Sólveig Pétursdóttir :
Hæstv. forseti. Við hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir höfum í hv. menntmn. lýst furðu okkar á vinnubrögðum þar, og það álit kemur einnig fram í nál., þar sem að okkar mati var eftir mikil efnisleg vinna við frv. því að hér er um mjög yfirgripsmikið mál að ræða og afar mikilvægt á þjóðfélagslega vísu. Með því að málsmeðferðin er með þessum hætti gerir ríkisstjórnin greinilega ekki ráð fyrir samráði við ákveðna stjórnmálaflokka. Slíkt hlýtur að renna stoðum undir þann grun að ríkisstjórnin og þó einkum menntmrh. hafi takmarkaðan áhuga á raunverulegum framgangi þessa máls en markmiðið sé öllu fremur að koma frv. til endanlegrar afgreiðslu fyrir þinglok sem nú eru mjög skammt undan, enda alþingiskosningar á næsta leiti.
Fyrir utan þær miklu athugasemdir sem gerðar hafa verið við frv. af hálfu sjálfstæðismanna, m.a. varðandi valddreifingu , þá er ljóst að taka þarf miklu skýrar á öllu samráði við sveitarfélögin því að án samráðs við þau er hæpið að nokkuð verði úr þeim framkvæmdum sem fyrirliggjandi frv. gerir ráð fyrir. Löggjafarvaldið hlýtur að verða að taka mið af því hvort lagasetning eins og sú sem hér er gert ráð fyrir hafi í raun áhrif til breyttrar og bættrar réttarstöðu. Ég tel að hér vanti mikið á til þess að réttarstaða grunnskólabarna sé raunverulega bætt og mun því ekki greiða atkvæði.