Flm. (Friðrik Sophusson) :
Virðulegi forseti. Ég átti nú satt að segja ekki von á því að flytja þessa framsöguræðu hér í kvöld. Þetta var 21. mál á dagskrá í Sþ. og fundur hófst ekki fyrr en kl. 4 síðdegis. Satt að segja hafði ég undirbúið mig undir þátttöku í umræðum um þáltill. vegna álvers á Keilisnesi. En allt um það, ég fagna því að sjálfsögðu að fá tækifæri til þess að segja hér örfá orð um þetta dagskrármál. Sjálfur á ég orðið nokkuð gott safn gagna um málið sem gæti komið hv. nefnd, sem fær málið til umfjöllunar, til góða en mér hefur ekki gefist tími til þess að ná í þau gögn þar sem svo brátt ber að að ég þurfi að flytja þessa ræðu.
Þessa tillögu flytja fulltrúar úr öllum þingflokkum. Þeir eru auk mín hv. þm. Jóhann Einvarðsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Geir Gunnarsson, Kristín Einarsdóttir og Guðmundur Ágústsson.
Tillagan fjallar um það að ríkisstjórninni verði falið að gera ráðstafanir til að
takmarka lausagöngu búfjár, annars vegar við þjóðvegi og hins vegar þar sem gróður er viðkvæmur fyrir beit. Í tillgr. er gert ráð fyrir að hæstv. ríkisstjórn feli Landgræðslu ríkisins í samvinnu við gróðurverndarnefndir, en þær eiga að starfa samkvæmt lögum, að gera áætlun um gróðurvernd og uppgræðslu og halda áfram samningum við bændur um afmörkun og staðsetningu beitarhólfa fyrir takmarkaðan fjölda búfjár.
Tildrög þess að þessi tillaga er flutt er samþykkt sem gerð var á náttúruverndarþingi sem haldið var hér í borg í október 1990, en þar var skorað á hv. Alþingi og stjórnvöld að beita sér fyrir friðun í landnámi Ingólfs fyrir lausagöngu búfjár og ganga nú þegar til samninga við bændur og aðra þá er málið varðar.
Í framhaldi af þessari samþykkt gerðist það að nokkur félagasamtök tóku sig saman og sendu hv. Alþingi áskorun um að taka málið fyrir. Þessi áskorun er birt sem fskj. með tillögunni en undir hana rita frú Herdís Þorvaldsdóttir fyrir hönd Lífs og lands, frú Auður Sveinsdóttir fyrir hönd Landverndar og Arinbjörn Kolbeinsson fyrir hönd Árnesingafélagsins í Reykjavík.
Það kemur einnig fram með áskoruninni á fskj. að nokkur önnur áhugafélög um þetta mál óskuðu eftir að styðja áskorun þessa. Ekki verður hér lesin þessi áskorun. Hún liggur fyrir í prentuðu formi á þskj. En í tilefni hennar sendi sá sem hér stendur málið til Ingva Þorsteinssonar og bað hann að gera grein fyrir afstöðu sinni til efnisatriða í þeirri tillögu sem samþykkt var á sínum tíma á náttúruverndarþingi. Í örstuttu máli kemur fram í umsögn Ingva að hann telji að flest þau rök sem koma fram í áskoruninni séu rétt og undir þau vill hann taka, en hann bendir hins vegar á að á þessu stigi málsins sé rétt að undanskilja Kjalarnes og Kjós á þeim grundvelli að þar sé varla hægt að telja að um umtalsverða gróður - eða jarðvegseyðingu sé að ræða. Og hann bendir reyndar á að gróðurfar á því svæði sé í eðli sínu slitsterkt og þar hafi átt sér stað talsverð fækkun á sauðfé á síðasta
áratug.
Eftir að hafa síðan rætt við fulltrúa Búnaðarsambands Kjalarnesþings, en verulegur hluti af landnámi Ingólfs heyrir undir Búnaðarsamband Kjalarnesþings, var tekið það ráð að breikka tillöguna og láta hana ekki einungis ná til landnáms Ingólfs heldur einnig til annarra staða á landinu. Einnig var ákveðið að hafa tillgr. á þá leið að ríkisstjórninni væri falið að takmarka lausagöngu búfjár við þjóðvegi ekki síður en þar sem gróður er viðkvæmur.
Það er von flm. að það sé mikil samstaða um þetta mál hér á þinginu. Auðvitað er langt liðið á þingið og þess vegna varla við því að búast að hv. nefnd sem fær þetta mál til meðferðar geti afgreitt málð á þeim örfáu dögum sem eftir lifa þingsins. Sé það hins vegar þannig að hv. nefnd sjái sér það fært er það vissulega fagnaðarefni.
Ég tel ekki ástæðu til þess, virðulegi forseti, að gera ítarlega grein fyrir því sem kemur fram í áliti Búnaðarsambands Kjalarnesþings, en vísa til fylgiskjals V sem birtist með tillögunni. Þar koma fram sjónarmið Búnaðarsambandsins og jafnframt upptalning á ýmsum gögnum sem varða þetta mál.
Ég tel ástæðu til þess, virðulegi forseti, að benda á að þegar hafa verið gerðir allmargir samningar um takmörkun á lausagöngu búfjár í landnámi Ingólfs, en því miður verður að segja þá sögu eins og hún er, að stjórnvöld hafa ekki að öllu leyti fylgt eftir þeirri samningsgerð með þeim hætti sem viðunandi er fyrir þá bændur sem eru á þessu svæði.
Á fskj. III er tafla yfir stærð og fjölda sauðfjárbúa í landnámi Ingólfs eins og þau voru 1987 -- 1988 og er þá miðað við vetrarfóðraðar kindur. Á þeirri töflu sést hve búin eru stór en aðeins eitt bú hefur meira en 700 vetrarfóðraðar kindur. Hin búin eru smærri og langflest mjög smá ef hægt er að tala um bú í þessu sambandi því 63 bú hafa aðeins 10 -- 25 kindur.
Á bls. 6 á fskj. IV kemur glögglega fram hvað hefur verið að gerast í landnámi Ingólfs á undanförnum árum varðandi fjölda sauðfjár. Eins og talnaglöggir og fjárglöggir menn sjá í sjónhendingu hefur sauðfé fækkað verulega á þessu svæði á undanförnum árum og áratugum. Ef fram heldur sem horfir má gera ráð fyrir því að sauðfjárbeit á þessu svæði verði ekki verulegt vandamál innan tíðar. Auðvitað er það svo að nokkur hluti svæðisins er viðkvæmari en annar og þar hefur gróðureyðing orðið talsvert meiri. Ég leyfi mér að nefna í því sambandi sérstaklega Þingvallasveit og einnig Grafninginn, en vissulega væri kostur ef hægt væri að semja við bændur á þessu svæði um að koma í veg fyrir lausagöngu búfjár, hólfa féð af þannig að endurheimta mætti landgæði á þessum fallegu stöðum í landnámi Ingólfs.
Ég vonast til þess, virðulegi forseti, að þetta mál eigi greiðan aðgang gegnum þingið. Ég hef fullan skilning á því að vart er hægt að búast við því að á þeim fáu dögum sem eftir eru af þessu þingi verði hægt að afgreiða málið. En strax í upphafi næsta þings ætti að vera auðvelt vegna mikils stuðnings við þetta mál að samþykkja um þetta þál. og senda til
stjórnvalda. Ég hef átt viðræður við fulltrúa Landgræðslunnar og veit að hjá Landgræðslunni er mikill áhugi á því að fylgja þessu máli eftir.
Að lokum geri ég tillögu um það að málið verði sent hv. atvmn. og vonast til þess, ef hún á eftir að funda frekar á yfirstandandi kjörtímabili, að hún taki málið fyrir og ef kostur er afgreiði það á yfirstandandi þingi.