Atvinnumál á Suðurnesjum
Fimmtudaginn 07. mars 1991


     Karl Steinar Guðnason :
    Hæstv. forseti. Mér sýnist þessi umræða vera dálítið undarleg að því leyti til að á sama tíma og spurt er hvað gera skuli vegna væntanlegrar fækkunar starfsmanna á Keflavíkurflugvelli þá komi fram ósk um að störfin sem þar eru verði öll lögð niður og jafnframt lýst andstöðu við að byggja álver sem Suðurnesjamenn binda vonir við að bjargi miklu í atvinnumálum þar. Þetta er þversagnarkennt og undarlegt. Ég vil taka það fram að á atvinnuleysisskrá bara hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur eru nálægt 150 manns í dag fyrir utan það sem er í öðrum byggðarlögum og auðvitað skiptir það máli.
    Ég tel að helsta ástæðan fyrir því sé sú að kvótinn hefur streymt í burtu frá byggðarlögunum. Skipin hafa streymt í burtu. Ég vona að þar sé að verða breyting á því nú í næstu viku mun hefja veiðar togari sem var verið að kaupa þangað og vænti ég þess að öfugþróuninni hafi verið snúið við.
    Hvað varðar varnarliðið þá varð það ljóst núna síðustu dagana vegna aðgerða utanrrh. að um fækkun verður ekki að ræða nema kannski hvað varðar þá sem sjálfir vilja hætta. Þar er ekki að skapast það ástand sem menn áttu von á. Það voru hugmyndir um það hjá bandaríkjastjórn að fækka borgaralegum starfsmönnum um 25% í öllum sínum herstöðvum. Það verður ekki hér. Ég vil líka koma því að hér að verði um eitthvað slíkt að ræða, sem ég tel að verði ekki, og kannski hvort sem er, þá eigi íslensk stjórnvöld að gera kröfu til þess að fleiri störf verði íslensk þarna, að Íslendingar vinni þau störf sem erlendir menn vinna núna og þannig verði hægt að tryggja betur atvinnuöryggið þar.