Danfríður Skarphéðinsdóttir :
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka þessa fsp. Ég vil láta það koma fram hér sem mína skoðun að þegar svona tillögur eru lagðar fram og þær eru sendar héðan sem ályktun Alþingis verði hæstv. ríkisstjórn á hverjum tíma annaðhvort að samþykkja þær eða synja sem slíkum til þess að mál sé á hreinu og ljóst sé t.d. hvort við ætlum okkur yfirleitt að halda vestnorrænt ár. Það eina sem getur tryggt að þetta ár geti orðið með þeim hætti sem við vildum, sem tókum þátt í að undirbúa tillögu um það á sínum tíma, er góður undirbúningur. Og það er aðeins hægt að undirbúa þetta ár vel með því móti að skipuð sé samstarfsnefnd þessara þriggja þjóða og að þær geti hafið það starf sem allra fyrst því að það er ekki langur tími til stefnu. Það er í raun og veru ekki nema eitt ár.
Ég vil svo líka taka það fram að ég held að í ljósi þess sem gerðist á síðasta Norðurlandaráðsþingi ættum við að hugleiða mjög þann möguleika að snúa okkur að því að efla samstarf okkar og samstöðu með smáþjóðum, hvort sem þær eru í vestri eða austri. Ég tel mjög mikilvægt að það fáist hreinar línur í þetta mál. Er ætlunin að styðja við bakið á þessari einróma ályktun Alþingis með því að hrinda henni í framkvæmd eður ei?