Atvinnuleysistryggingar
Þriðjudaginn 12. mars 1991


     Friðrik Sophusson :
    Virðulegi forseti. Þegar frv. um tryggingagjald var til umræðu í hv. fjh.- og viðskn. var skýrt tekið fram af hálfu þeirra sem þar mættu fyrir hönd hinna nýju greiðenda, sem eru einyrkjar, þar á meðal bændur, að þeir teldu að breyta þyrfti þessum lögum eins og kemur fram í því frv. sem nú er verið að leggja til að vísa til hæstv. ríkisstjórnar. Á þeim fundi var fulltrúi Alþýðusambands Íslands og mátti honum þá þegar vera kunnugt um að þessi beiðni kæmi fram, enda er hún afar eðlileg. Ég vísa því þess vegna á bug að hér skuli menn ræða um að það sé einhver ósvinna að samþykkja þessi lög á afmælisdegi Alþýðusambandsins. Ég tel þetta réttlætismál og eðlilegt að það sé samþykkt hér og nú og segi nei við þessari frávísunartillögu.