Efndir við loðdýrabændur
Fimmtudaginn 07. mars 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Vegna þessara síðustu orða hæstv. ráðherra vill forseti taka fram að að sjálfsögðu hefði verið leyfð ómæld umræða um svo viðamikið mál ef ekki væru svo fáir dagar eftir af þinghaldi. Eftir samráð við forseta deilda var það samróma álit að útilokað væri að gefa þessari umræðu nú meiri tíma en orðið hefur og harma ég það vissulega. En ég vona að hv. þm. skilji þá afstöðu.