Ferðaþjónusta
Mánudaginn 11. mars 1991


     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) :
    Herra forseti. Ég hlýddi á mál hv. 2. þm. Norðurl. e. fyrir helgina þegar hann ræddi málefni ferðaþjónustunnar og bar fram ýmsar spurningar. Ég skal reyna að koma lítillega inn á þær helstu sem ég man að þingmaðurinn bar fram eða ræddi um. Ég vík mér þá beint að því sem hann síðast nefndi, að það vantaði upplýsingar eða æskilegt væri að fá upplýsingar um útgjöld vegna frv. þessa ef að lögum yrði. Því er til að svara að málin eru tiltölulega einföld hvað það snertir.
    Staðreyndin er sú að það er alls ekki gert ráð fyrir í raun neinni breytingu á opinberum útgjöldum eða stuðningi við ferðaþjónustuna frá núgildandi lögum. En það er að vísu gert ráð fyrir því að ríkisvaldið, fjárveitingavaldið, láti af þeim skerðingum á hinum markaða tekjustofni ferðaþjónustunnar sem gripið hefur verið til um árabil. Og ég get upplýst hv. þm., og þarf ekki Hagsýsluna til, um að þetta þýðir að í stað þeirra 30 -- 40 millj. kr. sem Ferðamálaráð hefur fengið undanfarin ár til sinnar starfsemi mun það fá, ef lögin eru framkvæmd án þess að hinn markaði tekjustofn, 10% af brúttósölutekjum Fríhafnarinnar, ef hann skilar sér að fullu þá mun láta nærri að það séu um 150 millj. kr. á núgildandi verðlagi. Tekjur Ferðamálaráðs eru auknar nú verulega á milli ára og fara úr þessum upphæðum sem ég nefndi, 30 -- 40 millj. kr., í um 70 millj. kr. í fjárlögunum fyrir yfirstandandi ár ef ég man rétt. Þannig að í raun og veru er svarið til hv. þm. þetta: Frumvarpið sem slíkt mun ekki hafa breytingu í för með sér á stuðningi hins opinbera við ferðaþjónustuna, mælt í gegnum fjárveitingar til Ferðamálaráðs, en við ætlumst til þess og hefur þegar verið farið inn á þá braut að fella niður eða aflétta skerðingunum á hinum mörkuðu tekjum sem því miður hefur verið gripið til æ ofan í æ á undanförnum árum. Þetta hefur í för með sér breytingar af þessu tagi. Menn geta út af fyrir sig kallað það útgjöld fyrir ríkissjóð að þessar skerðingar falli niður, en það er ekki breyting á þeim lögum í raun sem hafa markað starfsgrundvöll ferðaþjónustunnar undanfarin ár heldur eingöngu á framkvæmd þeirra.
    Í öðru lagi nefndi hv. þm. spurninguna um þá pólitísku stefnu sem í þessu frv. felst. Það hafa fleiri en hv. þm. talið að í frv. fælist tilhneiging til mikillar miðstjórnar og stýringar á málefnum ferðaþjónustunnar. Ég skil nú ekki í fljótu bragði hvers vegna þessi misskilningur hefur komist á kreik vegna þess að ef eitthvað, þá ganga breytingar á lögunum í átt til þess að minnka afskipti ríkisvaldsins frá núgildandi lögum og draga úr beinni stjórn aðila eins og Ferðamálaráðs og samgrn. frá því sem nú er.
    Ég veit að ég þarf ekki að upplýsa hv. 2. þm. Norðurl. e. sem veit mætavel að Ferðamálaráð, Ferðamálasjóður og samgrn. hafa verið til mörg undanfarin ár. Það er þess vegna ekki verið að taka neitt nýtt upp í þeim efnum, en ég bendi á breytingar til að mynda sem verða á ákvæðunum um veitinga - og gistihús þar sem áður voru í lögum mjög ítarleg ákvæði, og næstum að segja smásmuguleg ákvæði, um flokkun gistihúsa og hótela og þar fram eftir götunum. Þetta er núna fellt niður úr lögum og verður einfaldað til mikilla muna. Ég bendi á ákvæðin um ferðaskrifstofur þar sem áður voru í gildi mjög þröng og í raun og veru óheppileg ákvæði sem þýddu að ferðaskrifstofur, án tillits til þeirrar starfsemi sem þær ráku, urðu allar að kaupa sér sams konar tryggingu og sams konar starfsleyfi. Þetta þýddi að lítil ferðaskrifstofa sem eingöngu annaðist þjónustu við ferðamenn t.d. hér innan lands og var kannski með nokkra tugi ferðamanna á sínum snærum á ferðalagi hér í landinu þurfti að kaupa sams konar tryggingu, jafnháa, jafndýra og stærstu ferðaskrifstofur landsins sem eru kannski með þúsundir manna á ferðalögum erlendis á einum og sama tíma. Þetta fyrirkomulag var auðvitað ekki nógu gott og þess vegna breyttum við því. Nú er gert ráð fyrir miklu skynsamlegri tilhögun í þessum efnum þar sem minni ferðaþjónustuaðilar geta verið viðurkenndir og skráðir án þess að þurfa að kaupa sér jafndýrar og umfangsmiklar tryggingar og áður var ef þeir ætluðu að fá ferðaskrifstofuleyfi.
    Margt fleira gæti ég þarna rakið og ég minni á að það er beinlínis tekið fram bæði í markmiðum frv. og í markmiðum þáltill. sem er til meðferðar í Sþ. að ferðaþjónustan eigi að þróast og standa á eigin fótum og að afskipti hins opinbera skuli fyrst og fremst lúta að atriðum eins og fræðslu, rannsóknum, þróunarstarfi og samræmingu á landkynningu og umhverfismálum. Með öðrum orðum, það er mjög rækilega þrætt í gegnum löggjöfina með þessu frv. og það er ekki ætlunin að halda út á braut ríkisrekstrar eða ríkisumsvifa eða miðstýringar. Þvert á móti er vald og frumkvæði rekstraraðilanna og einstakra byggðarlaga og landshluta í gegnum ferðamálafulltrúa og aðra slíka uppbyggingu úti í landshlutunum eflt. Það er, eftir því sem kostur er, reynt að færa frumkvæðið í hendur heimamanna og ferðaþjónustuaðila úti um landsbyggðina ekki síst, en á það hefur nokkuð þótt skorta að þeir næðu þannig samstöðu eða byndust þannig samtökum að þeirra afl í þessum efnum nýttist.
    Ég veit að hv. 2. þm. Norðurl. e. hlýtur að hafa kynnt sér að það er ekki síst tilgangurinn með þessu starfi og þessum lagabreytingum að reyna að styrkja stöðu ferðaþjónustunnar úti um landsbyggðina, að gera öll kjördæmi, alla landshluta og öll byggðarlög virka þátttakendur í uppbyggingu ferðaþjónustunnar, enda er þetta ein sú atvinnugrein þar sem menn sjá vaxtarmöguleika, ekki síður úti um landið en hér á höfuðborgarsvæðinu og veitir ekki af að hlúa að slíku. Það veit ég að hv. þm. er mér sammála um.
    Að lokum, herra forseti, ræddi hv. þm. svolítið um skattlagningu, starfskjör og samkeppnisskilyrði ferðaþjónustunnar. Þá vil ég upplýsa hv. þm. um það að einn þáttur í starfi ferðamálanefndarinnar, hverrar afrakstur er nú raunar hér á ferðinni, var einmitt að gera úttekt á samkeppnisstöðu og rekstrarskilyrðum ferðaþjónustu hér á landi í samanburði við nágrannalöndin. Það kom í ljós þegar þessi úttekt fór af stað

að hún var að mestu leyti sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Það hafði ósköp einfaldlega ekki áður verið safnað saman upplýsingum með þeim hætti sem hér hefur nú verið gert um þetta atriði, um samkeppnisstöðu og rekstrarskilyrði ferðaþjónustunnar, um mikilvægi hennar í þjóðarbúskapnum, um gjaldeyristekjurnar sem hún skilar, o.s.frv. Og ég er alveg viss um það að hv. þm. hafa orðið þess varir á undanförnu 1 1 / 2 ári að það hefur farið óvenjumikið fyrir upplýsingum í fjölmiðlum um gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu, um störf sem hlutfall af mannafla í ferðaþjónustu og ýmsar slíkar hagrænar upplýsingar sem hafa verið að koma fram í dagsljósið um málefni ferðaþjónustunnar og eru fyrst og fremst afrakstur tölfræðihóps sem settur var upp í tengslum við starf ferðamálanefndar samgrn. Ég bendi hv. þm. á fskj. I með þáltill. um ferðamálastefnu þar sem er á ferðinni greinargerð þessa tölfræðihóps um athugun á samkeppnisstöðu og rekstrarskilyrðum ferðaþjónustunnar. Þar eru grundvallarupplýsingar dregnar saman, sumar hverjar í fyrsta sinn í sögunni, enda rákust starfsmenn á það að nauðsynlegt var að vinna ýmsa hluti frá grunni, flokka upplýsingar sem aldrei höfðu áður verið flokkaðar þannig að unnt væri að lesa hlutdeild ferðaþjónustunnar sem atvinnugreinar út úr þeim upplýsingum. Ég held að þessi vinna sé í raun og veru mjög merk og ég bendi hv. þm. á að kynna sér hana. Hún tekur yfir drjúgan hluta af fylgiskjölum með þessari þáltill. Þorrinn af þessu þskj., þ.e. bls. 24 -- 69, eru þessar upplýsingar um samkeppnisstöðuna o.fl. Þar held ég að hv. þm. finni mikið af þeim upplýsingum og þeim svörum sem hann var að leita eftir með spurningum sínum um daginn. Það er að sjálfsögðu á grundvelli þessara upplýsinga og þessarar úttektar sem menn hyggjast byggja aðgerðir til að styrkja samkeppnisstöðu ferðaþjónustunnar og bæta starfskjör hennar og jafna með hliðsjón af því hvernig hún kemur út í samanburði við aðrar atvinnugreinar og í samanburði við ferðaþjónustu erlendis sem hún auðvitað keppir við upp að vissu marki.
    Ég held að ég hafi þá, herra forseti, komið í eins örstuttu máli og mér er kostur inn á þau helstu atriði sem hv. þm. nefndi í sínu máli. Auðvitað má endalaust deila um það hvort í svona útgáfum sé fundið hið eina rétta skipulag fyrir svona atvinnugrein og auðvitað veit maður að það er ekkert þúsund ára hús sem verið er að byggja með þessu frv. og þessari þáltill. En samt er það nú svo að tekist hefur í raun og veru mjög góð samstaða um þetta mál þó að auðvitað hafi einstakir aðilar og einstakir hv. þm. eðlilega gert athugasemdir við ákveðin atriði.
    Ég leyfi mér að fullyrða að það sé góð samstaða meðal helstu hagsmunaaðila í ferðaþjónustu, flugfélaga, hóteleigenda, ferðaskrifstofa, veitinga - og gistihúsasamtaka, ferðaþjónustuaðila úti um landsbyggðina og annarra þeirra sem leitað hefur verið til. Þetta geta menn sannfærst um af umsögnum þeirra um frv. og þáltill. Og svo vel hefur tekist til að í ferðamálanefnd samgrn., hvar áttu sæti beint eða óbeint fulltrúar allra stjórnmálaflokka, og í samgn. Nd. tókst alger

samstaða um afgreiðslu þessa máls og öll nefndin stóð að sameiginlegri tillögu um að frv. næði hér fram að ganga með ákveðnum breytingum utan það að einn hv. alþm. hafði þar á fyrirvara. Ég hef því bundið vonir við það, herra forseti, að áfram gæti það andrúmsloft ríkt um þetta mál. Það er auðvitað ákaflega farsælt ef málefni heilla atvinnugreina ber þannig að hér í þinginu að um starfsgrundvöll þeirra og skipulag getur tekist þokkaleg samstaða. Í þessum greinum starfar fólk með allar stjórnmálaskoðanir, að sjálfsögðu, og að stjórnun þessara mála koma mismunandi einstaklingar. Þar kemur maður í manns stað og þess vegna er það þeim mun skynsamlegra, held ég, ef svo vel tekst til að þokkaleg pólitísk sátt ríkir um þann starfsgrundvöll sem greinarnar búa við. Ég tel að allar forsendur séu fyrir hendi að svo geti gerst nú. Ég minni á að þetta er að verulegu leyti byggt á stofni gildandi laga um skipulag ferðamála og málefni veitinga - og gistihúsaeigenda, sem forveri minn ágætur í starfi, hv. 1. þm. Vestf., hygg ég að ég muni rétt, Matthías Bjarnason, beitti sér fyrir og kom í gegnum Alþingi á árunum 1984 -- 1985. Mér er engin launung á því að ég tel að þar hafi verið unnið gott starf sem eigi sinn þátt í því eftir atvikum að ferðaþjónustan hefur blómgast hér undanfarin ár. Það var reynt að byggja á því helsta í þeim lögum og að aðlaga ákvæði þeirra að breyttum tímum og nýju aðstæðum í greininni og það er stofninn í þessum þingmálum tveimur, sem fyrir þinginu liggja, annars vegar þessu frv. hér í hv. deild og hins vegar till. til þál. í Sþ.
    Herra forseti. Ég vona að þetta hafi svarað hv. þm.