Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri
Þriðjudaginn 12. mars 1991


     Frsm. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. (Friðrik Sophusson) :
    Virðulegi forseti. Ég mun ekki verða langorður þannig að það er ljóst að matarhlé getur orðið þess vegna. Það eru örfá atriði sem mig langar til að nefna hér. Ég vil byrja á því að taka undir það sem kom fram hjá hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni, 2. þm. Austurl., að það er full ástæða til þess að hæstv. utanrrh. taki til máls í þessari umræðu og geri okkur grein fyrir því hvernig það frv. sem hér er til umræðu fellur að þeim viðræðum sem þar eiga sér stað. Ég hygg að það sem menn eru að ræða þar sé allt annað og meira, miklu meiri opnun en menn eru að tala hér um í þessu samræmingar - og einföldunarfrv. Ástæðan fyrir því að æskilegt er að hæstv. ráðherra taki til máls er sú að hann fer með umboð Alþb., Alþfl., Framsfl. og Borgfl., þeirra flokka sem standa að núv. ríkisstjórn í þessum viðræðum sem nú eiga sér stað.
    Ég þykist vita eins og fleiri hv. alþm. og hef reyndar lesið það, ekki síst í því sem kemur frá Evrópubandalaginu, að fallið hafi verið frá ýmsum fyrirvörum sem hæstv. forsrh. gumaði mest af í upphafi. Og ég verð auðvitað að segja það eins og aðrir sem hér hafa talað að það er fullkomlega eðlilegt að hæstv. ríkisstjórn segi hv. Alþingi frá því hvernig það mál stendur og hvernig þetta frv. fellur að þeim viðræðum sem þar fara fram. Staðreyndin er nefnilega sú að þetta frv. er þess eðlis að þótt það verði að lögum, þá verður auðvitað ekki, og ég undirstrika ekki, farið með þetta frv. til viðræðna við Evrópubandalagið og sagt: Þetta er það sem við Íslendingar ætlum að biðja um að gert verði í viðræðunum um EES. Við vitum að vísu að ekkert verður gert varðandi fiskveiðarnar og sjávarútvegsmálin, væntanlega, ef ekki nást nokkrir samningar um það mál. Náist hins vegar samningar um það að fella niður tolla af íslenskum sjávarafurðum, þá kemur auðvitað til kasta okkar hvað við eigum að gera í þeim efnum. Þess vegna vil ég taka undir það sem hv. þm. sagði að það er ekkert óeðlilegt við það að hæstv. utanrrh., ekki síst fyrst hann er nú hér, geri í örstuttu máli grein fyrir því hvort þetta frv. hérna hafi eitthvað með viðræður um Evrópska efnahagssvæðið að gera.
    Hins vegar vil ég einnig taka fram að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson verður að átta sig á því að þetta frv. sem hér er til umræðu er flutt með fulltingi hans flokks. Flokksbróðir hans, hv. þm. Ragnar Arnalds, tók þátt í nefndarstarfinu, ber fulla ábyrgð á þeim tillögum sem hér liggja fyrir. Hann á einnig sæti í hv. fjh. - og viðskn. og þrátt fyrir þær umsagnir sem þangað bárust sér hann ekki ástæðu til þess að flytja eina einustu brtt. Og hvers vegna skyldi það vera? Það er vegna þess að stjórnarflokkarnir komu sér saman um að flytja þetta frv. og ganga hvorki lengra né skemmra. Ég þykist t.d. viss um það að fulltrúum Alþfl. þyki að þeir hafi ekki komist nægilega langt a.m.k. miðað við það sem þeir hafa verið að segja í sínum ræðum að undanförnu.
    Það er rétt sem kom fram frá hæstv. forsrh. að

sumt í þessu frv., og ekki síst í fylgifrv., er til bóta og til þess að skýra betur íslenskan rétt. Þar á meðal er ákvæðið um 1. tölul. 4. gr. um eignaraðild í íslenskum fiskiskipum. Ég get nefnt það hér að Landssamband ísl. útvegsmanna sendi umsögn og sagði þar m.a., með leyfi forseta:
    ,,Fagna samtökin því að allur vafi sé tekinn af því frá því sem nú er, sbr. lög nr. 33/1922, um rétt til fiskveiða í landhelgi, hverjir mega stunda fiskveiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, þ.e. eingöngu Íslendingar, og jafnframt að eignaraðild útlendinga í fiskiskipum sé óheimil með öllu.``
    Það er sem sagt rétt hjá hæstv. forsrh. að það er verið að þrengja rétt útlendinga hvað þetta snertir. Ég skal viðurkenna það að í mínum huga eru ákveðnar efasemdir um það mál og þá tala ég ekki fyrir hönd míns flokks. Ég tel að okkur beri að leggja eyrun við áliti ýmissa sem hafa bent á að það er hugsanlegt að fara aðra leið. En það er stefna míns flokks að fara þessa leið og sá flokkur vill að þessi réttur sé takmarkaður og það komi ekki til greina að útlendingar geti eignast hluta í íslenskum fiskiskipum.
    En það er eitt mál sem ég tel fulla ástæðu til að benda hér á vegna þess að það sýnir í raun vinnubrögðin sem viðhöfð eru hjá stjórnarflokkunum. Hv. þm. Hjörleifur Guttormsson er formaður nefndar sem útbýr lagafrv. um ferðamál, þ.e. frv. til laga um ferðaþjónustu. Í 24. gr. þess frv. er sagt í mjög skýru máli hverjir geti fengið leyfi til starfsemi á sviði ferðamiðlunar, en í 21. gr. fylgifrv. um erlendar fjárfestingar er farin allt önnur leið. Alþingi er því með tvö lagafrumvörp í gangi, tvö stjfrv., annað segir þetta og hitt segir hitt. Í umsögn Félags íslenskra ferðaskrifstofa er beðið um að þetta sé leiðrétt, en hæstv. ríkisstjórn og stjórnarflokkarnir aðhafast ekki neitt. Hvers vegna? Sjálfsagt vegna þess að þeir eiga ekkert von á því að þessi frv. verði að lögum. Ég held að það sé helsta ástæðan fyrir þessu því að ef það væri einhver áhugi á því að gera þessi frv. að lögum, þá mundi auðvitað hæstv. ríkisstjórn, viðkomandi hæstv. ráðherrar og viðkomandi meiri hlutar í þingnefndum, sjá til þess að samræma stjfrv. að þessu leyti. Á þetta vil ég benda ef ske kynni að meiri hl. hefði einhvern áhuga á því að samræma það sem hann er að gera hér á hinu háa Alþingi.