Frsm. 1. minni hl. allshn. (Danfríður Skarphéðinsdóttir) :
    Virðulegur forseti. Það eru mjög mikilvægar upplýsingar sem hafa komið fram hér í þessari umræðu um orð og yfirlýsingar hæstv. fjmrh. um að án skilyrða verði sett heimild inn í lánsfjárlög um 100 millj. kr. til þess að ganga til samninga um kaup á björgunarþyrlu.
    Afstaða okkar í Kvennalistanum til þessa happdrættis hefur komið skýrt fram í umræðum fyrr um málið. Við teljum það óverjandi með öllu að verið sé að láta lotterí ráða því hvort og hvenær þyrla verður keypt. Við erum á móti þessu ákvæði í fjárlögum þar sem segir að til þurfi að koma önnur fjáröflun, m.a. happdrætti. Það er með öllu óverjandi fyrir þjóð sem byggir alla sína tilveru á því sem úr hafinu kemur að hafa ekki nauðsynleg björgunartæki fyrir það fólk sem er reiðubúið til að vinna störf úti á sjó. Ég tíundaði nánar við 2. umr. um málið hin fjölmörgu önnur hlutverk sem björgunarþyrlan gegnir, hvernig hún hefur margsannað gildi sitt. En ég vil taka undir orð hv. síðasta ræðumanns, 6. þm. Reykn., um að gefinn verði frestur til þess að afgreiða þetta mál þangað til fyrir liggur alveg endanlega með hvaða hætti sú tillaga verður afgreidd sem hefur verið boðuð af hálfu hæstv. fjmrh. í lánsfjárlagafrv. sem nú er til umfjöllunar í hv. Nd.
    Það er ljóst að happdrættið sem hér er verið að leggja til að sett verði á stofn er með öllu óútfært. Það liggja engar áætlanir fyrir um hvernig það skuli skipulagt og hvaða fjármuni það kunni að gefa. Ég held því að sú niðurstaða sem nú virðist liggja fyrir ætti að vera sú niðurstaða sem allir þingmenn geta sameinast um vegna þess að hér er þó örugglega verið að leggja fram heimild til að taka lán að upphæð 100 millj. kr.
    Ég ítreka það enn og aftur að kaup á björgunarþyrlu á að fjármagna úr sameiginlegum sjóðum þessarar þjóðar og það þarf að hraða því að þyrlan verði keypt.