Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson) :
    Hæstv. forseti. Mér þykir miður að hv. 6. þm. Norðurl. e. skuli ekki hafa numið meginatriðið í þeim svörum sem ég gaf hér áðan en þau eru í rauninni tvö. Í fyrsta lagi er rétt að taka það fram að engin efnisafstaða er tekin til þessa máls í svari dómsmrn., hvorki til né frá. Hins vegar er bent á samkvæmt lögum um þessi efni að leiðirnar fyrir hendi eru tvær. Annars vegar opinber rannsókn fyrir dómi, sem ekki hefur verið farið fram á þar af réttum aðila. Hins vegar beiðni
til ríkissaksóknara. Það er rétt að greina líka frá því að í bréfum lögmannsins til dómsmrn. kom fram krafa um að skipaður verði sérstakur setusaksóknari til að mæla fyrir um rannsókn í tilefni af brottvikningu starfsmannsins. Hér ber að geta 22. gr. laga um meðferð opinberra mála en þar segir:
    ,,Þegar ríkissaksóknari er svo riðinn við mál eða aðila að hann mætti eigi gegna dómarastörfum í því skal hann tilkynna það dómsmrh. Nú berst ráðherra slík tilkynning eða hann fær vitneskju um það með öðrum hætti, og skipar hann þá vararíkissaksóknara eða annan löghæfan mann til meðferðar máls þessa.``
    Eins og þegar hefur komið fram hefur mál þetta ekki verið borið undir ríkissaksóknara. Ríkissaksóknari hefur þannig ekki tekið afstöðu til þess hvort hann sé vanhæfur til meðferðar slíks máls og hafa að öðru leyti ekki skapast forsendur til þess að ráðuneytið skipi setusaksóknara til að fjalla um erindið. Þetta er annar kjarni þessa máls sem meginmáli skiptir í þessu efni.