Umhverfisráðherra (Júlíus Sólnes) :
Virðulegi forseti. Ég vil fyrir mitt leyti þakka fyrir þær undirtektir sem þetta frv. hefur fengið hjá hv. þm. sem báðir áttu sæti í þeirri nefnd sem undirbjó frumtillögur þær sem frv. byggir að verulegu leyti á. Vildi ég í leiðinni nota tækifærið og þakka þessum tveimur hv. þm. fyrir þeirra störf sem þeir lögðu fram til þess að þetta mál mætti ná fram að ganga.
Ég get tekið undir það með hv. þm. að ég hef sjálfur orðið fyrir nokkrum vonbrigðum með að það skyldi tefjast svo sem raun ber vitni að koma þessu máli inn í þingið. Þar er lítið annað hægt að segja en að það hefur að verulegu leyti háð starfsemi ráðuneytisins að við höfum verið frekar fáliðuð og það var ekki fyrr en eftir áramót að við fengum starfsmann sem gat farið í það verkefni að fara yfir upphaflegt frv. og meta það út frá sjónarhóli ráðuneytisins. Síðan má einnig segja að það hafi farið mikill tími í alls konar skipulagningu á starfsemi ráðuneytisins, m.a. við grundvallarhluti eins og að koma upp viðunandi starfsaðstöðu, skrifstofuhúsnæði fyrir ráðuneytið, og það hefur mjög tafið öll þau verkefni sem ég hefði viljað leggja meiri áherslu á. Þess vegna hef ég orðið að hlíta því, því miður, að mörg þau verkefni sem við höfum verið að vinna að og eru sum hver mjög mikilvæg mál koma nú inn í þingið á allra síðustu dögum og ná vart að fá afgreiðslu áður en þingi lýkur í vor. En betra er seint en aldrei. Það er, eins og kom fram í máli hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar, betra að sýna málið og hefja undirbúning að því að það hljóti fullnaðarafgreiðslu frá Alþingi á næsta þingi þegar málið verður vonandi lagt fyrir á nýjan leik.
Varðandi þær spurningar sem hv. þm. hafa beint til mín þá er það rétt að við gerðum fyrst og fremst breytingar á stjórn Náttúrufræðistofnunar Íslands. Við töldum að það væri ekki hægt að ganga fram hjá því að aðalsetur stofnunarinnar verður hér í Reykjavík. Þar verður Náttúrugripasafnið og það er ekki fyrirsjáanlegt að neitt annað slíkt safn rísi á landinu. Það hlýtur því, eðlis síns vegna, ævinlega að verða svo að setrið í Reykjavík verður langstærst og mikilvægast og því er ekki talið óeðlilegt að það verði leiðandi í starfsemi þessarar stofnunar. Við töldum að athuguðu máli og að höfðu samráði við hina ýmsu sérfræðinga sem þekkja til þessara mála að það væri skynsamlegt að það væri einn forstöðumaður Náttúrufræðistofnunar Íslands sem væri um leið forstöðumaður setursins í Reykjavík þar sem það yrði langöflugasta stofnunin.
Það var haft samráð við aðila utan Reykjavíkur og m.a. við fulltrúa Náttúrufræðistofnunar Norðurlands á Akureyri, Tómas Inga Olrich menntaskólakennara. Eftir því sem ég fæ best skilið lagði hann blessun sína yfir þær breytingar sem hér hafa verið lagðar til og gat fallist á þær fyrir sitt leyti og taldi þær, ef eitthvað, til bóta.
Varðandi dómnefndir var það mat okkar að það væri óeðlilegt að stofnun eins og þessi réði starfsmenn sína á þann veg að skipaðar skyldu dómnefndir í hverju og einu tilviki. Það er rétt að það er gert hjá Háskóla Íslands. En mönnum þykir nú oft hjákátlegt hjá Háskóla Íslands þegar verið er að skipa dómnefndir til að meta hæfi umsækjenda sem síðan eru ráðnir á launakjörum sem eru með þeim lægri í þjóðfélaginu og væri nær að skipa dómnefndir og meta hæfi umsækjenda um bankastjórastöður og ýmsar aðrar æðri stöður í þjóðfélaginu. Manni finnst það stundum skjóta nokkuð skökku við þegar verið er að eyða miklu púðri í að meta hæfi umsækjenda um stöður sem veita laun sem eru með því lægra sem gerist í þjóðfélaginu. Þetta eru kannski ekki mikil rök og að sjálfsögðu þarf að gæta þess að starfsmenn við Náttúrufræðistofnun Íslands, eins og reyndar er um að ræða hjá Háskóla Íslands, þurfa að geta sannað hæfni og sýnt fram á starfsreynslu og menntun sem er við hæfi til þess að þeir geti sinnt þeim störfum sem þar þarf að vinna. Hins vegar hefur það ekki tíðkast við sjálfstæðar vísindastofnanir á Íslandi að það þurfi að grípa til þess að skipa dómnefndir til að athuga hæfi þeirra umsækjenda sem kunna að sækja um hinar ýmsu stöður sem eru til ráðstöfunar. Því töldum við eðlilegt að það væri svo með Náttúrufræðistofnun Íslands að hún lyti sömu lögmálum í þessu tilliti og aðrar stofnanir.
Virðulegi forseti. Ég vil svo að lokum ítreka þakkir fyrir undirtektir við þetta mál og vona að það fái skjóta afgreiðslu.