Atvinnuleysistryggingar
Þriðjudaginn 12. mars 1991


     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason) :
    Herra forseti. Það er nú verið að skipa nefnd til þess að endurskoða í heild lög um Atvinnuleysistryggingasjóðinn þar sem aðild eiga að fulltrúar Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins en auk þess munu að þeirri endurskoðun koma fleiri aðilar vegna þess að með þeim breytingum sem gerðar voru á lögum í vetur og fjalla um tryggingagjald kann að vera eðlilegt að fleiri eigi aðild að Atvinnuleysistryggingasjóði með einum hætti eða öðrum. Ég tel því eðlilegt að frv. sé vísað til ríkisstjórnarinnar og málið í heild fái athugun í þessari nefndarvinnu og segi því já.