Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson) :
Herra forseti. Ég sé ekki hv. þm. Hjörleif Guttormsson. ( Gripið fram í: Hann er inni í hliðarsal.) Hann er inni í hliðarsal, já. Hann heyrir þá væntanlega til mín. Ég vil í fyrsta lagi segja að mér þótti vænt um að heyra það sem hv. þm. sagði um nauðsyn þess að endurskoða lög um erlenda fjárfestingu og að hann var því hlynntur þegar sú endurskoðun hófst. Það er kannski meginkjarni málsins því að lög um erlenda fjárfestingu núna eru slíkur frumskógur að það er afar erfitt að rata um hann. Ef við Íslendingar kjósum að óska eftir nokkurri sérstöðu okkar í samningunum við EFTA og EB, þá er það útilokað á grundvelli gildandi laga því að þau verða svo illa skýrð. Það er alveg hárrétt að þeirri nefnd sem vann að þessari endurskoðun, reyndar hófst það starf þegar á árunum 1984 -- 1985, var ekki fengið það verkefni að setja upp reglur sem stæðust í samningum við EB um Evrópskt efnahagssvæði, enda var ekki um það að ræða þegar viðræður hófust í upphafi. Hins vegar fullyrði ég, og þar kann að vera að við séum ósammála, að það sé miklu líklegra að við Íslendingar getum náð samningum um nokkra sérstöðu um erlenda fjárfestingu, jafnvel á hinum hefðbundnu sviðum t.d. í iðnrekstri, vegna mannfæðar þessarar þjóðar. Við getum náð þar samningum með heilsteyptar og samræmdar reglur eins og nú er verið að skapa og kallað var við 1. umr. að draga upp varnarlínu sem er út af fyrir sig ágæt lýsing á því.
Í frv. er vitanlega mikilvægt að tryggja betur en verið hefur fjárfestingu í fiskveiðum og það er gert miklu betur. Í lögum eins og þau eru núna er þetta í raun og veru allt saman meira og minna opið. Það er t.d. heimild nú fyrir erlenda aðila að stofna hér fjárfestingarfélög, kaupleigufélög og þeir hafa gert það. Það eru til kaupleigufélög hér sem menn vita að eru að meiri hluta í eigu erlendra aðila sem eiga báta, sem þeir hafa eignast í gegnum kaupleigur o.s.frv., og engin krafa gerð um það að þeir þurfi að selja þá báta aftur.
Nú eru reglurnar þannig að það er nóg að fyrirtæki hafi verið stofnað hér og teljist íslenskur aðili til þess að það geti eignast útgerðarfélög. Í reglunum núna geta erlendir aðilar átt helming í útgerðarfélagi ef það er hlutafélag. Fyrir þetta er allt saman girt í frv. Vitanlega er það stærsta atriðið, ef við ætlum að verja eignarhald okkar í þessum lífshagsmunum íslensku þjóðarinnar, að koma þessu á hreint og það er gert í frv. Ég held að varla verði um það deilt.
Sömuleiðis eru í frv. lagðar línur í sambandi við heimildir til virkjana. Það hefur verið staðfest hér að þar þarf að ganga betur frá í sambandi við eignarhald hins opinbera á jarðvarma fyrir neðan ákveðið dýpi til að öruggt sé að það haldi. Fyrir þessu gerði ég einnig grein í framsöguræðu minni um þetta mál.
Í þessu frv. er eingöngu heimild til að veita fyrirtæki sem hér starfar eignarhald á landi sem nauðsynlegt er vegna reksturs þess fyrirtækis. Það er eingöngu heimild til þess. Vitanlega er það eitt af stærstu
atriðunum líka að koma í veg fyrir að erlendir aðilar geti eignast hér stóra hluta af landinu. Þarna er því um afar veigamikil atriði að ræða, auk hins að unnt er að leggja fram reglur sem að mínu mati eiga að vera vel aðgengilegar fyrir samningsaðila okkar um Evrópskt efnahagssvæði, þótt ég hafi sjálfur viðurkennt í framsögu hér að það kann að vera að eftir þá samninga þurfi að breyta einhverjum ákvæðum í þessum lögum. En það var --- ég endurtek það --- og er algerlega útilokað að leggja fram þær reglur sem núna gilda. Það botnar enginn maður í þeim í raun. Meira að segja eru reglurnar í mörgum atriðum óljósar og viðurkennt af þeim lögfræðingum sem um þær fjalla að þær eru óljósar núna. Þetta endurtek ég raunar frá því sem ég sagði í framsögu og tel afar mikilvægt að þessar reglur liggi fyrir þegar lokafundir um Evrópskt efnahagssvæði fara fram. Það er full samstaða um það í þessari ríkisstjórn að leggja fram slíkar reglur sem ósk okkar Íslendinga um þau ákvæði sem gildi hér um erlenda fjárfestingu.
Nefndinni sem falið var í upphafi, eins og ég sagði 1984 -- 1985, að endurskoða hefur að sjálfsögðu ekki verið falið það verkefni. Það eru því tvær meginástæður fyrir því að þetta frv. þarf sem fyrst að verða að lögum. Í fyrsta lagi til að greiða úr þeirri flækju sem nú er, þeim frumskógi sem nú er. Og í öðru lagi að hafa línurnar skýrar þegar kemur að lokasamningum um Evrópskt efnahagssvæði og svo í þriðja lagi að sjálfsögðu að tryggja, sem hvergi er tryggt núna, alls ekki er tryggt núna, að við höldum yfirráðum okkar yfir fiskveiðunum.
Ég skil það svo vel að það er ágreiningur um það hve langt menn vilja ganga. Ég sagði í minni framsögu að þetta væri málamiðlunarfrv. sem búið er að vinna að af mönnum úr öllum stjórnarflokkunum og búið að leita umsagna vítt og breitt. Hér er dregin upp meðallína sem ég tek fram að mér líkar vel. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að heimila meiri erlenda fjárfestingu í iðnaði og þjónustu í landinu en við höfum gert, m.a. vegna þess að við erum allskuldsett þjóð. Erlendar skuldir þjóðarinnar eru núna um það bil 50% af þjóðartekjum. Það hefur að vísu tekist að halda þeim á þessu róli og þær fara aðeins minnkandi að mati Þjóðhagsstofnunar nú, en þetta eru of miklar skuldir. Vaxtabyrði af þessum skuldum og greiðslubyrði er of há og veldur því að við erum með neikvæðan viðskiptajöfnuð. Þess vegna er m.a. afar æskilegt að fá annað en erlent lánsfé, fá sem sagt áhættufé inn í ýmsar þær atvinnugreinar í iðnaði og þjónustu sem við viljum byggja hér upp. Ég tek það fram að ég er ósammála þeim sem hér hafa talað og talið að erlend þátttaka í slíkum atvinnugreinum stofni fullveldinu jafnvel í hættu. Ég tel að með því að halda grundvallaratriðum í eigin hendi sé það tryggt.
Eins og ég sagði áðan, þá er það vitanlega málefnalegur ágreiningur sem ég ætla ekki að rekja nánar hér. Ég hlýt hins vegar að taka það fram að ég er andsnúinn breytingartillögum 2. minni hl., tel þar of langt gengið að opna fyrir erlenda fjárfestingu. Ég tel a.m.k. að í frv. sé stoppað við á nokkuð góðum stað
og verði að reyna vandlega á það hvort það sé ekki sá staður sem hentar okkur Íslendingum, þessu litla þjóðfélagi. Ég er sömuleiðis andsnúinn tillögum 1. minni hl. sem vill ganga skemur að ýmsu leyti en gert er ráð fyrir í frv.
Ég skal ekki hafa mörg orð um orð hv. þm. Stefáns Valgeirssonar. Það er alveg hárrétt hjá hv. þm. að Framsfl. hefur sem betur fer breyst á tíu árum, enda hefur heimurinn allur breyst, þjóðfélagið allt breyst og allt sem ég þekki hefur breyst nema hv. þm. Stefán Valgeirsson.