Guðni Ágústsson :
Hæstv. forseti. Hér hefur það sannast að ,,víst er þetta löng og erfið leið, lífið stutt og margt sem út af ber``. Vissulega er vandi loðdýraræktarinnar stór. Það hafa verið erfið viðfangsefni á borðum margra.
Mér kemur það nú á óvart ef loðdýrabændur eru að biðja um að fá allt fellt niður. Þeir hafa fyrst og fremst í mínum huga beðið um frið til þess að bíða nýrra tækifæra sem kannski eru í sjónmáli. Hér hefur ráðherra rakið þær aðgerðir sem fram hafa farið. Ég vil láta það koma fram að hér hafa ýmsir þingmenn enn einu sinni farið með rangt mál.
Mál loðdýrabænda, öll loðdýramál, hafa verið í friði í Stofnlánadeild landbúnaðarins. Eigi loðdýrabændur erindi við bankaráð eða stjórn Stofnlánadeildar þá eiga þeir að skrifa til þeirra en ekki Alþingis. Síðan er það krafa mín að menn fari með rétt mál. Í þeim banka sem ég þekki til hafa allir dráttarvextir verið felldir niður. Það hafa verið settir á samningsvextir í öllum tilfellum þar sem skuldbreytt hefur verið. 1,2% lántökugjald hefur verið tekið, en í Búnaðarbankanum er það af 60 -- 80 milljónum þannig að þarna er um tæpa milljón að ræða. Ég þekki ekki stöðu Landsbankans í þessu máli. Fram á þetta hefur ekki verið farið eða það nefnt fyrr en núna.
Ég hef ekki sem bankaráðsformaður fengið þetta bréf sem hér er vitnað til fyrr en hér í hólfið mitt. Það er mikið atriði að menn fari réttar leiðir í vinnu sinni og ég segi það sem bankaráðsmaður og stjórnarformaður í Stofnlánadeild að við höfum setið, ég segi pungsveittir yfir þessum verkefnum í á annað ár og lagt okkur alla fram til að berjast og vinna þessu fólki frið. Það hefur verið gert á báðum þessum stöðum. Ég vænti þess að menn vinni að þessum verkefnum með félagslegum hætti í samráði við bæði ráðherrann sem hefur lagt sig fram og við þá aðila sem hafa verið að berjast við þessi mál. Það er ekki lausn, hv. þm. Stefán Valgeirsson, að Stofnlánadeildin gefi einhliða eftir 40% af sínum lánum. Við höfum tekið það til umræðu og við segjum frekar: Við skulum koma inn í nauðasamninga í þessum málum. Ef við gefum einhliða eftir af 1. veðrétti 40% af öllum þessum lánum, þá standa mennirnir í sömu sporum. En ef við segjum: Við komum inn í nauðasamninga í þessum málum, þá er það hvati til þess að allir hinir sem eiga skuldir hjá þessu fólki felli líka niður 40%. Það erum við að skoða ásamt mörgu fleiru sem þetta blessað fólk varðar og þessa búgrein.
Ég vænti þess að það fari svo að sá biðtími sem við höfum markað sýni að við völdum rétta leið. Skinnaverðið er að hækka og þessi búgrein megi þess vegna ná á ný fótfestu. En ég hvet loðdýrabændur til þess að sýna þeim sem hafa unnið að málefnum þeirra, bæði á Alþingi, í ríkisstjórn og í öðrum stofnunum, þá virðingu að tala við þá, koma á fund þeirra í stað þess að vera með gaspur og ómerkilegt tal í fjölmiðlum sem því miður hefur hent einhverja menn í þessum hópi.