Efnahagsaðgerðir
Mánudaginn 11. mars 1991


     Skúli Alexandersson :
    Herra forseti. Það var eitt orð í ræðu hæstv. framsögumanns um það að hér væri verið að ganga frá endalokum þeirra efnahagsaðgerða sem núv. ríkisstjórn hefur staðið fyrir frá því í sept. 1988. Það er nú ekki hægt að segja beinlínis núverandi ríkisstjórn heldur þær tvær ríkisstjórnir sem hafa setið síðan.
    Því miður eru þetta ekki endalokin vegna þess að við eigum sjálfsagt eftir á næstu árum að finna fyrir þessum efnahagsaðgerðum meira og minna. En það sem er verið að gera er að það er verið að koma þeim í sérstakt form undir umsjá Byggðastofnunar.
    Ég vildi aðeins láta þetta koma fram, að við værum nú sem verr fer ekki alveg sloppin frá þessu.