Frsm. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. (Friðrik Sophusson) :
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. 2. minni hl. hv. fjh. - og viðskn. en það er að finna á þskj. 888. Auk þess mun ég mæla fyrir brtt. sem eru á þskj. 889, fimm talsins.
Það frv. sem hér er til 2. umr. um fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri er að meginstefnu það sama og lagt var fram á 110. löggjafarþingi 1987 -- 1988 af ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar, en það frv. var samið af nefnd sem hann skipaði haustið 1987.
Hv. þm. Matthías Bjarnason hafði á sinni tíð sem viðskrh. látið semja ítarlega skýrslu um erlenda fjárfestingu og var sú skýrsla lögð fyrir Alþingi á sínum tíma. Það er því ljóst að það hafa fyrst og fremst verið sjálfstæðismenn sem hafa haft frumkvæði að því að breyta úreltum og reyndar sundurleitum lagaákvæðum um erlenda fjárfestingu og færa til samræmis við það víðtæka frelsi sem helstu viðskiptaþjóðir okkar hafa tekið upp á þessu sviði.
Það er augljóst eins og reyndar kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni að samstarf við erlenda aðila getur verið heppilegt og nauðsynlegt. Íslendingar hafa í gegnum tíðina tekið mikið að láni erlendis og orðið að borga erlendir skuldir sem oft hafa verið með bankaábyrgðum eða ríkisábyrgðum. Með því að eiga samstarf eins og gert er ráð fyrir í þessu frv. verður um áhættufjármagn að ræða, þ.e. að erlendir aðilar, fyrirtæki og einstaklingar, geta tekið þátt í atvinnulífi hér á landi með hlutafé og fjármunum sem eru lagðir í atvinnureksturinn og njóta þá arðs í samræmi við afkomu fyrirtækjanna en taka um leið þá áhættu að ef fyrirtækið gengur illa, þá missi þeir það fjármagn sem þeir hafa lagt í viðkomandi rekstur.
Það skiptir miklu máli að átta sig á að tækniþekking og markaðsþekking er orðin stór þáttur í verðmæti fyrirtækja og með auknu samstarfi við erlenda aðila má búast við því að til landsins berist slík tækniþekking og markaðsþekking.
Það er æskilegt enn fremur að lög og reglur um fjárfestingar erlendra aðila séu einfaldar, skiljanlegar og skýrar og að vald stjórnvalda sé lítið og skýrt þannig að þeim sem hugsanlega vildu fjárfesta hér á landi sé ljóst hver þeirra réttur er og hverjar eru skyldurnar.
Samningar um Evrópskt efnahagssvæði standa yfir um þessar mundir og senn má búast við því að þeim ljúki. Í þeim samningum er gert ráð fyrir víðtæku frelsi til fjármagnsflutninga og fjárfestinga yfir landamæri þeirra ríkja sem taka þátt í slíkum samningum, en það eru annars vegar ríkin í Evrópubandalaginu og hins vegar EFTA - ríkin og Lichtenstein. Án þess að enn sé vitað hvert kemur til með að verða efnisinnihald þeirra samninga, þá er ljóst að þetta frv. sem hér er til umræðu gengur ekki eins langt og hugmyndin er að samkomulagið um Evrópska efnahagssvæðið gangi út á. Þá er ekki verið að tala um sjávarútveginn í þessu sambandi því að enn er óljóst hvað verður um
hann og hvernig hann verður meðhöndlaður og fjárfestingar í sjávarútveginum í þeim samningum sem fara fram um Evrópska efnahagssvæðið.
Flestir þeir umsagnaraðilar sem sendu umsagnir til hv. nefndar lögðu til að heimildir erlendra aðila yrðu opnaðar meira en frv. gerir ráð fyrir.
Eins og ég sagði í upphafi þá flytur 2. minni hl. fjh. - og viðskn., en hann skipar auk mín hv. þm. Matthías Bjarnason, brtt. á þskj. 889. Breytingarnar bera þess merki að frv. kom seint fram á þinginu þannig að ekki hefur gefist tími eða tækifæri til að fara vandlega ofan í frv. en þó teljum við að með þessum tillögum náum við til flestra þeirra atriða sem umsagnaraðilar telja heppilegt og eðlilegt að breytt verði við meðferð málsins hér á hinu háa Alþingi.
Mig langar nú í stuttu máli til að gera grein fyrir þessum brtt. en þær eru fimm.
Í fyrsta lagi gerir frv. ráð fyrir ákveðnum reglum um fjárfestingar erlendra aðila í fiskvinnslu. Þessar reglur er að finna í 4. gr. frv. sem er takmarkandi grein en segja má að 3. gr. sé aðalgrein frv. Í 2. tölul. 4. gr. er rætt um fiskvinnslu og er töluliðurinn nokkuð flókinn að gerð. Þess vegna leggjum við til að breytingar verði gerðar á 2. tölul. og teljum skynsamlegt að fá erlent áhættufé í meiri mæli inn í fiskvinnsluna. Við teljum að sundurgreining sú sem frv. gerir ráð fyrir milli frumvinnslu annars vegar og fullvinnslu hins vegar sé nánast óframkvæmanleg. Við bendum á að reyking, súrsun, niðurlagning og niðursuða er ótvíræður iðnaður, enda eru þessar greinar flokkaðar með matvælaiðnaði en ekki fiskvinnslu í opinberri flokkun.
Nú er það svo að niðursoðnar og niðurlagðar sjávarafurðir eru með því fyrsta sem fram kom innan íslensks matvælaiðnaðar á sviði fullvinnslu. Lagmeti, en það er samheiti þessara afurða, er í allflestum tilfellum pakkað í neytendaumbúðir til dreifingar í verslanir. Starfsemi af þessu tagi er ekki hægt að flokka með frumvinnslu sjávarafurða og þá verður að telja mjög óheppilegt að reyking, mjölvinnsla og bræðsla séu hér undanskilin. Þess vegna er lagt til að súrsun, niðurlagning og niðursuða ásamt reykingu, bræðsla og mjölvinnsla falli ekki undir takmarkanir frv. og að fjárfestingar erlendra aðila í þessum greinum verði með sama hætti og í öðrum iðnaði. Ég vil taka það fram að þessi brtt. hróflar í engu 1. tölul. 4. gr. þar sem fjallað er um eignaraðild að fyrirtækjum sem veiða í íslenskri landhelgi.
Þá er í 2. brtt. 2. minni hl. lagt til að fellt verði niður ákvæði sem takmarkar erlenda fjárfestingu í flugrekstri við 49%, enda hafa engar röksemdir komið fram um það, hvorki í máli hæstv. ráðherra sem um þetta mál fjölluðu né heldur í nefndinni, sem benda til þess að það sé skynsamlegt að þessi takmörk séu í flugrekstrinum.
Í 3. brtt. er lagt til að í stað þess að takmarka eignarhald erlendra aðila í íslenskum viðskiptabönkum við 25% verði þeim veitt ótakmörkuð heimild í áföngum. Ekki verður séð að nauðsyn beri til að taka upp strangar reglur í þessum efnum varðandi hlutafélagabanka sem ganga stórum lengra en almennar reglur sem gilda eiga um fyrirtæki á sviði fjármagnsþjónustu í víðasta skilningi þess orðs, t.d. verðbréfafyrirtæki, vátryggingarfélög o.s.frv. Þess vegna er lagt til að sömu reglur skuli gilda um hlutafélagabanka og önnur fyrirtæki. Þetta gerist þó í áföngum samkvæmt þeirri brtt. sem við flytjum á þskj. 889 og er 3. brtt. á því þingskjali.
Þá gerum við ráð fyrir því að takmörkun sú sem frv. gerir ráð fyrir á heildarfjárfestingu erlends aðila á ári verði rýmkuð úr 250 millj. kr. í 1000 millj. kr., einn milljarð. Einnig er lagt til að þau ákvæði sem lúta að takmörkun við fjórðung af hverri atvinnugrein samkvæmt mati Þjóðhagsstofnunar verði felld í burtu í heilu lagi. Við teljum óframkvæmanlegt að meta þessa hluti eða draga skýrar markalínur milli atvinnugreina. Þá er enn fremur ótækt að löggjafinn framselji vald í hendur Þjóðhagsstofnunar með þeim hætti sem ráð er fyrir gert í frv. Það skal tekið fram að samkvæmt lagagreininni nú er vitnað til Þjóðhagsstofnunar í þessu sambandi og í niðurlagsorðum 7. tölul. 4. gr. segir að miða eigi við mat Þjóðhagsstofnunar. Verði þessu ekki breytt ræður það úrslitum um þetta atriði hvað Þjóðhagsstofnun gerir frá einum tíma til annars.
Síðasta tillagan sem flutt er á þskj. 889 felur það í sér að sú pólitíska eftirlitsnefnd sem ætlunin er að Alþingi kjósi verði felld niður. Ég vil geta þess, virðulegi forseti, að í fyrsta frv. sem flutt var af ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar og lagt fram á þingi á sínum tíma var gert ráð fyrir fagnefnd sem átti að vera skipuð af hinum mismunandi ráðuneytum. Af einhverjum ástæðum virðast núverandi stjórnarflokkar ekki hafa fallist á þá skipan en komið sér saman um það að Alþingi kjósi slíka nefnd. Við teljum að slík nefndarskipan um jafnviðkvæmt og mikilvægt málefni eins og hér er verið að fjalla um geti ekki valdið nema vandræðum. Sé nefndin skipuð út frá pólitískum sjónarmiðum getur það leitt til þess að framkvæmd laganna verði breytileg frá einum tíma til annars eftir því hvernig pólitískir vindar blása. Slíkt er auðvitað afar óæskilegt því að þeir sem vilja fjárfesta óttast mest af öllu óstöðugleika, þeir vilja skýrar og staðfastar reglur. Þá má benda á að ætlast er til þess að nefndin hafi til hliðsjónar afskaplega loðin og teygjanleg hugtök til að meta eftir. Og ég spyr, hæstv. forseti, hvort það sé ekki harla kynlegt þegar pólitískt kjörin nefnd á að fara að gefa hæstv. viðskrh. mat á því hvenær fjárfesting ógnar öryggi landsins og einnig hvað séu óæskileg áhrif. Slíkt mat býður upp á hreinar geðþóttaákvarðanir og þess vegna leggur 2. minni hl. til að 10. gr. frv. falli brott.
Við verðum að hafa það í huga að viðskrh. á hverjum tíma er í ríkisstjórn sem nýtur meirihlutafylgis á Alþingi. Ef slíkur ráðherra fer út fyrir eðlileg valdmörk sín í sínu starfi er hægt að flytja vantrauststillögu á hann eða ef samstarfsmenn í viðkomandi ríkisstjórn vilja ekki una slíku geta þeir auðvitað sagt slíku samstarfi lausu. Við teljum að það sé nægileg sú pólitíska ábyrgð sem viðskrh. á hverjum
tíma ber og ekki þurfi að kjósa pólitíska nefnd til þess að veita honum ráð og allra síst á slíkum grundvelli sem nefndur er til sögunnar í viðkomandi lagagrein.
Ég hef nú, virðulegi forseti, lýst þeim fimm brtt. sem 2. minni hl. flytur og gert grein fyrir meginsjónarmiðum 2. minni hl. Við teljum að þetta frv. sé skref í rétta átt og styðjum það en undirstrikum mjög rækilega að ef og þegar Ísland gerist aðili að Evrópska efnahagssvæðinu verður að taka öll þessi mál og miklu fleiri til endurskoðunar. Sú vinna sem nú á sér stað með því að ræða þetta frv. hér sparar í raun og veru ekkert þegar við höfum í huga hvað gera þarf vegna hugsanlegrar aðildar okkar að Evrópska efnahagssvæðinu.
Það eru tvö atriði í þessu frv. sem mig langar til þess að benda á til viðbótar og ég tel að menn ættu að velta fyrir sér hvort ekki hefði verið ástæða til að breyta og ég geri það þrátt fyrir að það hafi orðið að ráði hjá 2. minni hl. að flytja ekki brtt. um þau efni. Annað atriðið er að finna í lok 3. gr. frv. Þar er gert ráð fyrir svokallaðri gagnkvæmnisreglu. Þetta ákvæði var í upphafi að finna í 4. gr. þar sem fjallað var um viðskiptabanka en að kröfu ýmissa aðila, þar á meðal samtaka tryggingafélaga, var þessi gagnkvæmnisregla gerð að almennri reglu í frv. Það er auðskiljanlegt hvers vegna þetta er gert. Þetta er gert til þess að útlendingar fái ekki betri rétt hér á landi en við njótum í þeirra heimalöndum. Gallinn er hins vegar sá að mörg erlend fyrirtæki eru fjölþjóðleg og það kann að reynast afar erfitt að kanna hvort öll löndin, ef um marga eigendur frá mörgum löndum er að ræða, hafi reglur með þeim hætti að um fulla gagnkvæmni geti verið að ræða. Ég tel þess vegna að það sé ákaflega vandmeðfarið fyrir þann sem fylgja þarf þessum lögum eftir í reynd að fylgja þessu ákvæði 3. gr. laganna. Á þetta vil ég benda því að ég hygg að það komi brátt að því að þessu þurfi að breyta þótt ekki sé gerð tillaga um það hér og nú.
Reyndar væri ástæða til þess, virðulegi forseti, að fjalla hér um fjölmörg atriði frv. en seinna atriðið sem ég kýs að nefna sérstaklega er að finna í 2. mgr. 5. gr. frv. þar sem segir að Seðlabanki Íslands skuli fyrri hluta hvers árs birta opinberlega upplýsingar um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri hérlendis næsta ár á undan. Ég tel eðlilegt og nauðsynlegt að Seðlabankinn skrái og fylgist gaumgæfilega með því hvaða erlendir aðilar fjárfesta í íslenskum fyrirtækjum en ég skil ekki hvers vegna nauðsynlegt er að birta slíkt opinberlega á hverju ári. Slíkar upplýsingar ætti að vera hægt að fá hjá Seðlabankanum en að skylda Seðlabankann til þess að birta þessar upplýsingar getur aðeins orðið til þess að erlendir fjárfestar verði feimnir við að fjárfesta hér á landi vegna þess að af ýmsum ástæðum getur það verið svo að fyrirtæki kæri sig ekkert um að það sé auglýst opinberlega hvar þau fjárfesta, m.a. vegna viðskiptalegra sjónarmiða. Þessi tvö atriði kýs ég að nefna þótt af fleiru sé að taka, en þar sem ég vil heldur gera hér örstutta grein fyrir nokkrum atriðum sem komu fram í umsögn umsagnaraðila, þá ætla ég ekki að spjalla hér frekar um önnur atriði frv. nema þau sem sérstaklega verður vikið að í þeim völdu umsögnum sem ég mun nú aðeins fjalla um.
Vil ég þá byrja á því að nefna að í umsögn frá Sól hf. kemur fram að ekki gætir samræmis á milli lagatextans og textans í greinargerð vegna 2. mgr. 8. gr. fylgifrv. Auðvitað gildir lagatextinn en ekki greinargerðartextinn en þetta sýnir að í þeirri miklu samningalotu sem átt hefur sér stað á milli stjórnarflokkanna hefur þess ekki í öllum tilvikum verið gætt að breyta textanum í greinargerðinni til samræmis við þær breytingar sem gerðar voru á frumvarpstextanum sjálfum. Vissulega er ég þeirrar skoðunar að greinargerðartextinn sé betri en tel ekki ástæðu til að flytja hér brtt. þar að lútandi.
Það kann að vera athygli vert að vitna hér til umsagnar Þjóðhagsstofnunar en þar segir m.a., með leyfi forseta:
,,Reikna má með að ef af stofnun Evrópska efnahagssvæðisins verður þurfi að endurskoða ýmis ákvæði frv. eða laganna, eins og reyndar er tekið fram í greinargerð með frv. Jafnframt má reikna með að heimildir um erlenda fjárfestingu þarfnist frekari skoðunar á næstu missirum í ljósi örrar þróunar í nálægum löndum í þá átt að draga úr viðskiptahindrunum á þessu sviði.``
Hér lýkur tilvitnun í umsögn Þjóðhagsstofnunar og eins og heyra má benda þeir á að hér sé fullhægt af stað farið.
Eins og fram kom hjá hv. frsm. 1. minni hl. leggur 1. minni hl. til að breytt verði ákvæðum frv. sem snúa að útvarpsrekstri og vitnað er til meirihlutaálits útvarpsráðs í því sambandi. Ég vil leyfa mér að benda á að minni hluti útvarpsráðs, þrír af sjö fulltrúum í útvarpsráði, mig minnir að þeir séu sjö, eru annarrar skoðunar. Leyfi ég mér að vitna til álits minni hl. þar sem ég á ekki von á því að aðrir muni gera það hér í þessari umræðu. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:
,,Í fylgifrv. með frv. til laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri er að finna breytingar á ýmsum lögum sem snerta fjárfestingu erlendra aðila. Um útvarpsrekstur gilda sérstök lög, þ.e. útvarpslög nr. 68/1985. Þar er fjallað um eignaraðild útlendinga með eftirfarandi hætti: ,,Óheimilt er að veita erlendum aðila leyfi til útvarpsrekstrar né félagi eða stofnun þar sem eignarhlutdeild erlendra aðila er meiri en 10%.`` Síðan segir í áliti minni hlutans: ,,Nú er gert ráð fyrir að 2. tölul. 2. mgr. orðist eins og segir í frv.``
Síðan segir orðrétt, með leyfi forseta: ,,Í 3. gr. útvarpslaga er fjallað um þau skilyrði sem aðilar verði að uppfylla til að fá leyfi til reksturs útvarps. Þar kemur m.a. fram að stuðla skuli að almennri menningarþróun og efla íslenska tungu, halda í heiðri lýðræðisreglur, virða tjáningarfrelsi o.s.frv. Með slíkum almennum skilyrðum á að vera hægt að tryggja þann ramma sem löggjafinn telur æskilegt að starfað sé eftir. Við undirrituð teljum eðlilegt að almennar reglur gildi um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri,
þar með töldum útvarpsrekstri, og að grundvallarskilyrði varðandi útvarpsrekstur verði tryggð í útvarpslögum.``
Undir þetta rita Inga Jóna Þórðardóttir, Magnús Erlendsson og Rúnar S. Birgisson.
Það sem fram kemur í þessu minnihlutaáliti er það að minni hluti útvarpsráðs telur að hin almennu atriði dugi og það skipti mestu máli að útvarpslögin gildi og að því sé fylgt að þeir sem reki útvarp hér á landi stuðli að almennri menningarþróun, efli íslenska tungu o.s.frv. Sé þessu atriði fylgt eftir skipti minna máli hvort útlendingar eigi lítinn eða stóran hlut í útvarpsrekstrinum.
Menn gætu haldið að það væri eitthvað nýtt að útlendingar gæfu út rit hér á landi eða héldu úti útvarpsrekstri. Auðvitað vitum við að hver sá sem skilur útlensku, og reyndar hinir líka, getur hvenær sem er opnað fyrir útvarpið hjá sér og hlustað á erlendar útvarpsstöðvar. Armur stjórnvalda nær ekki til þeirra til þess að banna þeim slíkt. Ég veit meira að segja að margir hv. alþm. hafa hlustað á erlendar útvarpsstöðvar, BBC, norska útvarpið, sem flytur fréttir á stuttbylgju sem heyrast hingað, o.s.frv. o.s.frv. Ég minni enn fremur á að íslensk tímarit hafa verið gefin út af útlendum aðilum. Þar á meðal hélt Novolti, sovéska fréttastofan, úti tímariti hér á landi en því tímariti var alfarið ritstýrt af sovéskum aðilum. Enginn amaðist við því að þeir gæfu út hér á landi slíkt bréf þótt ýmsum þættu efnisatriðin í því ekki vera þess eðlis að heppilegt væri að Íslendingar læsu of mikið af þeim boðskap sem þar var að finna. Þær breytingar sem hér er verið að gera eru því í raun og veru ekki mjög miklar né mikilsverðar.
Þetta þýðir það, virðulegi forseti, að 2. minni hl. er ekki sömu skoðunar og 1. minni hl. hvað varðar þessi atriði sem ég hef hér verið að fjalla um. Ég bendi á að í umsögn Sölusamtaka lagmetis er farið fram á að gerð sé sú breyting sem við höfum gert tillögu um og er 1. brtt. á þskj. 889. Sú brtt. sem við flytjum þar og varðar lagmeti, þ.e. niðursuðu og niðurlagningu, er í fullu samræmi við óskir úr greininni sjálfri.
Samband íslenskra viðskiptabanka sendi inn umsögn. Þar segir m.a. að Samband íslenskra viðskiptabanka telji misráðið að takmarka eignaraðild erlendra aðila í íslenskum viðskiptabönkum við 25% hlutafjár. Þeir telja og segja að svo virðist sem slík takmörkun geti skert samkeppnisstöðu íslenskra banka gagnvart erlendum bankaútibúum. Samband íslenskra viðskiptabanka vekur einnig sérstaka athygli á því sem kom fram í fyrri umsögn viðskiptabankanna en þar var lögð áhersla á nauðsyn þess að innlendir aðilar geti innan vissra marka boðið fasteignir sem veð gagnvart erlendum lánardrottnum. Loks minnir Samband íslenskra viðskiptabanka á næstsíðustu málsgrein fyrrgreindrar umsagnar sem þeir vitna til, en þar segir að ekki virðist vera gert ráð fyrir að afnumdar séu verulegar takmarkanir á erlendri fjárfestingu á sviði loftferða og kaupskipaútgerðar. Með öðrum orðum, sú brtt. sem flutt er um viðskiptabankana af hálfu 2. minni hl. er í takt við óskir bankanna sjálfra. Ég legg
áherslu á að viðskiptabankarnir hér á landi telja að það geti komið sér vel fyrir þá í þeirra samkeppnisstöðu að þeir fái tækifæri til að eiga samstarf við erlenda aðila um bankastarfsemi hér á landi til þess að hafa í fullu tré við erlendu bankaútibúin sem ætlunin er að fái leyfi til þess að hefja rekstur hér á landi innan tíðar.
Verslunarráðið sendi inn langa umsögn sem því miður er ekki hægt að gera skil nema að litlu leyti í þessari ræðu. ( HG: Vitlaus?) Nei, hún er ekki vitlaus, eins og hv. frammíkallandi orðaði það, heldur vegna þess að hún er ítarleg og löng og gæti tafið það nokkuð að hv. þm. kæmist að með sína ræðu, þó að mér sé kunnugt um það að hann ætli að sitja hér a.m.k. út þennan mánuð og eitthvað fram í þann næsta. Það er fyrst og fremst af þeim ástæðum . . . ( HG: Ég er nú að hugsa um að sitja hérna næsta vetur líka.) Já, en ég vona þó að hv. þm. taki sér smá sumarleyfi, þó ekki væri nema í kringum kosningarnar. Ef hv. þm. óskar hins vegar eftir því að ég lesi nokkuð úr þessu þá skal ég verða við því og hefst nú lesturinn, með leyfi forseta:
,,Frv. ber þess merki`` og hér er vitnað til umsagnar Verslunarráðs Íslands að ósk frammíkallanda, hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar, og skal nú lesinn nokkur kafli:
,,Frv. ber þess merki að vera barn þess tíma sem er að hverfa. Andinn í frv. er nokkuð íhaldssamur og tæpast í takt við tíðarandann nú. Vantraust á þá erlendu aðila sem kæmu til með að fjárfesta hér á landi er rauður þráður í gegnum frv. Frjálslynd löggjöf sem leyfir erlendar fjárfestingar eftir almennum reglum hlýtur að vera einn af meginþáttunum í að opna íslenskt efnahagslíf. Jafnframt er mikilvægt að festa ríki í stjórnarframkvæmdum um allt er viðvíkur löggjöf um erlendar fjárfestingar. Íslensk fyrirtæki og einstaklingar munu á næstu árum verða að stórauka samskipti sín og viðskipti við erlenda aðila. Útflutningur verður að stóraukast og með aukinni velsæld mun þjóðin hafa efni á meiri innflutningi. Í framtíðinni verður atvinnulífið að hafa möguleika á mun nánara samstarfi við erlenda aðila en nú er hægt og greiðar leiðir til fjárfestinga íslenskra aðila erlendis og erlendra aðila að íslenskum fyrirtækjum er undirstaða þess að unnt sé að hagnýta þau tækifæri sem bjóðast. Íslenskt atvinnulíf verður að hafa greiðan aðgang að erlendu áhættufé til þess að standast erlendum keppinautum snúning.``
Fleira í þessum dúr er að finna í umsögninni og ég verð að segja að fáar umsagnir eru skýrari og betri og meira og betur í takt við tímann en þessi umsögn sem ég hef hér vitnað til. Ég vonast þess vegna, virðulegi forseti, til þess að hv. þm. átti sig á því að í þessari umsögn er ýmis gullkorn að finna sem ég hygg að holl séu aflestrar þeim sem enn hafa ekki áttað sig á því hvernig góðum lífskjörum verður náð í framtíðinni, um samvinnu á milli þjóða, samvinnu um það sem máli skiptir og það er að hér á landi geti menn haldið í við lífskjör annarra landa og að hér á landi verði notaðar vestrænar leikaðferðir í efnahagsmálum,
svo ég vitni í frægt orðalag sem á sínum tíma var notað af hæstv. forsrh. til að gefa það í skyn að núv. hæstv. ríkisstjórn ætlaði ekki að fara að slíkum leikaðferðum. Niðurstaðan hefur orðið sú að sá hinn sami hæstv. forsrh. hefur á þessu stutta stjórnartímabili vitkast svo að hann stendur nú að því að færa þetta frv. inn á hið háa Alþingi en var á sínum tíma á móti því að slíkt frv. yrði afgreitt í tíð ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar. Svona getur tíminn, svona getur framtíðin, þegar menn opna augun og sjá fram í framtíðina, orðið til þess að hinir íhaldssömustu vitkist. Ég fagna því að sjálfsögðu að hæstv. forsrh. skuli hafa flutt þetta frv. inn á þingið og vænti þess að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson geti tekið undir þær óskir mínar Íslandi til handa að hæstv. forsrh., a.m.k. það sem eftir lifir kjörtímabilsins, fari fram með sama hætti og hann hefur sýnt í þessu tiltekna máli.
En af því að hv. frammíkallandi óskaði eftir lestri úr umsögn Verslunarráðsins skal ég leyfa honum og öðrum hv. þm. að heyra niðurstöðukaflann. Hann er þannig, með leyfi hæstv. forseta:
,,Frjálslynd löggjöf um fjárfestingar erlendra aðila hér á landi er undirstöðuatriði í opnun íslensks efnahagslífs gagnvart útlöndum. Frv. til laga um fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi hafa verið í umfjöllun síðustu þrjú árin og er meginhugsunin sú sama, að lögfesta almenna heimild til fjárfestinga erlendra aðila en skilgreina undantekningar. Þessi meginhugsun er rétt og eðlileg. Þær undantekningar sem verið hafa uppi á borðinu eru hins vegar allt of víðtækar. Þær koma í veg fyrir að íslenskir og erlendir aðilar geti átt samstarf um arðbæra kosti í uppbyggingu atvinnulífsins. Takmarkanir á fjárfestingum erlendra aðila í sjávarútvegi bitna fyrst og fremst á honum sjálfum eins og þær eru settar fram nú. Ekki verður séð að þörf sé á lagaákvæðum um takmarkanir á fjárfestingum í orkufyrirtækjum þar sem ríkið hefur í raun helgað sér þau réttindi sem skipta einhverju máli. Takmarkanir á fjárfestingum í bönkum eru of stífar. Erlendir aðilar verða að hafa miklu rýmri heimildir til að eignast fasteignir hér á landi þannig að íslensk fyrirtæki geti orðið veðhæf gagnvart erlendum bönkum og íslenskum bankaútibúum í eigu erlendra aðila.`` --- Ég skýt því hér inn að þetta eru samsvarandi sjónarmið og koma fram hjá Sambandi íslenskra viðskiptabanka um þetta tiltekna atriði. Og loks les ég áfram, með leyfi virðulegs forseta:
,,Mikilvægt er að opna heimildir til fjárfestinga erlendra aðila sem allra fyrst þannig að Íslendingar eigi betri möguleika til þess að efla atvinnulífið, byggja upp samkeppnisfær fyrirtæki sem geta selt á erlenda markaði í síharðnandi samkeppni og þannig bætt lífskjörin.`` Og lýkur hér lestrinum og vænti ég þess að hv. þm. sé þá nokkru nær um það sem er í þessu ágæta plaggi.
Það skal tekið fram í tilefni dagsins, en í dag er afmælisdagur Alþýðusambands Íslands, að ASÍ segir í sinni umsögn að það geti verið skynsamlegt að erlent áhættufé geti í ríkari mæli komið í stað erlends lánsfjár til fjárfestinga í atvinnurekstri hér á landi.
Jafnframt bendir Alþýðusambandið á, en undir bréf þess ritar Ari Skúlason, að reglur um fjárfestingu erlendra aðila á Evrópska efnahagssvæðinu ef af verður kunni að víkja í einhverju leyti frá þeim lögum sem nú er verið að fjalla um. Um það mál hlýtur að verða fjallað sérstaklega þegar samningur um Evrópska efnahagssvæðið liggur fyrir, segir í þessari umsögn og tekur Alþýðusambandið þannig undir það sem ég hef verið að segja í minni ræðu.
Landssamband iðnaðarmanna gerir ýmsar athugasemdir við frv., leggur til að frv. verði breytt í hátt við það sem 2. minni hl. hefur lagt til á sérstöku þingskjali. Til þess að vitna örstutt í það álit vil ég lesa stuttan kafla, með leyfi forseta. ,,Í ljósi framanritaðs`` --- en það er nokkuð langur kafli --- ,,telur Landssamband iðnaðarmanna að í stað þess að banna skilyrðislaust alla erlenda fjárfestingu á sviði sjávarútvegs og orkuiðnaðar væri mun skynsamlegra að lög um þetta efni gerðu almennt ráð fyrir frelsi á þessu sviði sem öðrum en skilgreindu þess í stað vandlega þau skilyrði sem erlend ríki þyrftu að uppfylla, þar á meðal um tollfrjálsan aðgang okkar að markaði þeirra fyrir sjávarfurðir, afnám ríkisstyrkja og fleira til þess að þegnum eða fyrirtækjum þeirra verði heimilt að fjárfesta í sjávarútvegi eða orkuiðnaði hér á landi. Þessi aðferð kallar að sjálfsögðu á það að við leysum okkar eigin vandamál varðandi stjórnun fiskveiða og eignarrétt og nýtingarrétt á náttúruauðlindum, en lausn á þeim vanda er hvort sem er orðin mjög tímabær af ýmsum öðrum orsökum.``
Í þessu felst ný hugsun sem vissulega er athygli verð og kann að koma sér vel þegar þessi mál verða skoðuð frekar í framtíðinni, en 2. minni hl. taldi ekki tímabært að taka frv. til slíkrar gagngerrar endurskoðunar að hægt væri að koma þessum sjónarmiðum til skila.
Þá vil ég geta þess, ekki síst vegna þess að hér í salnum er staddur hv. þm. Hjörleifur Guttormsson sem ef ég man rétt hélt eina 76 fundi í nefnd sem fjallaði um ferðamál, að Félag íslenskra ferðaskrifstofa sendi inn umsögn og stakk upp á því í lok umsagnar sinnar að orðalag 24. gr. í frv. til laga um ferðaþjónustu, sem nú er til 2. umr. í Nd. Alþingis, verði tekið upp í það frv. sem hér um ræðir og gert að lögum á yfirstandandi þingi. Þetta frv. er reyndar komið til Ed. og það er athygli vert að ríkisstjórnin er annars vegar að flytja þetta frv. og hins vegar að flytja annað frv. um ferðaþjónustu og ákvæði frumvarpanna stangast gersamlega á. Þetta vil ég að hér komi fram þannig að þeir sem bera ábyrgð á þingstörfunum, þingforsetar og hæstv. ríkisstjórn, átti sig á því að það þarf stundum að samræma lagagreinar til þess að eitthvert vit sé í málunum. Vonast ég til þess að fulltrúi hæstv. ríkisstjórnar, hv. þm. Hjörleifur Guttormsson, komi þessum sjónarmiðum til skila.
Virðulegi forseti. Seðlabanki Íslands sendi inn umsögn um frv. Í örstuttu máli má segja að Seðlabankinn taki undir meginstefnu frv. en bendir á að innan tíðar þurfi að opna lögin meira og endurskoða þau aftur ef og þegar við gerumst aðilar að Evrópska
efnahagssvæðinu. Sömu rök koma fram hjá Félagi ísl. iðnrekenda. Full ástæða væri reyndar til þess að kynna þingmönnum það sem þar kemur fram en ég kýs aðeins að vitna til örstuttra kafla í umsögninni þar sem talsvert er liðið á tíma þessa fundar. Þar segir m.a., með leyfi forseta:
,,Félag ísl. iðnrekenda er og hefur verið þeirrar skoðunar að skynsamlegt sé að draga verulega úr þeim hömlum sem lagðar hafa verið á fjárfestingar erlendra aðila hér á landi, hvort sem um er að ræða fjárfestingar þeirra í starfandi fyrirtækjum hér á landi eða rekstur þeirra á eigin atvinnufyrirtækjum. Með því að erlendir aðilar taki meiri þátt í íslenskri atvinnustarfsemi, þá geta þeir flutt hingað markaðs - og tækniþekkingu og auðveldað íslenskum fyrirtækjum aðgang að erlendum mörkuðum. Að sjálfsögðu er nauðsynlegt að gæta þess að erlend fyrirtæki hér á landi búi í aðalatriðum við sömu lífsskilyrði og innlend fyrirtæki. Það er mat félagsins að aukin þátttaka erlendra aðila í iðnrekstri hér á landi muni hafa jákvæð áhrif á iðnað á Íslandi og verða til þess að auka hagvöxt og atvinnustarfsemi og þar með bæta lífskjör.``
Það er athygli vert, virðulegi forseti, að Félag ísl. iðnrekenda, eins og flest samtök atvinnulífsins, telur að aukin samskipti, aukið samstarf við erlenda aðila komi til með að bæta lífskjörin og styrkja íslenskt atvinnulíf. Reyndar koma í lok umsagnarinnar fram nokkur varnaðarorð sem ég hygg að eðlilegt sé að bæta hér við. Þar segir, með leyfi forseta:
,,Langtímajafnvægisleysi í íslenskum þjóðarbúskap hefur leitt til mjög sveiflukenndra niðurstaðna hjá íslensku atvinnulífi. Þótt sumar af þessum sveiflum stafi af breytingum í ríki náttúrunnar, þá er miklu stærri hluti vandans til kominn vegna mannlegra ákvarðana, bæði innan atvinnulífsins og hjá opinberum aðilum, svo og vegna þess hversu einhliða íslenskur atvinnurekstur er. Ef Íslendingar ætla sér að viðhalda og auka þau lífskjör sem þeir hafa búið við á undanförnum árum, þá er nauðsynlegt að íslensku atvinnulífi verði tryggt betra starfsumhverfi og unnið verði að því að gera það fjölbreyttara heldur en það er nú. Á síðustu árum hefur verið hafist handa við ýmsa undirbúningsvinnu tengda nýjum atvinnugreinum. Engar verulegar breytingar á samsetningu íslensks atvinnulífs eru þó sjáanlegar. Á þessu þarf að verða breyting.``
Mér er kunnugt um það, virðulegi forseti, að umsagnir nokkurra aðila eru enn á leiðinni og hafa ekki borist nefndarmönnum. Ég verð enn fremur að segja það að sumar umsagnirnar sem ég hef vitnað til voru ekki komnar til nefndarinnar þegar hún lauk störfum og málið var tekið út úr nefndinni. Ástæðan fyrir þessu er sú að nefndarformaður og meiri hl. nefndarinnar gáfu umsagnaraðilum svo stuttan tíma að margir þeirra hafa verið að senda umsagnir allt til þessa dags þótt fresturinn hafi liðið hinn 5. mars sl.
Virðulegi forseti. Ég hef nú í stuttu máli greint frá nokkrum atriðum sem komið hafa fram í umsögnum fjölmargra aðila. Ég hef rætt um tvö atriði frv. sem ég tel að erfitt sé að framkvæma. Ég hef lýst brtt. og gert grein fyrir nál. 2. minni hl. hv. fjh. - og viðskn.
Í ræðu minni hefur glöggt komið fram að 2. minni hl. getur ekki tekið undir sjónarmið fulltrúa Kvennalistans sem myndar 1. minni hl. og mun greiða atkvæði gegn tillögum Kvennalistans. Við leggjum að sjálfsögðu áherslu á að frv. taki þeim breytingum sem við höfum hér lagt til að gerðar verði á því. En jafnvel þótt þær nái ekki fram að ganga sjáum við ekki ástæðu til að tefja framgang frv. Þvert á móti teljum við frv. vera skref í rétta átt og munum styðja framgang þess á þinginu.