Aðgerðir til að draga úr bensínnotkun
Fimmtudaginn 07. mars 1991


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Hæstv. forseti. Í kjölfar illvígra hernaðarátaka við Persaflóa í janúar sl. ákvað ríkisstjórnin að hefja skyldi kynningar - og áróðursherferð fyrir bensín - og olíusparnaði vegna þeirrar óvissu sem þá kom upp um framboð á olíuvörum og verðlag á þeim. Þessi kynningar - og áróðursherferð hefur birst landsmönnum m.a. í bæklingi sem dreift er á öllum bensínstöðvum og víðar og með auglýsingum í útvarpi og sjónvarpi. Olíufélögin tóku strax þátt í þessu verki og hafa á sínum eigin vegum gefið út blöð og auglýsingar með ábendingum um leiðir til bensínsparnaðar.
    Þá var líka tekið upp samstarf milli iðnrn. og viðskrn. og ýmissa hagsmunasamtaka, þar á meðal Félags ísl. bifreiðaeigenda, Félags sérleyfishafa, Strætisvagna Reykjavíkur, Akureyrar og Kópavogs, um sameiginlegt átak til þess að draga úr notkun á innfluttu eldsneyti. Þetta er ýmist þegar komið til framkvæmda eða í undirbúningi og byggir m.a. á því að auka tíðni ferða þar sem þess er kostur hjá almenningsvögnum og auglýsa þjónustu þeirra betur. Þá var líka tekið upp samstarf og viðræður við Fiskifélag Íslands um orkusparnað í sjávarútvegi, en Fiskifélagið vann mikið starf að því á fyrri hluta níunda áratugarins m.a. á vegum sjútvrn. En þetta tvennt, olíunotkun fiskiskipa og bensínnotkun einkabíla, eru stærstu þættirnir í okkar innflutningi á eldsneyti.
    Það er enn ekki ljóst hvort þessar aðgerðir hafa borið árangur. Það fer að sjálfsögðu eftir því hver árangur verður af þessari kynningar - og áróðursherferð hvort þörf verður talin á að grípa til frekari ráðstafana sem hv. fyrirspyrjandi spurði um í öðru lagi.
    Það er nú reyndar svo að færðin hefur verið ákaflega góð það sem af er ári. Menn hafa farið allra sinna ferða um þjóðvegina. Heklugos hefur kallað á miklu meiri akstur um Suðurlandsundirlendið en væri í venjulegu árferði. Þetta tvennt sem ég nefni, góð færð og þessi ferðamannastraumur austur fyrir fjall, er alveg nægileg skýring á því að enn hafi ekki komið fram sparnaður í bensínnotkuninni. Við höfum hins vegar hug á því að halda áfram þessum auglýsingum því það er sama hvort stríð geisar við Persaflóann eða ekki, það er almannahagur af því bæði frá sjónarmiði efnahags og umhverfis að draga úr notkun á innfluttu eldsneyti. Þar skiptir verðlagning á þessum varningi kannski einna mestu máli. Ég er alls ekki að boða að þar verði gerðar á breytingar, en það hlýtur að verða í framtíðinni mikilvægt álitaefni í sambandi við orkustefnuna og umhverfisvernd, fyrir utan fjármálastefnuna, að huga að skattlagningu á innfluttu eldsneyti í samanburði við hið innlenda.
    Um almenningsvagnana sem hv. fyrirspyrjandi vék hér að sérstaklega vil ég taka það fram að ég hef gert um það tillögur og fleiri á vettvangi ríkisstjórnarinnar að almenningsvagnafyrirtækjum verði veittar sérstakar ívilnanir hvað varðar aðflutningsgjöld og skatta af nýjum farartækjum sem nauðsynleg kynnu að reynast í þeirra þágu. Þetta snertir að sjálfsögðu öll þessi fyrirtæki og ekki síst hugsanlegt nýtt almenningssamgöngufyrirtæki hér í byggðunum í kringum höfuðborgina, en það hefur þegar verið stofnað byggðasamlag um það mál af sex sveitarfélögum sem þurfa að bæta þessa þjónustu hér í kringum höfuðborgina. Ég bind vonir við að það geti einmitt náð því markmiði sem hv. fyrirspyrjandi ber fyrir brjósti.