Efndir við loðdýrabændur
Fimmtudaginn 07. mars 1991


     Halldór Blöndal :
    Hæstv. forseti. Ég held að okkur alþingismönnum sé það öllum kunnugt að ekki hefur verið staðið myndarlega að því að koma til móts við það fólk sem hefur verið í loðdýrarækt. Það er að vísu rétt að Stofnlánadeild landbúnaðarins hefur ekki innheimt vexti eða afborganir af lánum vegna loðdýraræktar en á hinn bóginn eiga loðdýrabændur margir hverjir erfitt með að standa í skilum vegna annarra lána sem hvíla á eignum þeirra. Það er enn fremur ljóst að margir loðdýrabænda hafa orðið gjaldþrota eða þeir hafa ráðið sig sem launþega í önnur störf. Vextir eru ekki frádráttarbærir hjá launþegum við álagningu tekjuskatts sem hlýtur auðvitað að valda því að þeim verður til lengdar ofviða að standa undir sínum skuldbindingum sem á þeim hvíla nú vegna loðdýraræktar. Aðrir hafa farið slyppir og snauðir frá jörðum sínum og húsnæðiskerfið er þannig byggt upp í dag að þetta fólk hefur ekki forgang eða rétt á borð við heimamenn í kaupstöðum til að ganga inn í félagslegar íbúðir. Á þessu sviði hefur ekki verið komið til móts við þetta fólk.
    Ég held að það sé öldungis ljóst að ríkisvaldið er skuldbundið þessu fólki vegna þess sterka og harða áróðurs sem rekinn var á sínum tíma fyrir loðdýraræktinni. Ég held að það sé líka ljóst að skuldabagginn er orðinn þyngri en ella mundi vegna þess að opinberar ráðstafanir hafa dregist úr hömlu og ekki hefur fengist neinn botn í þær umræður og viðræður sem orðið hafa vegna aðgerða við loðdýrabændur. Ég get tekið sem dæmi að við í Stofnlánadeild sendum landbrh. bréf og vorum síðan kallaðir til fundar upp í landbrn. en þar var ráðherra sjálfur ekki til viðtals heldur embættismenn hans sem höfðu ekki pólitískt umboð til þess að tala við þingkjörna fulltrúa Stofnlánadeildar. Þetta er auðvitað dæmigert fyrir framgang þessa máls í heild.
    Ég held að nauðsynlegt sé að allir þeir sem koma að málinu taki nú höndum saman. Ég hygg að nauðsynlegt sé að flatur niðurskurður komi á lán þeirra sem fóru í loðdýrarækt, þeirra sem enn vinna við það og annarra þeirra sem hafa tapað fé á þeirri tilraun. Og ég held að við verðum jafnframt að reyna að beita okkur fyrir því að húsnæðisyfirvöld hafi hliðsjón af erfiðleikum fólksins. Ég held að það sé grundvallaratriði.
    Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri. Það væri hægt að tala langt mál um þetta, en lengd utandagskrárumræðna fer ekki eftir þýðingu þeirra og mikilvægi.