Efnahagsaðgerðir
Mánudaginn 11. mars 1991


     Halldór Blöndal :
    Herra forseti. Það varð samkomulag milli mín og hv. 4. þm. Vesturl. Skúla Alexanderssonar nú fyrir helgina að ég gerði ekki athugasemdir við að þetta frv. yrði tekið til 2. umr. þó svo að ekki hafi verið orðið við beiðni minni um það að Fjárlaga- og hagsýslustofnun mæti það, eins og henni ber að gera lögum samkvæmt, hversu mikinn útgjaldaauka tvö frv. hafi í för með sér, þ.e. frv. til laga um breytingu á lögum um efnahagsaðgerðir og um breytingu á lögum um Byggðastofnun.
    Ég hef fengið hér í hendur óstaðfest ljósrit af bréfaskriftum fjmrn. og forsrn. Þetta ljósrit af bréfaskriftum þessara tveggja ráðuneyta er algjörlega óviðkomandi minni beiðni. Ég fór fram á það --- og ég óska eftir að formaður nefndarinnar hlusti á. Það er nú erfitt að tala um nefndarstörf ef formaður nefndarinnar má ekki vera að því að hlusta.
    Ég fór líka fram á það fyrir helgi að fá í hendur umsögn Fjárlaga- og hagsýslustofnunar um þessi frv. tvö og um frv. til laga um breytingu á lögum um listamannalaun. Þá fékk ég í hendur af þeim sökum og því tilefni á fundi menntmn. í morgun óstaðfestan minnismiða frá menntmrn. Einhvers konar minnisblað sem fyrir utan það að vera óljóst var efnislega rangt og greinilegt að sá sem það hafði skrifað hafði ekki lesið það frv. sem hann var beðinn um umsögn um.
    Ég vænti þess, herra forseti, að yfirstjórn þingsins hafi skilning á því að Alþingi ætlast til þess að fá formlega umsögn frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun ef einstakar nefndir biðja um upplýsingar og mat á kostnaði sem einstök stjfrv. hafa í för með sér. Að Fjárlaga- og hagsýslustofnun í fyrsta lagi láti svo lítið að svara bréfi þingsins um slíka umsögn, því ég efast ekki um að formaður nefndarinnar hafi beðið Fjárlaga- og hagsýslustofnun um slíka umsögn. Í annan stað hygg ég að forseti deildarinnar sé mér sammála um það að nefndarmenn geti ekki látið sér lynda að fá óundirskrifaða minnismiða, heldur hlýtur umsögnin að vera formleg og staðfest með undirskrift þannig að greinilega komi fram að umsögnin sé send á ábyrgð ráðuneytis og ráðherra en ekki einhver óskilgreindur pappír.
    Ég sé ekki ástæðu til þess við 2. umr., af því að ég féllst á að 2. umr. mætti fara fram án þess að slík umsögn bærist, að gera athugasemd við það þó 2. umr. fari fram. Mér hafði verið sýnt orðalag sem ekki er í samræmi við brtt. meiri hl. og af þeim sökum hafði ég ekki séð ástæðu til þess að biðja forstöðumann Ríkisábyrgðasjóðs að koma til fundar við fjh.- og viðskn. Nú eru þessar forsendur breyttar þannig að óhjákvæmilegt er að forstöðumaður Ríkisábyrgðasjóðs komi á fund nefndarinnar. Auk þess er óhjákvæmilegt að Fjárlaga- og hagsýslustofnun, lögum samkvæmt, sendi Alþingi bréf um þann kostnað sem þessi frv. hafa í för með sér fyrir ríkissjóð.
    Ég vil svo ekki lengja þessa umræðu frekar. Málið verður tekið fyrir í fjh.- og viðskn. milli 2. og 3.

umr. samkvæmt samkomulagi sem ég gerði við varaformann nefndarinnar. En ég vil biðja meiri hl. nefndarinnar að draga brtt. sínar aftur til 3. umr.