Eyjólfur Konráð Jónsson :
Hæstv. forseti. Ég var nú að vonast til að ég þyrfti ekki að taka til máls. Ég vænti þess að formaður hv. allshn. mundi kalla nefndina saman til þess að reyna að leysa mál sem er raunar þegar leyst ef menn vilja. Það er búið að lýsa því yfir skýrt og skilmerkilega að inn í lánsfjárlög verði tekin 100 millj. kr. heimild til hæstv. fjmrh. að semja um kaup á þyrlu og taka til þess nauðsynleg lán. Og hann er búinn að lýsa því yfir, ráðherrann, ég skildi hann svo, að það standi ekkert á því að vinda að því bráðan bug að kaupa þyrlu. Það tekur auðvitað einhvern tíma að velja hana o.s.frv. Auðvitað nægir þessi upphæð ekki til að greiða þyrluna í heild. En hún nægir að sjálfsögðu til að festa kaup á þyrlu og gera undirbúningsráðstafanir þannig að enginn dráttur verði á málinu. Þyrlan kemur og full heimild er til þess. Hvort hún svo kostar 400 millj. eða 500, 600 eða 700 eða hvað það nú verður, ég sé ekki eftir því. Mér finnst það eiginlega vansæmd að við séum að rífast um það hvaðan þetta fé komi. Það kemur auðvitað úr vösum íslenskra borgara í heild hvaða leið sem valin er. Við skulum alveg gera okkur grein fyrir því. En ef það er nokkuð sem við eigum ekki að víla fyrir okkur að taka erlent lán til þá er það auðvitað til Landhelgisgæslunnar og fyrst og síðast til að styrkja og treysta öryggi okkar sjómanna.
En við skulum nú líka huga að því að menn voru ekki hér fyrrum að tvínóna við það að taka lán, jafnvel erlend, til þess að eignast varðskip. Þau eru kannski lítil á mælikvarða í dag, en Íslendingar hafa sem betur fer haft vit á því að reyna að tryggja lífsbjörg sína og réttindi og ekki verið að rífast um það hvort ætti að sjá vel fyrir Landhelgisgæslunni.
Það er nýr tími í þinginu síðustu áratugina að það er varla hægt að ræða um Landhelgisgæsluna, að sjá henni fyrir nægilegum peningum. Eftir þorskastríðin féll þetta eiginlega alveg niður og við erum öll samsek í því að láta það gerast. Landhelgisgæslan hefur aldeilis ekki lokið sínu hlutverki. Við erum að vinna stórkostleg réttindi, bæði á Reykjaneshrygg, Rockall-svæðinu og víða í kringum okkur og það er algerlega óhjákvæmilegt að verja þessi réttindi. T.d. á Reykjaneshrygg er það svo að erlendir togarar eru tugum saman, jafnvel 100 í einu að sarga þar á miðum sem við eigum og við þurfum svo sannarlega að tryggja fjárhagslegan rétt okkar.
En það er ekki aðalatriðið. Hitt er það að við eigum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja öryggi okkar sjómanna sem afla þegar á allt er litið alls þess fjár sem við erum svo að ráðskast með hér. Þetta er fé sjómannanna og útgerðarinnar og þar með landsmanna allra og alþingismenn eiga ekki að vera að skera það niður eða setja sérstaka skatta á eða svo að ég tali nú ekki um eitthvert happdrætti. Mér finnst sem sagt að við eigum að ganga frá málinu og ég hefði talið eðlilegast að við gerðum það í nefndinni, við næðum þar heildarsáttum. Það er raunar ekkert um að sættast lengur. Það liggur fyrir að
þyrlan verður keypt og málið er þess vegna í höfn. Samt vilja einhverjir fara að knýja fram atkvæðagreiðslur um happdrætti eða lotterí eftir að búið er að bjarga málinu. Málið er í höfn. Það er búið hér með yfirlýsingu ráðherrans og flutningi tillögunnar í Nd. Málinu er lokið. En það á núna að fara að vekja það upp aftur, annaðhvort með eignarsköttum, sem ekki eru nú vinsælastir, eða einhverju lotteríi, sem kemur ekki fyrr en eftir mörg ár, og þyrlan þá ekki fyrr en eftir aldamót, ef hún kemur þá einhvern tíma. Að fara að vekja málið upp aftur þegar búið er að koma því í höfn fyrir nokkrum mínútum. Það liggur fyrir að þyrlan verður keypt. Fjár hefur verið aflað og þá liggur auðvitað alveg beint við að hætta þessum deilum hér og eðlilegast væri að gera það formlega í nefndinni. Ég óska þess enn við hv. formann, sem ég veit að vill nákvæmlega jafngott í þessu máli og allir aðrir alþingismenn, að við setjumst niður í rólegheitum og ræðum málið og það sé þar með út úr heiminum.