Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
Virðulegi forseti. Vegna þeirrar ræðu sem hér var flutt af hv. þm. Danfríði Skarphéðinsdóttur þá vil ég nú í fyrsta lagi vekja athygli á því að að meginefni er þetta frv. flutt til þess að koma í veg fyrir verulega skattaþyngingu sem hefði orðið ella, vegna þess einfaldlega að við erum búin að ná verðbólgunni niður, og hins vegar liður í þeirri stefnu sem ég hélt að Kvennalistinn styddi, að fækka frádráttarliðum en breikka skattstofn og lækka þá prósentu um leið til þess að gera skattheimtuna öruggari.
Ég vil hins vegar svara þeim spurningum sem hún beindi til mín. Ég hef verið og minn flokkur fylgjandi því að það yrði tekið upp sérstakt hátekjuþrep í tekjuskattinum. Ég hef sett fram innan ríkisstjórnarnnar frv. þar sem slíkt þrep er miðað við 300 þús. kr. tekjur hjá einstaklingi og 600 þús. kr. tekjur hjá hjónum. Ég er einnig þeirrar skoðunar að það eigi að hækka skattleysismörkin og minn flokkur hefur ályktað um það. Ég er einnig þeirrar skoðunar að það eigi að auka barnabæturnar og hef lagt fram tillögur um það innan ríkisstjórnarinnar. Ég hef síðan lagt til að fjármagn til þessara breytinga innan tekjuskattsins, hækkunar skattleysismarka, aukningar barnabóta og aukningar á húsnæðisbótum, m.a. til þeirra sem leigja, verði sótt annars vegar í hátekjuþrep í tekjuskattinum og hins vegar í skattlagningu fjármagnstekna yfir ákveðnum mörkum líkt og atvinnutekna.
Alþb. og ég sem fjmrh. hafa lagt fram alveg skýrar tillögur í þessum efnum þannig að okkar stefnuafstaða liggur fyrir afdráttarlaus. Ég hef einnig lagt fram innan ríkisstjórnarinnar, gerði það morgun, frv. um húsaleigubætur í framhaldi af frv. sem ég kynnti innan ríkisstjórnarinnar í vor. Við erum þess vegna að vinna að því verki að auka jöfnunaraðgerðir innan tekjuskattsins án þess að skattbyrðin í heild aukist. Það liggja nú þegar fyrir fullbúin frv. og tillögur um að breyta dreifingunni innan tekjuskattsins á þann veg að létta tekjuskattinn á fólki með miðlungstekjur og lægri tekjur, sérstaklega barnafólki og fólki með mikinn húsnæðiskostnað, en auka skattbyrðina á fólki með mjög miklar tekjur og skattfrjálsar fjármagnstekjur. Svörin við þessum spurningum liggja alveg afdráttarlaus fyrir og það hefur ekki staðið á okkur að breyta skattalögunum í þessa veru.
Hins vegar varðandi hlutafjárfrádráttinn þá vek ég athygli á því að það er verið að þrengja hann frá því sem er í gildandi lögum. Um það má ræða hvað eigi að ganga langt í þeim efnum en stefnan er hins vegar í þá áttina en ekki til þess að auka hana. Hér er því ekki verið að flytja frv. um að lækka sérstaklega skattana á atvinnulífinu eða auka frádráttarheimildirnar eins og mér fannst koma fram í orðum hv. þm. Hitt er svo rétt að það þarf að gera breytingar á tekjuskattinum til þess að auka jöfnunarhlutverk hans og ég er sannfærður um að það væri skynsamlegasta aðgerðin til þess að tryggja nýja kjarasamninga sem þjónuðu því markmiði að hér yrði áfram lítil verðbólga.