Guðni Ágústsson :
Hæstv. forseti. Ég skal ekki lengja þessa umræðu. Ég hef farið yfir frv. lið fyrir lið. Ég tek undir það með flm. að alltaf er það mikilvægt að menn nái sáttum og að deilum ljúki. Það held ég að sé afskaplega mikilvægt hvar sem er. Hins vegar er það stundum spurning hvort menn eigi að breyta lögum, hvort það er lögunum að kenna að deilurnar eru eða hvort það er ákveðin stífni og vilji manna til að fara ekki að lögunum.
Nú vék hv. flm. að reglugerð um netaveiði á göngusilungi í sjó frá því í maí 1990. Sú reglugerð var sett að mér skilst til að tryggja sem best að sá búnaður sem notaður er við veiðar sé með þeim hætti að eingöngu sé um silungsveiði að ræða í netlögnum er liggja að sjó. Þess vegna veltir maður því kannski fyrir sér hvort sá þrýstingur sem varð vegna setningar þessarar reglugerðar og endurspeglast kannski í þessu frv. stafi af því að netaveiðimenn hafi ekki unað því að reynt væri að útiloka að lax væri veiddur í blóra við silungsveiðirétt. Auðvitað veltir maður þessu fyrir sér hvort menn séu svona ósáttir við reglugerðina af þeim sökum.
Hv. flm. kom hér aðeins inn á virðisaukaskattinn og fór að vitna í húsmæður. Ég held að það sé ákaflega mikilvægt í lögum og reglum samfélagsins að þar ríki ein regla og menn sitji við sama borð. Við munum hvað við gerðum gagnvart húsmóðurinni þegar matarskatturinn var tekinn upp, þegar við framsóknarmenn komum að því máli. Sjálfstfl. og Alþfl. höfðu samið um að það yrði algert skilyrði fyrir myndun ríkisstjórnar að tekinn yrði upp matarskattur. Þá gerðum við kröfu um það að virðisaukaskattur af mikilvægustu matvælum heimilanna yrði endurgreiddur í niðurgreiðsluformi. Það varð niðurstaðan. Ég vil taka þetta hér fram.
En menn mega ekki gleyma því með virðisaukaskatt af veiðileyfum að sjálfsagt er flm. að tala um veiðifélögin. Veiðifélög starfa víða af myndarskap og hafa byggt upp arðgefandi starfsemi sem dreifir tekjum til margra. Þau eru rekin fyrir opnum tjöldum og menn greiða að fullu opinber gjöld af þeim tekjum sem þannig aflast. Það liggur líka fyrir.
Það er kannski annað að segja um þá sem silungsveiði hafa stundað í sjó. Þeir gera ekki grein fyrir veiði sinni og tekjum af þeim veiðiskap. Um það efni liggja ekki fyrir opinberar upplýsingar. Það er skammt síðan umræðan um virðisaukaskatt á veiðileyfi var í gangi á Alþingi. Niðurstaðan varð sú eins og ég gat um hér áðan að ekki yrði lagður virðisaukaskattur frekar en söluskattur á veiðileyfin. Við megum ekki gleyma því að söluskatturinn var af sömu ástæðum ekki áður á veiðileyfunum.
Ég ætla ekki að þreyta hæstv. forseta með frekari ræðuhöldum um þetta mál en við ræðum það frekar í landbn.