Ólafur G. Einarsson :
Herra forseti. Aðeins örfá orð því ég ætla ekki að tefja á nokkurn hátt afgreiðslu þessa máls. Ég þurfti að víkja af fundi þegar málið var til 2. umr. fyrr í dag. Við fulltrúar sjálfstæðismanna í allshn. höfum skrifað undir nál. og studdum afgreiðslu allshn. á þessu máli, frv. til laga um gjaldþrotaskipti, svo og næstu tveimur málum hér á dagskránni, meðferð opinberra mála og skipti á dánarbúum. Við styðjum þessi frv. en ég vil aðeins vekja athygli á því að þau vinnubrögð sem við verðum hér að hafa eru náttúrlega ekki sæmandi fyrir Alþingi eða fyrir Nd. Þessi mál eru öll komin frá Ed. og við efumst ekki um að þau hafi fengið þar ítarlega og góða meðferð. En hér í hv. Nd. gefst ekki sá tími sem raunverulega þarf til þess að afgreiða svo viðamikla lagabálka sem hér er um að ræða. Okkur er ljóst, eða því er a.m.k. haldið að okkur, að hér sé um verulegar réttarbætur að ræða og í sjálfu sér er engin ástæða til að draga það í efa. Þessi frv. þarf að samþykkja, ekki kannski endilega nú, en alla vega á haustþingi vegna þeirra breytinga sem verið er að gera á dómstólakerfinu, að skilja að framkvæmdarvald og dómsvald í héraði. Lögð hefur verið mikil áhersla á að afgreiða þessa lagabálka af þeim sem eiga að búa við þetta kerfi og þess vegna er það sem við féllumst á að stuðla að því að þessi lagafrv. næðu fram að ganga. En ég ítreka það að þessi vinnubrögð eru auðvitað ekki sæmandi. Við sáum það í atkvæðagreiðslu í dag þegar greidd voru atkvæði um 1. gr. frv. og síðan frá 2. gr. og allt upp í 198. og enginn tími gefst til þess að ræða málin á nokkurn hátt.
Ég tek það fram að ég er ekki að gagnrýna hvernig hv. formaður allshn. Nd. hefur haldið á þessu máli. Hann hefur gengist fyrir allmörgum fundum í nefndinni um afgreiðslu málsins en engu að síður gafst ekki tími til þess að lesa frv. yfir og við sjáum svo hvernig meðferðin er hér í hv. þingdeild að það treystir sér enginn til að taka til máls.