Hjörleifur Guttormsson :
Virðulegur forseti. Ég hefði kosið að hv. 12. þm. Reykv. hlýddi á mál mitt a.m.k. stundarkorn, þ.e. talsmaður 1. minni hl. fjh. - og viðskn., en hér er frsm. 2. minni hl. viðstaddur og einnig er hér ekki langt undan hæstv. forsrh., sem er sá ráðherra sem leggur þetta mál fram fyrir hönd ríkisstjórnar. Ég ætla aðeins að nefna atriði sem tengist málinu almennt og túlkun hæstv. forsrh. á þessu þingmáli. Ég hefði talið æskilegt að við umræðu af þessum toga væri talsmaður meiri hl. fjh. - og viðskn. einnig viðstaddur og vildi biðja virðulegan forseta að gera honum aðvart því að mér finnst það góður siður að talsmenn nefnda séu viðstaddir þegar rædd eru nefndarálit við 2. umr. Ég skal hins vegar ekki gera neina kröfu til þess að hv. þm. og hæstv. ráðherrar sitji hér undir öllu mínu máli, sem verður ekki mjög langt vænti ég, og skal því koma ábendingum hér á framfæri sem snerta þeirra efni tiltölulega fljótlega í mínu máli þó að gjarnan vilji ég hafa þeirra návist sem lengst í umræðunni.
Það er þá fyrst varðandi frv. í heild og tengsl þessa frv. við samningaviðræður um Evrópskt efnahagssvæði. Það hefur komið fram af hálfu hæstv. forsrh. bæði þegar þetta mál var hér til 1. umr. og einnig mjög skýrt í fjölmiðlum, þar sem rætt hefur verið um samningaviðræður um Evrópska efnahagssvæðið og tengslin við Evrópu sérstaklega, að hæstv. forsrh. telur að með þessu frv. sé mörkuð stefna sem skipti einhverju verulegu máli vegna yfirstandandi samningaviðræðna á vegum EFTA við Evrópubandalagið. Ég tel alveg nauðsynlegt að hæstv. forsrh. skýri þetta viðhorf sitt nánar hér við umræðuna vegna þess að í mínum huga eru þessi tengsl lítil ef nokkur í raun ef gengið verður til samninga um þetta efnahagssvæði og það mál kemur til kasta Alþingis, væntanlega þá næsta þings.
Það liggur fyrir og kemur raunar fram í greinargerð með þessu frv. að þeir sem það sömdu tóku ekki til neinnar sérstakrar meðferðar yfirstandandi samningaviðræður um Evrópska efnahagssvæðið. Og það er jafnljóst og tvisvar sinnum tveir eru fjórir að þeir samningar sem þar kunna að verða gerðir kalla á það að Ísland breyti löggjöf af þeim toga sem hér er, þar sem þau ákvæði sem stangast á við lög Evrópubandalagsins, sem hugmyndin er að innbyrða í íslenska löggjöf verði af þessum samningum, verða að víkja í öllum atriðum. Sé hæstv. forsrh. á annarri skoðun þá er nauðsynlegt að við heyrum það á hans máli hér í umræðunni vegna þess að þetta er auðvitað hið mikilsverðasta atriði að virðulegir þingmenn átti sig á. Ég hef leitast við að koma þessum sjónarmiðum á framfæri í mínum þingflokki þar sem ég hef gert mjög alvarlegar athugasemdir við þetta mál og ég vænti að hv. talsmaður meiri hl. fjh. - og viðskn. staðfesti þennan skilning hér í umræðunni vegna þess að þingnefndin hlýtur að hafa gert sér glögga grein fyrir því að komi samningar um Evrópskt efnahagssvæði til með að rekast á ákvæði þessa frv., ef af lögum verður, þá hljóta ákvæði þessarar löggjafar að víkja eins og fis,
fjúka út í vindinn. Að því leyti veitir þessi löggjöf enga stoð verði af þeim samningum sem munu ganga lengra í ýmsum greinum en hér er gert ráð fyrir í þessu frv. Og er þó ekki fullséð hvernig lyktirnar verða varðandi þann þátt sem Íslendingar hafa nú mest horft til. Einnig þeir, sem vilja keyra Ísland inn í sameiginlegan markað Vestur - Evrópu og opna allt upp á gátt fyrir fjármagnsstreymi og fjárfestingar á því svæði, hafa gert er ljóst og hafa reynt að setja fyrirvara og slá varnagla varðandi sjávarútveginn að vissu marki, fiskveiðarnar og fiskvinnsluna að nokkru leyti. En það mál er engan veginn útkljáð í samningaviðræðum þó að 98% væntanlegra samninga séu ljósir að hverju þeir stefna, eins og hæstv. utanrrh. hefur nokkuð réttilega orðað það. Það er alveg ljóst hvað felst í hinum innri markaði Evrópubandalagsins, hvað
felst í hinum 1400 lagaatriðum eða samþykktum Evrópubandalagsins sem hugmyndin er að innbyrða í íslenska löggjöf. En það er ekki fullljóst varðandi sjávarútvegssviðið vegna þess að sjávarútvegurinn er ekki hluti af innri markaði Evrópubandalagsins. En Evrópubandalagið og samningamenn þess halda því enn þá opnu að gera þær kröfur að komast inn í íslenska efnahagslögsögu, inn í íslenskt atvinnulíf. Það mál er engan veginn frá gengið ef til samninga verður gengið hvaða skilmálar og kröfur verða þar uppi af Evrópubandalaginu.
En meginatriðið er að þessi löggjöf hér veitir enga stoð sem slík gagnvart væntanlegum samningum ef af verður við Evrópska efnahagssvæðið, ekki nokkra að mínum skilningi. Ég skora hér á hv. þm., þar á meðal hæstv. forsrh. og hv. talsmann meiri hl. fjh. - og viðskn., að gera skýra grein fyrir sínum skilningi í því efni og læt ég nóg um rætt þennan þátt málsins.
Ég gerði grein fyrir almennum sjónarmiðum mínum til þessa frv. við 1. umr. málsins, lýsti þar andstöðu minni við veigamikil atriði í frv. og sú afstaða mun koma fram við atkvæðagreiðslu um málið. Ég tel að ríkisstjórnin hafi hér að tilefnislausu gengið allt of langt í að opna íslenskt efnahagslíf fyrir fjárfestingum. Undir íslenskt efnahagslíf falla þjónustufyrirtæki á sviði fjármagns og fjármagnsflutninga, bankastarfsemin í landinu m.a. Ég tel viðfangsefnið hins vegar af hinu góða, að leitast við að skapa samstæða löggjöf um þessi efni, að í senn að samræma atriði og gera þau skýr í einu frv. um fjárfestingar erlendra aðila í atvinnurekstri í landinu í staðinn fyrir að hafa það á dreif í sérlögum og sums staðar óljós ákvæði eða engin ákvæði þar að lútandi. Að því leyti var ég stuðningsmaður þess að það yrði lagt til atlögu við þetta verkefni og þótti það skynsamlegt. Það er skynsamlegt sem slíkt þó að ég sé ósáttur við niðurstöðuna eins og hún birtist hér af hálfu meiri hl. fjh. - og viðskn. og upphaflega eins og fyrir var lagt af ríkisstjórninni.
Ég ætla ekki að fara út í mörg atriði sem snerta þetta mál. En ég vil vekja alveg sérstaka athygli á því, og það er kannski einn meginágreiningur minn við meiri hl. í þessu máli, að það er verið að opna 100% algerlega fyrir ítök og fjárfestingar útlendinga
í almennum iðnaði í landinu og í þjónustustarfsemi í landinu, þeim atvinnugreinum sem undir þjónustu falla og undir bankarekstur, með þeim hætti sem hér er gert ráð fyrir skv. 4. gr. frv. Ég tel að hér sé farið út á mjög hála braut og að tilefnislausu. Þeir ávinningar, sem menn eru að gera skóna að fáist af því að gera þessar breytingar, eru sýnd veiði, hæstv. forsrh., en ekki gefin. Talsmaður 2. minni hl. fjh. - og viðskn., hv. 1. þm. Reykv., vitnaði til vestrænna stjórnunaraðferða og án þess að ég ætli að fara langt út í þá sálma væri þó full ástæða til að ræða við hv. þm. um það til hvers þessar vestrænu stjórnunaraðferðir hafa leitt víða um heim þar sem þær hafa verið innleiddar í samskiptum þjóða. Við getum litið t.d. til ríkja Mið - og Suður - Ameríku þar sem einmitt hefur verið opnað upp á gátt fyrir umsvif alþjóðlegs fjármagns og alþjóðlegra auðhringa með þeim hörmulegu afleiðingum sem við blasa í þeim ríkjum. Í Vesturheimi, í bakgarði Bandaríkjanna, þar sem hið bandaríska fjármagn og félög deila og drottna og láta auðvitað ekkert staðar numið við atvinnustarfsemina og efnahagsstarfsemina heldur hlutast til um pólitíska starfsemi og pólitískt líf í þessum löndum eins og birtist okkur nánast ár hvert í beinum íhlutunum og sumpart í hernaðaríhlutunum ef ekki vill betur og hinar óbeinar stjórnunaraðgerðir skila ekki árangri.
Ég er ekki með þessum orðum að gera því skóna að menn eigi að taka upp miðstýrðar aðferðir í sambandi við efnahagsstarfsemi. Ég er talsmaður blandaðs hagkerfis í efnahagslífi og hef verið það síðan ég kom inn á Alþingi. Ég er ekki talsmaður miðstýringar eða ríkiseinokunar sem einhverrar leiðarstjörnu í efnahagsstarfsemi. En ég vara við þeirri einföldun að halda að það sé eitthvert algilt þjóðráð fyrir land eins og Ísland að opna upp á gátt fyrir erlent fjármagn og opna jafnframt fyrir aðgang að íslenskum náttúruauðlindum eins og verið er að gera ráð fyrir hér í sambandi við þjónustustarfsemi í landinu. Hv. 1. þm. Reykv. vék að ferðaþjónustunni sem er einn þáttur þessa máls og ég vara mjög eindregið við því að menn séu að stíga slíkt skref að tilefnislausu og það í sambandi við tiltölulega nýja og veika vaxtarsprota í íslenskri atvinnustarfsemi.
Ég sé að hv. 12. þm. Reykv. hefur brugðið sér frá á nýjan leik en ég ætlaði einmitt að nefna hér það atriði sem ég vildi koma á framfæri við hana sem talsmann Kvennalistans í umræðunni vegna nefndarálits hennar. Þar hef ég örlitla athugasemd að gera. ( FrS: Þú berð nú ekki ábyrgð á því.) Hv. talsmaður 2. minni hl., það er hárrétt. Ég ber ekki ábyrgð á nefndarálitum annarra. En mér þykir hlýða að láta fram koma sjónarmið af minni hálfu sem snerta málið vegna þess líka að ég get tekið undir mjög margt af því sem fram kemur í nál. 1. minni hl. nefndarinnar og í brtt. 1. minni hl. sem ég geri ráð fyrir að greiða atkvæði mitt þegar þær tillögur, a.m.k. sumar hverjar, koma til atkvæða þar sem ég tel þær ganga í rétta átt til breytinga á frv. En mér finnst koma fram í þessu nál. 1. minni hl., þó hér í fyrri hl. nál., ábendingar sem eru af þeim toga sem ég var að gagnrýna
meirihlutaálitið fyrir og ég tala nú ekki um talsmann 2. minni hl., þ.e. þessi trú á að það sé tímabært að opna fyrir erlent fjármagn með þeim hætti sem hér er verið að leggja til. Það stendur hér í nál. 1. minni hl. fjh. - og viðskn., svo að orðrétt sé vitnað til: ,,Samvinna við erlenda aðila í atvinnurekstri hér á landi getur haft ýmsa kosti í för með sér, svo sem aðgang að tækniþekkingu, markaði og viðskiptasamböndum, auk þess sem erlent áhættufé getur komið í staðinn fyrir erlent lánsfé við fjármögnun atvinnufyrirtækja hér á landi. Því má segja að þetta frv. sé tímabært og í samræmi við þá þróun sem á sér stað í alþjóðlegu efnahagslífi.``
Það er þessi almenna áhersla sem mér finnst stangast á við þær veigamiklu brtt. sem 1. minni hl. er að bera fram, að telja frv. eins og það liggur hér fyrir tímabært. Og það er angi af því smiti sem berst hér inn í orðum stjórnmálamanna, ættað frá hagfræðingum sem hafa oftrú á að veita hinu alþjóðlega fjármagni frjálsa óhefta braut inn í atvinnulíf þjóða.
Ég vil koma að sjávarútvegsmálunum í þessu sambandi vegna þess að þó að það megi taka undir nokkuð af því sem fram kemur í 4. gr. frv. 2. tölul. að því er snertir fiskveiðar og fiskvinnslu svo langt sem það nær, auðvitað er æskilegt að halda útlendingum utan við þennan meginatvinnuveg þjóðarinnar, þá spyr ég: Hvernig ætla menn í reynd að vinna það verk með þeirri opnun sem hér er almennt gerð fyrir innkomu erlends fjármagns í þjónustustarfsemi í landinu, í starfsemi banka og fjármögnunarfyrirtækja? Hvernig ætla menn í reynd að koma í veg fyrir það að útlendingar nái tökum á þessari meginauðsuppsprettu á Íslandi, undirstöðu undir okkar efnahagslega sjálfstæði. Það er hluturinn sem ég er ekki búinn að sjá að menn klári. Ég tala nú ekki um þegar menn væru komnir inn í hið evrópska efnahagssvæði, jafnvel þó að þeir fengju þar fyrirvara varðandi fjárfestingu í fiskveiðunum og frumvinnslu, eins og áhersla hefur verið lögð á. Jafnvel þótt það tækist, þá fullyrði ég að menn vinna það verk ekki ef menn opna fyrir með öðrum hætti í atvinnustarfsemi í landinu og í fjármálastarfsemi, hjá fjármálafyrirtækjum, eins og gert er ráð fyrir í ákvæðum þessa frv. Við það er ég ósáttur og tel að þarna rekist hvað á annars horn og menn séu í rauninni að vekja einhverjar tálvonir um það að geta haldið meginatvinnuvegi þjóðarinnar utan við seilingu erlendra áhrifa, ég tala nú ekki um mikilsverðum vaxtarsprotum í atvinnulífi að öðru leyti eins og t.d. í ferðaþjónustu.
Virðulegur forseti. Ég tek eindregið undir það viðhorf, sem kemur fram hjá 1. minni hl. fjh. - og viðskn. og fram kemur í 2. tölul. brtt., að heildarfjárfesting erlendra aðila í hverri atvinnugrein fyrir sig fari ekki yfir 25% og heildarfjárfesting erlendra aðila í einstökum fyrirtækjum ekki yfir 49%, en það er síðari þátturinn sem er annar heldur en fram kemur hjá meiri hl. Það ætti að vera meginregla í sambandi við atvinnustarfsemi í landinu að heimila ekki meirihlutaeign útlendinga, eins og verið er að opna fyrir með frv. og 2. minni hl. fjh. - og viðskn. leggur til að
gengið verði mun lengra heldur en lagt er til með þessu frv.
Það er leitt til þess að vita að hér á Íslandi skuli menn ganga með þá glýju í augum sem gætir hjá mjög mörgum, m.a. hjá þeim sem bera fram þetta frv., að takmarkalítil opnun fyrir erlent fjármagn og fjármagnshreyfingar til og frá landinu sé það sem muni leysa vanda íslensks atvinnulífs. Ég hef verið fylgjandi því að við heimiluðum samstarf, einnig eignarhald útlendinga að takmörkuðu leyti sem minnihlutaaðila í íslensku atvinnulífi vegna þess að vissulega geta því fylgt ýmsir kostir að hafa möguleika á slíku samstarfi og við það hef ég ekki að athuga, en ég vil ekki afhenda þennan grunnþátt í forræði yfir fyrirtækjum í landinu, að heimila hér meirihlutaeign í þeim mæli sem er gert ráð fyrir samkvæmt þessu frv.
Þetta, virðulegur forseti, voru þau meginatriði og meginsjónarmið sem ég vildi koma til skila við þessa umræðu og sé ekki ástæðu til þess að orðlengja þetta frekar. Ég vænti þess að heyra viðhorf frá talsmönnum meiri hl. fjh. - og viðskn. og hæstv. forsrh. varðandi þær athugasemdir sem ég hef fram borið.