Fyrirspyrjandi (Stefán Valgeirsson) :
Virðulegi forseti. Á þskj. 247 höfum við leyft okkur að bera fram fsp. til hæstv. dómsmrh. um neitun á að fram fari opinber rannsókn á brottrekstri ríkisstarfsmanns. Fyrirspyrjendur ásamt mér eru hv. þm. Skúli Alexandersson, Matthías Bjarnason og Ólafur Þ. Þórðarson.
,,1. Hvað veldur að opinber starfsmaður, sem vikið hefur verið frá starfi eftir rúmlega aldarfjórðungsstörf, fær mál sitt ekki rannsakað að hætti opinberra mála í samræmi við ákvæði III. kafla laga nr. 38/1954, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, þegar hann óskar eftir því?
2. Getur hvarf opinbers skjals, sem gert var í fjmrn. 9. apríl 1984, um launahækkun Inga B. Ársælssonar, en efni þess var loks, eftir mikla eftirgangssemi, staðfest af fjmrn. með bréfi, dags. 11. okt. 1990, ekki verið sjálfstætt tilefni til opinberrar rannsóknar? Er ekki enn frekari ástæða til opinberrar rannsóknar þegar tilurð skjalsins hefur ítrekað verið neitað af hálfu fjmrn. og Ríkisendurskoðunar fyrir bæjarþingi Reykjavíkur?
3. Er ákvörðun dóms - og kirkjumrn. frá 26. okt. 1990, um að neita Inga B. Ársælssyni að fram fari opinber rannsókn á máli hans, gild stjórnvaldsákvörðun samkvæmt íslenskum rétti þegar annar þeirra manna, sem undirrita bréf dóms - og kirkjumrn., er mjög tengdur málinu vegna fyrri starfa sinna?``
Í bréfi sem allir alþingismenn hafa fengið frá Inga Ársælssyni, dags. 3. mars 1991, stendur, með leyfi forseta:
,,Enn leita ég til ykkar, alþingismenn, vegna máls míns og vísa til fyrri bréfa minna og lögmanns míns, sérstaklega til opins bréfs Tómasar Gunnarssonar hæstaréttarlögmanns til ykkar allra alþingismanna, dags. 28. jan. 1991. Í því bréfi sakar lögmaðurinn æðstu stjórnvöld og dómstóla fyrir lögbrot í störfum. Ég nefni ólögmæta uppsögn mína úr starfi í Ríkisendurskoðuninni í febrúar 1984, hvarf opinbers skjals, dags. 9. apríl 1984, útgefið af fjmrn., neitun á efni skjalsins fyrir dómi af hálfu Ríkisendurskoðunar og fjmrn., neitun dóms - og kirkjumrn. á að láta fram fara opinbera rannsókn og sérstaklega því að ráðuneytisstjórinn í dóms - og kirkjumrn. undirritar neitun ráðuneytisins en hann var viðstaddur afhendingu afrits horfna skjalsins í fjmrn. 9. apríl 1984. Hann er því örugglega vitni að skjalahvarfsmálinu og hugsanlegur sökunautur.``