Rannsóknir á sjóslysum
Fimmtudaginn 07. mars 1991


     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) :
    Hæstv. forseti. Því miður er svarið við þessari spurningu í raun og veru ákaflega einfalt. Rannsóknarnefnd sjóslysa hefur við undirbúning fjárlaga fyrir öll árin sem hv. fyrirspyrjandi nefndi, 1988, 1989 og 1990, óskað eftir fjárveitingum til útgáfu á ársskýrslu sinni. En þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir sem studdar hafa verið af ráðuneytinu og þrátt fyrir óskir um aukafjárveitingar sem einnig hafa verið settar fram hafa ekki fengist fjárveitingar til þessa liðar í útgjöldum nefndarstarfsins og því hefur ekki tekist að koma skýrslunni út fyrir þessi nefndu ár.
    Vegna þess að ekki hafa fengist heimildir á fjárlögum hefur verið heimilað að skýrslan verði gefin út, að einhverju leyti fjármögnuð af styrktarlínum ýmissa hagsmunaaðila sem tilbúnir eru til þess að styrkja það að þessar skýrslur geti birst. Á þeim grundvelli hefur nú verið undirbúið að skýrslur fyrir þessi ár komi út þó svo kunni að fara að óhjákvæmilegt verði að sníða þar stakk eftir vexti vegna þess að þeir fjármunir sem hægt er að safna og fyrir hendi eru verða að ráða umfangi útgáfunnar en ekki endilega mat manna á því hvaða rannsóknir og hvaða skýrslur væri æskilegast að birta og að kæmu fyrir sjónir almennings.
    Undirbúningi skýrslu fyrir árið 1988 á þessum grundvelli er nánast lokið og skýrslan ætti að geta komið út á næstunni og í kjölfarið skýrslur fyrir þau ár sem á eftir koma.
    Þess má líka geta í leiðinni að innan skamms verður skipuð ný nefnd þar sem kjörtímabil þeirra sem nú eru að ljúka störfum er útrunnið. Í tengslum við þessa breytingu hafa verið til skoðunar í siglingamálaráði, hjá samgrn. og víðar starfshættir nefndarinnar og ýmislegt sem lýtur að verkefnum rannsóknarnefndar sjóslysa. Það er ætlunin að ný nefnd sem við tekur innan skamms muni taka til afgreiðslu tillögur sem að þessu lúta. Við þessi tímamót er verið að reyna að endurskipuleggja starf nefndarinnar.
    Ég hlýt að þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að vekja athygli á því að þarna er í raun og veru alls ekki nógu myndarlega að hlutunum staðið, því miður, og ég heiti á hv. alþingismenn sem á mál mitt hlýða, sem að vísu eru ekki mjög margir með þó fullri virðingu fyrir þeim, að nú þarf að gera hér bragarbót.