Ragnhildur Helgadóttir :
Herra forseti. Við Sólveig Pétursdóttir höfðum lagt það til að í stað þess að tiltaka ákveðin félög og félagasamtök sem væru til ráðuneytis í sambandi við þessa framkvæmd stæði einfaldlega, án þess að um tiltekin samtök væri að ræða, samtök rithöfunda, samtök tónlistarmanna og samtök tónskálda.
Þar sem sú tillaga hefur nú þegar verið felld þá tel ég þessa tillögu þó aðeins til bóta frá því sem er í frv. og get greitt atkvæði með henni að hinni tillögunni felldri. Ég tel að vísu að það sé spurning um það hvor tillagan hefði átt að ganga á undan. Ég gagnrýni ekki þessa málsmeðferð. En okkar tillaga hefur þegar verið felld, því miður. Ég held að þetta sé heldur skárra en var í frv. og þess vegna greiði ég atkvæði með þessari tillögu.