Friðrik Sophusson :
Virðulegi forseti. Ágreiningur um þessa grein er ekki efnislegur heldur formlegur. Við sem tókum þátt í starfi nefndarinnar og skiluðum nál. með meiri hl. nefndarinnar, tveir sjálfstæðismenn, töldum rétt að viðskrh. setti nefnd til þess að undirbúa tillögur um framtíðarskipan innlánsdeilda samvinnufélaga. Okkur finnst hins vegar óþarfi og í raun og veru óeðlilegt að slík nefndarskipan verði lögfest eins og hér er gert ráð fyrir. Þess vegna greiði ég ekki atkvæði.