Geir H. Haarde :
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að beina einni spurningu héðan úr ræðustól til hæstv. viðskrh. sem fylgdi þessari skýrslu svo ágætlega úr hlaði. Hann má gjarnan svara henni úr sæti sínu ef hann vill. ( Forseti: Hann má það ekki, hv. þm.) Eigum við ekki að leyfa viðkomandi ráðherra að ákveða hvort hann skýtur hér inn einu jái eða neii? Ég hygg að annað eins hafi nú gerst. ( Fjmrh.: Alveg rétt, alveg rétt.) Það var enginn að tala við þig, hæstv. fjmrh. En það var hins vegar í tilefni ummæla hæstv. fjmrh. í sjónvarpinu í kvöld að mig langar að spyrja hæstv. viðskrh. eftirfarandi spurningar: Telur hann að það sé svo eftir að hann skipaði bankastjóra Seðlabankans 1. febr. sl. að Seðlabankinn sé orðin áróðursstofnun fyrir Sjálfstfl.? ( Fjmrh.: Það er augljóst mál.) Ég sé að hæstv. ráðherra hristir hausinn. Hann þorir auðvitað ekki að ganga gegn vilja forseta og segja það upphátt en ég sé ekki annað en hæstv. viðskrh. hafi hrist hausinn, þrátt fyrir frammíköll félaga síns, fjmrh.
Auðvitað er þessi málflutningur sem bæði hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh. gera sig hvað eftir annað seka um varðandi þessi málefni fyrir neðan allar hellur. Ég gleðst yfir því og fagna því að hæstv. viðskrh. lætur ekki draga sig niður á þetta plan. Hann hefur fjallað um þessi mál með mjög málefnalegum hætti að mínum dómi og auðvitað er það þrátt fyrir allt fagnaðarefni að það skuli þó einhvers staðar í ríkisstjórninni þrátt fyrir allt vera einhver fyrirstaða í þessum efnum þannig að hæstv. forsrh. með sínar villukenningar geti ekki vaðið hér uppi og eyðilagt lánsfjármarkaðinn á Íslandi.
Ég ætla að benda á eitt sem gæti verið innlegg í þessar umræður en hefur ekki komið glöggt fram áður að því er ég best man í umræðum hér á hinu háa Alþingi. Í haust var lögð fram þjóðhagsáætlun og spár henni tengdar frá Þjóðhagsstofnum um helstu hagstærðir. Þar var fullyrt að viðskiptajöfnuðurinn á síðasta ári, þ.e. árinu 1990, yrði neikvæður um 6,7 milljarða kr. En í dag útbýtti hæstv. fjmrh. skýrslu sinni um ríkisfjármál á síðasta ári og þar koma fram upplýsingar frá Þjóðhagsstofnun um helstu þjóðhagsstærðir. Þar kemur fram, sem reyndar var áður fram komið af hálfu Þjóðhagsstofnunar, að viðskiptahallinn á síðasta ári var ekki 6,7 milljarðar heldur rúmlega 10 milljarðar. Það munar nú um minna í þessu dæmi öllu saman. Það hefur komið fram að erlend lántaka jókst á síðasta ári umfram það sem spár gerðu ráð fyrir, til að fjármagna m.a. þennan viðskiptahalla. Auðvitað væri það glapræði að grípa til einhverra þeirra aðgerða hér í peningamálum eða fjármálum sem yrðu til þess að auka þennan halla og auka þar með enn erlendu lántökurnar. En þannig er að ef tillögur þær sem hæstv. forsrh. vill gera að sínum og hefur beint, að vísu fyrir milligöngu viðskrh., til Seðlabankans í bréfi 21. febr. sl. næðu fram að ganga, hvaða áhrif halda menn að það hefði á viðskiptajöfnuðinn og stöðu þjóðarbúsins út á við? Það er sanngjörn lágmarkskrafa að menn reyni að vera sjálfum sér samkvæmir í þessum málum.
Ég vil síðan koma hér að nokkrum atriðum í þessari skýrslu sem Seðlabankinn sendi ríkisstjórn og hún hefur lagt hér fram á Alþingi að beiðni nokkurra þingmanna Sjálfstfl. Þar er vikið að nokkrum þeim ráðstöfunum sem nauðsynlegt sé að gera til þess að halda aftur af hinni óhóflegu lánsfjáreftirspurn ríkisins sem er auðvitað meginorsök hinna háu raunvaxta eins og allir virðast sammála um, eins og glöggt kom fram í máli hæstv. viðskrh. Það bendir reyndar allt til þess að lánsfjáreftirspurn ríkisins á þessu ári verði hvorki meiri né minni en 62 -- 65% af öllu því fjármagni sem á boðstólum verður á Íslandi, hvorki meira né minna. Hér er vikið að nokkrum aðgerðum sem Seðlabankinn telur rétt að grípa til til að sporna gegn þessari lánsfjáreftirspurn. Hæstv. ráðherra viðskipta kom að nokkrum þeirra í ræðu sinni, tók undir nokkur atriði, afþakkaði ráðgjöf um önnur atriði en sleppir hins vegar að því er mér best heyrðist nokkrum af þeim atriðum sem bankinn gerir að sínum tillögum. Ég á þá fyrst og fremst við þær tillögur sem bankinn hefur hér gert, kallar reyndar í sínu skjali tillöguhugmyndir, og lúta að fjármögnun húsnæðislánakerfisins. Þessar tillögur eru í fimm liðum. Ráðherrann tók undir það að nauðsynlegt væri að loka lánakerfinu frá 1986 svo að ekki komi til frekari lánveitinga úr því kerfi. En ef það skyldi nú hafa farið fram hjá einhverjum, þá hefur það lánakerfi verið lokað mánuðum og missirum saman. Ef menn vilja loka því þá liggur frv. frá ríkisstjórninni sjálfri hér til meðferðar í næsta sal, í Ed., þannig að það ættu að vera hæg heimatökin hjá ríkisstjórninni að koma því í lag ef það er það sem hún vill.
Síðan er talað um nauðsyn þess að hækka nú þegar vexti á nýjum lánum úr Byggingarsjóði ríkisins. Ráðherrann vék ekki að því atriði. En á bak við hugmyndina að loka lánakerfinu frá 1986 liggur auðvitað að ekki verði veitt ný lán úr Byggingarsjóði ríkisins. Hins vegar er í því frv. sem liggur hér fyrir Ed. gert ráð fyrir þeirri nýstárlegu hugmynd að vextir hækki þegar íbúðir skipta um eigendur.
Fæ ég ekki alveg séð hvernig lögfræðin á bak við það atriði er hugsuð. Í þriðja lagi nefnir bankinn að rétt sé að athuga hvort ekki eigi að loka fyrir heimild til lánveitinga til byggingarverktaka sem er í reglugerð um húsbréfaviðskipti. Ég minnist þess ekki að ráðherra hafi vikið að þessu. Hins vegar nefndi hann að hann væri ósammála fjórða atriðinu varðandi veitingu greiðsluerfiðleikalána, að heimilt væri að gefa út húsbréf til þess að mæta vanda þeirra sem eru í greiðsluerfiðleikum. Frv. um þetta efni var samþykkt hér fyrir jólin. Það var áætlað að þetta mundi verða um það bil milljarður á ári. Félmrh. hefur sagt að þetta muni ekki verða til að auka fjármagnsþensluna vegna þess að með þessum greiðsluerfiðleikalánum létti menn á skuldabyrði sinni og borgi upp lán sem fyrir hendi eru í bankakerfinu. Sennilega er það nú rétt.
En í fimmta lagi, og það er líka atriði sem viðskrh. kom ekki að, gerir Seðlabankinn að tillögu sinni að frestað verði fyrirhugaðri hækkun lánshlutfalls úr
65 í 75% vegna nýbygginga og fyrstu íbúðakaupa. Félmrh. hefur haldið því fram að þetta atriði sé líka vitleysa og muni engin áhrif hafa vegna þess að ef menn fá ekki 75% muni menn sækja þessi 10% sem á vantar í bankastofnanir hvort sem er. En ætli hugmyndin á bak við þetta sé nú ekki sú að einhver fresti þá að fara út í byggingar, kaup eða framkvæmdir? Ætli það séu ekki slík áhrif sem gert er ráð fyrir af hálfu bankanna? En mig langar til að óska eftir því að hæstv. ráðherra taki afstöðu til þessara tveggja atriða sem hann vék ekki að í sínu máli. Og þá væri jafnframt fróðlegt að fá upplýsingar um það hvort ríkisstjórnin í heild hyggst ganga hreint til verks að því er þessi atriði varðar og vinda sér í það að afgreiða það stjfrv. sem liggur fyrir í Ed. og grípa til annarra þeirra ráða og ráðstafana sem hér er vikið að. Ég spyr: Er það meiningin?
Að öðru leyti, virðulegi forseti, held ég að umræða sem þessi og skýrslan frá Seðlabankanum varpi skýru ljósi á þann gríðarlega tvískinnung sem uppi er af hálfu ríkisstjórnarinnar og stjórnarflokkanna og einstakra ráðherra í vaxtamálum. Auðvitað er alveg ljóst að ríkisstjórnin leikur tveimur skjöldum í þessum málum. Einstakir ráðherrar segja það sem þeim dettur í hug en framkvæmdin og stjórnarstefnan er óbreytt, í það minnsta er hæstv. viðskrh., sem er ábyrgðarmaður þessara mála, varðar. Það er alveg hrikalegt fyrir allan almenning að þurfa að horfa upp á þann málflutning sem hæstv. ráðherrar hafa í þessum málaflokki og auðvitað hreinasta ómynd hvernig hæstv. forsrh. talar út og suður í þessum málaflokki og skýtur sér svo alltaf á bak við það að hann geti ekki komið stefnu sinni fram í eigin ríkisstjórn vegna þess að viðskrh. sé honum ekki sammála. Þetta er hvorki mannlegt né stórmannlegt. En það vill til að í þessum vaxtamálum eins og reyndar í ýmsum öðrum málum sem hér eru rædd í þinginu gefa menn orðið ansi lítið fyrir yfirlýsingar hæstv. forsrh.