Anna Ólafsdóttir Björnsson :
Virðulegi forseti. Ég held að það blandist ekki nokkrum manni hugur um að þörf er á þeirri heildstæðu athugun á málefnum Atvinnuleysistryggingasjóðs sem hv. 5. þm. Norðurl. v. boðaði. Þar er hins vegar um mjög viðamikið verkefni að ræða og ég tel ekki nokkuð mæla með því að sú leiðrétting, sem meiri hl. nefndarinnar leggur til að verði gerð, nái fram að ganga áður en það verður. Allt réttlæti mælir með því. Það dregur ekki úr því að þörf sé á að stokka þessi mál upp á nýtt og undir það munu allir taka.
Eins og fram kom, ekki síst hjá fulltrúum ASÍ, á fundum nefndarinnar, þá er þar um mjög viðamikið og flókið mál að ræða, einkum vegna þess hve vinnumarkaðurinn er nú að breytast og hve margir eru nú með óljósan rétt og óljósar skyldur á vinnumarkaði. Vil ég enn og aftur minna á það að við kvennalistakonur höfum flutt mál sem varðar þetta sérstaklega og hefur því verið vísað til ríkisstjórnarinnar með fyrirheitum um að einhverjar úrbætur verði. Ég vona að til þess komi.