Friðrik Sophusson (um þingsköp) :
Virðulegi forseti. Hér hafa komið fram ítrekaðar óskir af hálfu fulltrúa Kvennalistans sem talaði áðan í þessu máli að viðstaddir umræðuna verði aðrir hæstv. ráðherrar sem fara með þetta mál að því leyti til sem það snýr að þeirra ráðuneytum. Það er auðvitað laukrétt sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni að yfirleitt nægir að sá ráðherra sem með viðkomandi mál fer sé viðstaddur, en í þessu máli horfir kannski dálítið öðruvísi við vegna þess að sjálf þáltill. er í raun og veru einskis virði. Hún fjallar ekki um annað en að hæstv. ráðherra og ríkisstjórn geri það sem auðvitað henni ber að gera, það sem tekið er fram í stjórnarsáttmála hæstv. ríkisstjórnar og allir ráðherrar eiga að gera, og það hefur aldrei staðið neitt á því að menn héldu áfram samningaviðræðum. Þær hafa staðið yfir um langt skeið án þess að nokkuð hafi verið samþykkt á Alþingi um það mál. Auðvitað er það rétt sem kemur fram í tillögunni að þegar samkomulag hefur tekist um orkuverð og mengunarvarnir skuli niðurstöður lagðar fyrir Alþingi. Það er afskaplega eðlilegt.
Málið er hins vegar þannig að það sem hefur þýðingu er það sem kemur fram í greinargerðinni. Og hvað skyldi það nú vera og undir hvaða ráðherra heyrir það? Það eru brtt. við lánsfjárlög, tvær tillögur. Önnur er heimild til að veita Vatnsleysustrandarhreppi lán til að kaupa jarðnæði fyrir nýtt álver og hin er síðan heimild Landsvirkjunar til lántöku vegna undirbúnings virkjana. Þessar tvær tillögur eru þær tillögur sem hafa þýðingu. Það eru þær sem hafa lagalega þýðingu í þessu máli og lánsfjárlög heyra að forminu til undir hæstv. fjmrh. Þess vegna er ekki óeðlilegt að hæstv. fjmrh. sé við, ekki síst í ljósi þess að þessar tillögur hafa ekki verið lagðar fram á Alþingi. Það má vera að hv. formaður fjh. - og viðskn., Páll Pétursson 1. þm. Norðurl. v., hafi þessar tillögur undir höndum. Ég hef ekki séð þær og á ég þó sæti í nefndinni.
Mér er sagt að hæstv. ráðherrar hafi á undanförnum dögum verið að slást um það hvaða brtt. eigi að gera við lánsfjárlagafrv. Og ástæðan fyrir því að ekki hefur verið hægt að klára lánsfjárlagafrv. í hv. nefnd er einfaldlega sú að hæstv. ríkisstjórn hefur ekki endanlega komið sér saman um það hvaða brtt. á að flytja við lánsfjárlagafrv. Það má vera að hæstv. ríkisstjórn hafi samþykkt það að leggja þessar tvær tillögur fyrir hv. nefnd, um það get ég ekkert sagt. Þær liggja ekki fyrir. Þær kunna að vera í vasa formannsins. Hann hefur ekki kynnt þessar tillögur fyrir nefndarmönnum. Ég veit hins vegar að hæstv. iðnrh. hefur kynnt fyrir stjórnarandstöðunni, fyrirliðum stjórnarandstöðunnar að ég held, efni þessara tillagna. En það gerði hann á sama tíma og hæstv. fjmrh. stóð bullsveittur í fjölmiðlum til að segja frá því að það væri aldeilis ekki tímabært að fjalla um þetta mál á Alþingi. Svo er hann bara einhvers staðar á fundi, í Keflavík eða einhvers staðar annars staðar, ég veit ekki hvar. Ég verð að segja, þó að ég geri ekki kröfu
til þess að fá hæstv. fjmrh. hingað í salinn af þessu tilefni einfaldlega vegna þess að ég styð þetta mál og vil að málið geti gengið fram, að mér finnst ekki óeðlilegt, ef hæstv. ríkisstjórn er áhugasöm um að koma þessu máli áfram, að hæstv. fjmrh. verði við þessa umræðu. Það er a.m.k. ljóst að það hefði sparað umræður um lánsfjárlög sem verða hér síðar á þessu þingi óhjákvæmilega og þar á meðal um tillögur sem snerta þetta mál.
En ég endurtek það að við viljum greiða fyrir þessu máli og þess vegna viljum við ekki gera kröfur um það að einhverjir hæstv. ráðherrar séu við, en ég skil vel sjónarmið hv. síðasta ræðumanns í þessu máli, fulltrúa Kvennalistans. Það væri auðvitað til viðbótar dálítið skemmtilegt, af því að ég heyri nú að hæstv. menntmrh. ætlar að taka til máls í þessari þingskapaumræðu, ef hæstv. landbrh. léti sjá sig hér við umræðuna, maðurinn sem sagði orðrétt, eins og Þjóðviljinn var að rifja upp um helgina: ,,Við munum aldrei láta byggja álver á Keilisnesi, aldrei.`` Þetta er sami maðurinn sem nú situr í hæstv. ríkisstjórn, ríkisstjórn sem er núna að ýta að kvöldlagi einfaldri, lítilli og reyndar einskis verðri þáltill. fram. Og það á að vera einhvers konar sýnishorn um það að nú ætli ráðherrann enn á ný að koma þessu máli í gegn með sínum hætti. Málið snýst ekki um þetta, málið snýst um lánsfjárlög og það er eðlileg krafa að hæstv. ráðherrar Alþb., sem mest hafa gapað í þessu máli, séu hérna viðstaddir til þess að svara fyrirspurnum sem auðvitað hlýtur að verða beint til þeirra. Og þótt máttur hæstv. menntmrh. sé mikill, þá hefur hann kannski minna en aðrir hæstv. ráðherrar Alþb. fjallað um þetta mál. En það litla sem hann hefur lagt til málanna hefur ekki verið neitt sérstaklega jákvætt eða til þess að ýta undir það að hrein eining ríki í hæstv. ríkisstjórn um þetta mál. ( Menntmrh.: Mennt er máttur.) Við látum á það reyna hér í þinni ræðu.