennd þar sem hún talaði um að líf kviknaði við samruna eggs og sæðis, ef ég man rétt. Ég þori ekki að fullyrða að ég muni nákvæmlega orðrétt það sem hún sagði, en að líf sem kviknar í móðurlífi er friðheilagt. Maður getur lengi deilt um hvenær líf kvikni í móðurlífi.
Síðan langar mig til þess að vita í sambandi við þessa grein: Hvað með glasafrjóvganir, er meiningin að banna þær? Er flm. þessa frv. á því að þær eigi að leyfa eða eiga þær að vera bannaðar? Og þá fer lagatúlkunin á því hvenær líf kviknar að verða dálítið flókin og eins því hvenær það verður friðheilagt. Ég sé ekki betur en ég og aðrar konur geti verið margfaldir ja, morðingjar vil ég nánast segja, miðað við það sem fram kom í ræðu hv. þm. við 1. umr. þar sem fóstureyðingu, eða eins og kallað var að deyða líf í móðurkviði, var líkt við morð og talað um almennu hegningarlögin og talað um að þarna væri verið að framkvæma nákvæmlega þann sama verknað og morðingjar fremja og talað um að refsa bæri á sama hátt. Þetta þykir mér harður dómur yfir öllum þeim konum sem neyðst hafa til að láta framkvæma fóstureyðingu.
Ég held að miklu nær væri, og kvennalistakonur hafa talið það hingað til og það hefur reyndar margoft komið fram hér á þinginu, að beita öðrum aðferðum til þess að draga úr fóstureyðingum og gera þær óþarfar. Fóstureyðing hlýtur að vera hverri konu neyðarúrræði og hljóta allir að vera sammála um nauðsyn þess að draga úr fjölda ótímabærra þungana og þar með tilefni til fóstureyðinga. Núgildandi lög leggja einmitt megináherslu á þetta atriði og fjallar allur I. kafli laganna um ráðgjöf og fræðslu. Vandinn er bara sá að langt er frá því að staðið hafi verið við framkvæmd laganna hvað varðar ráðgjöf og fræðslu og hefur vantað fjármagn til að skipuleggja hana og sinna henni allt frá samþykkt laganna. Kvennalistakonur hafa löngum bent á þetta atriði og allt frá því að þær komu hingað inn á þing hafa þær ítrekað með fsp. og þáltill. bent á þetta atriði. Á fyrsta kjörtímabilinu, held ég að það hafi verið, var eitt af fyrstu málum Kvennalistans sem samþykkt var þáltill. sem hljóðaði svo, með leyfi forseta:
,,Alþingi ályktar að fela heilbrrh. að efla verulega fræðslu um kynferðismál meðal almennings með það að markmiði að koma í veg fyrir ótímabærar þunganir og hindra útbreiðslu sjúkdóma. Sérstök áhersla skal lögð á að upplýsa fólk á aldrinum 15 -- 19 ára um kynlíf og getnaðarvarnir.``
Ég vil, með leyfi forseta, vitna í grein í Læknablaðinu, 6. tbl. frá 1987, þar sem Þórður Óskarsson og Reynir Tómas Geirsson læknar segja:
,,Ef stemma á stigu við vaxandi fjölda fóstureyðinga þarf að auka fræðslu um getnaðarvarnir og gera þær aðgengilegri, hvetja til ábyrgari notkunar getnaðarvarna, stuðla að notkun öruggra getnaðarvarna eftir fóstureyðingu og kveða niður goðsögn um nauðsyn pilluhvílda,`` eins og þar segir. Síðar segir: ,,Notkun getnaðarvarna er verulega ábótavant meðal kvenna sem leita á Landspítalann í fóstureyðingu enda þótt smám saman hafi miðað í rétta átt.`` Og enn síðar: ,,Til þess að halda fjölda fóstureyðinga sem lægstum þarf að gera átak í þá átt að gera getnaðarvarnir aðgengilegri fyrir alla aldurshópa, m.a. með stofnun kynfræðsludeilda við heilsugæslustöðvar, ódýrari getnaðarvörnum og aukinni fræðslu táninga.``
Það hefur sem sagt ekki verið farið eftir ákvæðum laga um getnaðarvarnir og kynlíf. Annað meginatriðið til að draga úr tíðni fóstureyðinga er að bæta félagslegar aðstæður kvenna. Ég tel það vera mjög mikilvægt atriði og reyndar grundvallaratriði. Meðal þeirra kvenna sem helst leita fóstureyðingar eru einmitt ýmsar þeirra sem búa við hvað lökust kjör hér á landi. Þetta eru þær aðgerðir sem ég vil sjá hrundið í framkvæmd til að draga úr tíðni ótímabærra þungana, ekki það frv. sem hér er til umræðu. Það væri nær að beita sér fyrir öðrum leiðum.
Ég varð því mjög undrandi þegar ég sá niðurstöðu hv. heilbr. - og trn. þar sem segir: ,, Með hliðsjón af því hversu skammur tími er til þinglausna og í trausti þess að heilbr.- og trmrh. láti fara fram endurskoðun laga nr. 25/1975 leggur meiri hl. nefndarinnar til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.`` Þ.e. þingnefndin er að segja að það eigi að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar og láta endurskoða lögin, væntanlega þá með hliðsjón af því sem kemur fram í þessu frv., eða hvað? Ég vil spyrja formann heilbr. - og trn., hv. 5. þm. Norðurl. v. Jón Sæmund Sigurjónsson: Hvað er það sem þingnefndin telur að þurfi að endurskoða í lögum nr. 25/1975? Ég vil benda á það að ef þetta frv. eða eitthvað í þessum stíl verður að lögum mundum við hverfa aftur fyrir lagasetninguna 1938, þ.e. að um þetta atriði mundu gilda nánast sömu lög og hegningarlögin frá 1869 sem lögðu bann við fóstureyðingum. Ástæðan fyrir því að almennu hegningarlögin frá 1869 voru endurskoðuð var að þegar Vilmundur landlæknir tók til starfa um 1930, þá vekur hann athygli á þeirri staðreynd að það voru mjög margar konur sem fengu fóstureyðingu hér á landi. Mjög margar fengu fóstureyðingar á kaþólsku spítölunum hér á landi og hann taldi þetta óviðunandi ástand, að það væri bannað að framkvæma fóstureyðingar en þær væru framkvæmdar engu að síður. Upp úr þessu beitti hann sér fyrir samningu laganna frá 1938 um að fóstureyðingar skyldu þó heimilaðar í ákveðnum tilvikum.
Fóstureyðingar hafa verið þekktar frá örófi alda og konur hafa beitt ýmsum aðferðum, hvort sem þær hafa verið heimilaðar í löggjöf eða ekki. Mjög margar konur þekktu aðferðir til þess að koma í veg fyrir eða stöðva þungun, framkvæma fóstureyðingar, þó svo ekki væri beitt nútímalæknisfræðilegum aðferðum. Ég man eftir í einu tilviki, það var held ég frá Rúmeníu, að síðasta aftakan sem fór fram þar var að tekin var af lífi kona sem framkvæmdi fóstureyðingar. Hún gerði það að vísu á mjög hrottalegan hátt, sem olli oft mikilli sýkingu, með því að hella sápulegi upp í leg kvennanna. Þær vildu samt leggja það á sig fremur en að þurfa að ganga með þá þungun sem þær höfðu orðið fyrir vegna þess að þær gátu með engu móti hugsað sér það. Svo mikilvægt var það fyrir þeim að stöðva þessa þungun. Það getur varla verið konunni til heilla að þurfa að ganga í gegnum slíkt ef hún er algerlega á móti því.
En það fór ekki svo að öll heilbr. - og trn. samþykkti þá málsmeðferð að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar með þessum líka dæmalausa rökstuðningi að það þurfi að endurskoða þessi lög og þá reikna ég með að það sé í þá veru sem þetta frv. gerir ráð fyrir. Í áliti minni hl. sem hv. þm. Anna Ólafsdóttir Björnsson og Geir Gunnarsson skrifa undir er gert ráð
fyrir að frv. verði fellt. Þar segir, og það þótti mér merkilegt að lesa, að á fundum nefndarinnar hafi verið fjallað mjög lauslega um frv. og fer mig þá að gruna að e.t.v. hafi hv. nefnd ekki áttað sig á hvað þarna væri á ferðinni. Síðan segir:
,,Um efni frv. eru mjög skiptar skoðanir og ekki þarf nema lauslega athugun á umsögnum þeim sem bárust til að sjá að þessar andstæðu skoðanir koma þar skýrt fram. Því telur minni hl. að ekki sé hægt að afgreiða þetta mál á annan hátt en taka til þess afstöðu: annaðhvort að samþykkja frv. óbreytt eða að halda núgildandi lögum í því horfi sem þau nú eru í og fella þar með frv. Minni hl. telur að konum sé fyllilega treystandi til að axla þá miklu ábyrgð sem þeim er falin samkvæmt núgildandi lögum en bendir jafnframt á brýna nauðsyn þess að ákvæðum núgildandi laga verði framfylgt hvað varðar ráðgjöf og fræðslu.``
Þessu er ég algerlega sammála. Ég tel að það sé brýnast að efla ráðgjöf og fræðslu en þetta frv. get ég alls ekki samþykkt.
Til að átta okkur aðeins á bakgrunni þessa máls, þá er nauðsynlegt að skoða forsögu setningar laganna frá 1974. Í blaði sem gefið var út á þeim tíma, hét ,,Forvitin rauð`` og var blað Rauðsokkahreyfingarinnar sem þá var starfandi, er birt bréf til allra alþingismanna sem skýrir örlítið hvað þetta var talið mikilvægt á þeim tíma. Langar mig til að lesa það bréf hér, með leyfi forseta. Það birtist í janúarhefti blaðsins frá 1974, á bls. 3:
,,Bréf sent til allra alþingismanna vegna frv. um nýja fóstureyðingarlöggjöf sem lagt var fram á Alþingi í nóvember 1973.
Frv. um nýja fóstureyðingalöggjöf sem nú liggur fyrir Alþingi og felur í sér breytingar er stefna að auknu frjálsræði kvenna til fóstureyðinga hefur vakið upp nokkurn úlfaþyt, sem vænta mátti um svo róttækar breytingar þótt sjálfsagðar séu. Í því sambandi má benda á að í nágrannalöndum okkar hefur frjálsræði verið stóraukið og í Danmörku, Svíþjóð og Englandi hafa nú verið lögleiddar frjálsar fóstureyðingar.``
Ég vil hér, virðulegi forseti, aðeins taka fram að frv. frá 1975 gerir ekki ráð fyrir frjálsum fóstureyðingum heldur eru þær með miklum takmörkunum en þær voru þó mikil bót frá því sem áður var og eru ágætislög að mínum dómi. En ég les áfram:
,,Þessi þróun mun óhjákvæmilega hafa það í för með sér, ef frv. um nýja fóstureyðingalöggjöf verður ekki samþykkt, að stúlkur er þurfa á fóstureyðingu að halda leysi vanda sinn með því að taka sér ferð á hendur til þessara landa og eru slíkar ferðir algengar nú þegar. En hvaða konur hafa bolmagn til að standa straum af dýrri utanlandsferð? Margar alls ekki og það eru þá e.t.v. þær sem helst þurfa á henni að halda, þ.e. þær konur sem lifa við ömurlegustu aðstæður og eru lítilmagnar þjóðfélagsins í sérhverju tilliti, andlega sem fjárhagslega.
Samþykkt fyrirliggjandi frv. í óbreyttri mynd ætti einnig að hafa í för með sér að ólöglegar fóstureyðingar legðust af og þar með væri úr sögunni auðmýking sem fjöldi kvenna hefur látið sig hafa og ekki verður með orðum lýst, en af eðlilegum ástæðum hafa lífsreynslusögur kvenna, er hafa látið eyða fóstri á ólöglegan hátt, ekki verið dregnar mjög fram í dagsljósið í umræðum þeim er um þessar mundir fara fram um þetta mál. Margvíslegar skoðanir hafa komið fram á opinberum vettvangi, einkanlega á móti því er tekur til sjálfsákvörðunarréttar konunnar í frv. og bregður þar oft við næsta undarlegri röksemdafærslu. Því hefur verið haldið fram að fóstureyðing væri sambærileg við morð.
Það munu vera til einar þrjár skilgreiningar á því hvenær einstaklingur verður til og hefur hver sína, páfinn, læknirinn og lögfræðingurinn. Er ekki hæpið að tala um að eyða mannslífi þegar fárra vikna hnúður er fjarlægður úr móðurkviði? Það sem skiptir hér meginmáli er að fóstureyðing kemur í veg fyrir að fóstur verði að manneskju. Mikið hefur verið rætt um þá hættu sem líf og heilsu konunnar er stefnt í við fóstureyðingu og hafa einkum læknar látið sér tíðrætt um þetta atriði. Þeir eru þó ekki allir á einu máli. Sumir læknar halda því fram að fóstureyðingar séu hættulegar aðgerðir. Aðrir skipa þeim á bekk með algengustu skurðaðgerðum en flestir munu þó sammála um að fæðing feli í sér meiri hættu en fóstureyðing. Í þessu sambandi ber einnig að taka tillit til félagslegrar heilsu konunnar sem getur verið stofnað í hættu með því að kona sé látin ala barn gegn vilja sínum og andleg vanheilsa getur haft í för með sér líkamlegt heilsuleysi.
Sumir vilja telja að sjálfsákvörðunarréttur konunnar til fóstureyðingar hafi í för með sér of mikla ábyrgð að leggja á herðar henni einni, en hún á að geta tekið ábyrgðina á nýju lífi sem hún fæðir af sér við vonlausar aðstæður. Einnig hefur verið talað um að konan geti oft ekki séð hvað sé henni fyrir bestu vegna hræðslu og þunglyndis á fyrstu vikum meðgöngutímans. En hver getur það þá? Getur læknirinn séð hvað ókunnugri manneskju er fyrir bestu? Enginn utanaðkomandi maður, kunnugur eða ókunnugur, getur sett sig inn í allar hliðar vandamáls einstaklings. Því er konan sjálf best til þess fallin að taka þessa ákvörðun, enda verður hún sjálf að bera ábyrgð á henni. Hins vegar ber að sjálfsögðu, eins og frv. gerir ráð fyrir, að fræða hana, áður en hún tekur ákvörðun sína, um þá hjálp sem þjóðfélagið býður kjósi hún að eignast barnið.
Heyrst hafa raddir um það að með frjálsum fóstureyðingum sé í raun og veru verið að svipta konuna frelsi, því að þá geti aðrir þröngvað henni til að láta eyða fóstri sínu. En hvað með hið gagnstæða? Það hlýtur að vera jafnalvarlegt fyrir hana að láta þröngva sér til að eignast barn sem hún óskar ekki eftir að eignast. Það er þröngvun sem svo lengi hefur viðgengist að margir taka ekki eftir henni. Það er ekki siðmenntuðu þjóðfélagi samboðið að ráðskast á svo örlagaríkan hátt með líf þegna sinna.
Kona á að vera ábyrg gerða sinna, segja sumir. Sofi hún hjá karlmanni verður hún að taka afleiðingunum. En eins og kunnugt er fara tilfinningar og skynsemi ekki alltaf saman. Kynlífið er sjálfsagður þáttur í lífi hvers fullþroska einstaklings og á síðustu árum hafa orðið miklar framfarir á sviði getnaðarvarna, þ.e. getnaðarvarnir gerast æ öruggari og auðveldari í notkun. Þó ber nokkuð á annmörkum sem valda því að stór hópur kvenna getur ekki notfært sér getnaðarvarnir og auk þess eru engar getnaðarvarnir alls kostar öruggar. Aukin leiðbeining í notkun getnaðarvarna ásamt aukinni mæðrahjálp minnkar að sjálfsögðu þörfina fyrir fóstureyðingar en getur aldrei gert þær að engu. Það er ábyrgðarhluti að neita kornungri stúlku, sem ekki treystir sér til að taka á sig móðurábyrgð, um fóstureyðingu eða slitinni margra barna móður sem finnst hún vera orðin of gömul til að byrja á nýjan leik. Það er skref í áttina að mannúðlegra þjóðfélagi að þegnar þess séu velkomnir í heiminn. Það er ekki virðingarvottur við lífið að láta ókunnuga ráða yfir lífi konu, láta börn fæðast við hörmulegar aðstæður, að neyða börn eða aðra sem lítils mega sín til að verða foreldrar.
Áður en þér greiðið atkvæði yðar um þetta frv. þá íhugið hve sjálfsögð mannréttindi það eru að konan ráði sjálf yfir líkama sínum og lífi og ákveði sjálf hvort hún vill eignast börn, hvenær hún vill eignast börn og hve mörg börn hún vill eignast.``
Þetta bréf var skrifað alþingismönnum á þessum tíma. Mér finnst það fyllilega eiga rétt á sér hér og nú þar sem það virðist vera að alþingismenn, alla vega einhverjir, telji að nú sé þörf á endurskoðun þessara laga og þá til mikillar þrengingar. ( Forseti: Það hafði verið samkomulag um að ljúka þessum fundi um kl. 7.30. Nú vill forseti spyrja hv. þm. hvort hann væri tilbúinn að gera hlé á ræðu sinni þannig að þessari umræðu yrði frestað. Hv. þm. gæti þá tekið til við málið á nýjan leik þegar það kemur næst á dagskrá.) Já, ég vil verða við því, virðulegi forseti. Ég á nokkuð eftir af minni ræðu þannig að ég treysti mér ekki til að ljúka henni á skömmum tíma. Ég mun því fresta máli mínu þar til síðar.