Frsm. atvmn. (Árni Gunnarsson) :
    Virðulegi forseti. Atvmn. Sþ. hefur fjallað um till. til þál. um aukinn þátt bænda í landgræðslu - og skógræktarstarfi. Umsagnir bárust nefndinni frá Landvernd, Landgræðslu ríkisins, Búnaðarfélagi Íslands, Stéttarsambandi bænda og Skógrækt ríkisins. Það er einfalt að greina frá því að nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt án breytinga.
    Matthías Á. Mathiesen og Ólafur Þ. Þórðarson voru fjarstaddir afgreiðslu málsins, en undir nál. rita nöfn sín sá sem hér stendur, hv. þm. Geir Gunnarsson, Jón Kristjánsson, Geir H. Haarde og Kolbrún Jónsdóttir.