Vaxtamál
Þriðjudaginn 12. mars 1991


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Ég ætlaði ekki að taka aftur til máls í þessari umræðu, en hv. þm. Friðrik Sophusson bar hér fram spurningu sem ég tel óhjákvæmilegt að svara vegna þess að það kynni að valda misskilningi ef henni væri ekki svarað.
    Ég hef sagt það í þessari umræðu og það kemur einnig fram í þeirri skýrslu sem hefur verið lögð fyrir þingið að lánsfjárþörf ríkissjóðs vegna ársins 1990 var algerlega mætt innan lands. Þeirri þörf sem skapaðist vegna reksturs ríkissjóðs á síðasta ári var allri fullnægt á lánsfjármarkaði innan lands. Hins vegar er það rétt hjá hv. þm. að ríkissjóður notaði að nokkru leyti tæplega 4 milljarða kr. heimild sem hann hafði í lánsfjárlögum til erlendrar lántöku. Þessi heimild var notuð til að greiða afborganir af erlendum lánum ríkissjóðs,
til greiðslu á skammtímaskuld í Seðlabanka vegna ársins 1989 og inneignar ríkissjóðs á hlaupareikningi Seðlabankans og hafði því engin áhrif á peningamyndunina í landinu á árinu 1990. Þetta sést best á því að greiðsluhreyfingar ríkissjóðs gagnvart Seðlabanka Íslands voru jákvæðar sem nam 5,6 milljörðum kr. á árinu 1990. Þar af varð 2,5 milljarða kr. bati á skamtímareikningi A - hluta og varð niðurstaðan á þeim reikningi jákvæð í árslok sem nam 0,3 milljörðum kr. ( FrS: Hvernig var staðan ...?) Hv. þm. getur alveg fengið svar við því ef hann vill halda áfram að fá upplýsingar. Ég er eingöngu að fjalla um það sem hann sagði hér í sinni ræðu og vekja athygli á þeirri staðreynd að í árslok 1990 átti ríkissjóður inni hjá Seðlabankanum og það hefur ekki gerst í elstu manna minnum af þeim sem þekkja málefni ríkissjóðs. Hv. þm. er hér í þingsalnum að kalla til þingmanna Sjálfstfl. einhverjum huggunarorðum að það hafi bara verið fram yfir áramótin. Það var svona álíka eins og hv. þm. hélt því fram hér undir þinglokin í fyrra ásamt hv. þm. Geir Haarde, ef ég man rétt, ég skal þó ekki fullyrða það, en ég man vissulega að það var hv. þm. Friðrik Sophusson sem fullyrti það undir þinglokin í fyrra að ríkissjóði mundi alls ekki takast að fullnægja þörf sinni innan lands á árinu 1990 vegna þess að salan á spariskírteinum ríkissjóðs á fyrstu mánuðum ársins 1990 hefði verið dræm. Reynslan sýndi hins vegar að þessi skilningur hv. þm. á ríkisfjármálunum var ekki réttur. Ríkissjóði tókst að ná öllum þessum markmiðum. Og það er með nákvæmlega sama hætti sem hv. þm. kemur hér í ræðustólinn og fer að lesa tölur af fyrstu mánuðum annars vegar vegna innlausnar og hins vegar vegna sölu spariskírteina á fyrstu tveimur mánuðum þegar allir hv. þm. vita að það er aðeins í fáein skipti, stundum einu sinni á ári, sem spariskírteinaflokkar koma til innlausnar og það verður auðvitað ákveðið útstreymi á þeim vikum sem sú innlausn á sér stað, en aðrir mánuðir eru síðan notaðir til þess að vega það upp. Og það er kannski ekki von til þess að Sjálfstfl. skilji samhengið í ríkisfjármálum og hagkerfinu ef túlkunin á tölunum er líka svona í flokksherbergjum

Sjálfstfl. Þess vegna er það staðreynd að ríkissjóði tókst fullkomlega að fullnægja þörf sinni vegna ársins 1990 á innlendum markaði en tók ekki til þess erlend lán eins og hv. þm. var að gefa í skyn í sinni ræðu.
    Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að fara að elta ólar við það sem hv. þm. sagði um fagleg vinnubrögð og starfsvettvang minn. Ég vil hins vegar bara vekja athygli á því að það er grundvallarmunur á þeim mönnum sem leggja á sig margra ára menntun og standast þau próf sem fyrir þá eru lögð og ganga síðan undir ströng hæfnispróf um framkvæmd þeirra í þessu tilviki af hálfu alþjóðlegrar dómnefndar eftir margra ára nám og vinnu og svo því að stjórnmálaflokkur tilnefni menn í stöðu. Það sem ég var að gagnrýna hér var ekki hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson persónulega, það hef ég aldrei gert, heldur það kerfi að Sjálfstfl., eða aðrir flokkar, tilnefna fulltrúa í stöðu bankastjóra, hvort sem það er seðlabankastjóri eða viðskiptabankastjóri, og sami maður er út á þá tilnefningu eina kominn með faglega hæfni í bankamálum. Það er auðvitað ekki þannig og það veit hv. þm. Friðrik Sophusson að svo er ekki. Hins vegar væri fróðlegt að Sjálfstfl. svaraði því sem ég spurði hann um í umræðunni þótt það yrði seinna. Hann þarf ekki að svara því hér í kvöld til að lengja umræðuna en hann má gera það seinna. Hvers vegna tilnefndi Sjálfstfl. bankastjóra í Seðlabankann? Hver var tilgangur Sjálfstfl. með því að tilnefna einn af forustumönnum sínum í stól seðlabankastjóra, forustumann sem heldur áfram að vera í framboði fyrir Sjálfstfl. eftir að hann er orðinn seðlabankastjóri, hver var tilgangur Sjálfstfl.? ( Gripið fram í: Í hvaða sæti er hann?) Hann er sjálfsagt í einu af neðstu sætum listans. Það breytir því ekki að Sjálfstfl. kaus að tilnefna flokkslegri tilnefningu og við þurfum að fá svar við því í hvaða tilgangi Sjálfstfl. gerði það.