Fyrirspyrjandi (Málmfríður Sigurðardóttir) :
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. umhvrh. svör hans. Það er ánægjulegt að heyra að eitthvað er í gangi um undirbúning fyrir þessar ráðstefnur þó að mér sýnist nú að það sé frekar skammt á veg komið. Það er ekki rétt hjá ráðherra að stjórnir hinna vestnorrænu landanna hafi ekki sinnt þessum málum því að ég veit til þess að það hefur verið sett til hliðar fé til þess að standa undir kostnaði við þau. En hins vegar er dálítið dapurlegt fyrir okkur að þó að samþykktir og ályktanir Vestnorræna þingmannaráðsins renni í gegn sem þingsályktanir hjá Alþingi, þá er allt of lítið gert af því að vinna að því að þær nái fram að ganga.
Á nýliðnu Norðurlandaráðsþingi hrikti nokkuð í stoðum norræns samstarfs eins og menn muna. Við Íslendingar höfum alltaf lagt mikið upp úr þessu norræna samstarfi og litið á þjóðir Skandinavíu sem frændur okkar og vini. En það er nú svo að samskipti og samstarf þjóða ræðst fyrst og fremst af hagsmunum, eigin hagsmunum. Sjái skandinavísku þjóðirnar sér engan hag í samstarfi við Íslendinga er það trúa mín að engin áhersla verði lögð á það samstarf í framtíðinni af þeirra hálfu.
Á hitt er svo að líta að samstarf vestnorrænu þjóðanna hefur hægt og hægt verið að eflast og aukast og ég lít svo á að brýn nauðsyn sé að efla þetta samstarf. Þessi lönd eiga margra sameiginlegra hagsmuna að gæta.
Fyrst og fremst eiga þau þeirra sameiginlegu hagsmuna að gæta að lífsafkoma þeirra er algerlega bundin höfunum sem að þeim liggja sem eru þeim að miklu leyti sameiginleg. Þessi lönd hafa allar forsendur til að sameinast í öflugri baráttu gegn mengun hafsvæða og baráttu fyrir því að varðveita og auka þau lífsgæði sem hafið veitir okkur. Þar verðum við að vera í forustu og ég lít svo á að umrædd umhverfisráðstefna sé fyrsta skrefið til að auka og efla það samstarf.