Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
Herra forseti. Ég vil byrja á því að bera það skilmerkilega til baka að ég sé hættur búskap eins og hv. þm. Stefán Valgeirsson lét að liggja hér. ( SV: Ég sagði það ekki.) Ég á hlut minn í búi að Höllustöðum. Það er að vísu rétt að mér gefst lítill tími til að vinna að búinu, en nóg um það.
Ég hef heldur ekki skipt um skoðun í neinum grundvallaratriðum. Ég lít svo á að Ísland sé okkar land og við eigum að nýta auðlindir þess sjálfir og af fyrirhyggju, bæði auðlindir til lands og sjávar.
Varðandi álmálið þá var það ákvörðunin um virkjun Blöndu á sínum tíma og að virkjunin yrði fullbúin 1991 sem gerði það óhjákvæmilegt að leita samninga við stórnotendur því að annars var ekkert við þessa virkjun að gera og hún yrði ekki fullnýtt til almenns markaðar fyrr en á næstu öld. Þar af leiðir að með byggingu hennar var sköpuð offjárfesting í raforkukerfinu og þýðir ekkert að berja höfðinu í steininn með það. Það er ekkert við þessa virkjun að gera fyrr en síðast á þessum áratug nema takist að selja rafmagn til einhverra stórnotenda.
Nú skal ég ekkert um það segja hvort samningar takast um byggingu álvers, enda er það mál ekki til umræðu undir þessum dagskrárlið. Ég tel að hér sé um að ræða að mörgu leyti skynsamlega löggjöf sem eðlilegt sé að setja. Hér er frv. til meðferðar um takmarkanir á fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Hér hefur ríkt afar mikið skipulagsleysi í þessum efnum og raunverulega veit enginn eða hefur enginn yfirsýn yfir hversu mikið útlendingar eiga í atvinnurekstri á Íslandi. Ég held að það sé skynsamlegt að setja lög um þetta efni, samræmd lög og ég held að það sé líka skynsamlegt að gera það áður en lýkur samningum um Evrópskt efnahagssvæði. Það gæti orðið torveldara að brydda upp á nýmælum síðar.
Samningunum um Evrópska efnahagssvæðið er ekki lokið. Þegar við stöndum frammi fyrir niðurstöðu úr þeim samningum ber okkur að sjálfsögðu að meta það hvort það þjóni hagsmunum Íslands að gerast aðilar að samningunum. Ég geri ráð fyrir því að þeir sem annast þá samninga fyrir okkar hönd fari svo langt sem þeir geta til að varðveita hagsmuni okkar. Við verðum að meta þá niðurstöðu þegar hún liggur fyrir hvort það henti okkur að gerast aðilar ellegar hvort við verðum að taka upp tvíhliða viðræður um viðskiptasamning við Evrópubandalagið. Fari svo að við þyrftum að kaupa niðurstöður of dýru verði, fari svo að við þyrftum að umturna íslenskri löggjöf í mjög veigamiklum atriðum, þá hlýtur það að liggja í augum uppi að afstaða okkar til Evrópsks efnahagssvæðis mótast af því hverra kosta við eigum völ. Og ég er alls ekki að hvetja til þess að menn sæti neinum afarkostum.
Við getum að sjálfsögðu ekki með þessari löggjöf tryggt okkur fyrir ágangi annarra um alla framtíð, en ég held að það sé skynsamlegt spor sem rétt sé að stíga á þessum tímapunkti.
Ég vil vekja athygli hv. 2. þm. Austurl. á því að þetta frv. er samið af nefnd og m.a. sat í þeirri nefnd, prýðilega ánægður með frv., einn af foringjum Alþb., Ragnar Arnalds, og hann er aðili að því nál. sem ég mælti hér fyrir í dag og í því nál. fólst að við lögðum til að samþykkja þetta frv.
Ég vil mótmæla harðlega fullyrðingu hæstv. forsrh. um að hv. þm. Stefán Valgeirsson hafi ekkert breyst á tíu árum. Honum hefur farið mikið aftur, hann er tíu árum eldri og svo er hann farinn úr Framsfl.