Stjórnarráð Íslands
Mánudaginn 11. mars 1991


     Jón Kristjánsson :
    Herra forseti. Ég vil taka það fram að ég er ekki kominn hingað til þess að standa í svörum fyrir ríkisstjórnina heldur vil ég útskýra sem formaður allshn. Nd. að við sendum þetta frv. til umsagnar nefndar sem var að undirbúa frv. um Stjórnarráð Íslands. Við fengum svar frá þeirri nefnd þar sem hún lagðist ekki gegn því að þetta frv. yrði afgreitt sérstaklega. Ég vildi láta þetta koma fram til skýringar en mér er ekki kunnugt um hvenær kemur fram frv. um breytingar á Stjórnarráðinu í heild.