Veiting ríkisborgararéttar
Þriðjudaginn 12. mars 1991


     Skúli Alexandersson :
    Herra forseti. Allshn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um frv. um veitingu ríkisborgararéttar. Að venju hafa formenn allshn. deildanna farið yfir umsóknir ásamt nefndarritara og lagt tillögur til breytinga fyrir nefndina. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali.