Geir H. Haarde :
Virðulegur forseti. Ég þakka forseta. Mér þykir sem hv. 6. þm. Norðurl. e. og hv. 2. þm. Austurl. séu eiginlega að ástæðulausu viðskotaillir vegna þessa máls. Ég sé ekki betur en sú þáltill. sem hér er til umræðu þýði það eitt að Alþingi álykti að eigi skuli meina hæstv. iðnrh. að halda áfram viðræðum við hina erlendu aðila sem að undanförnu hefur verið rætt við um þetta mannvirki. Ég held að það sé alveg ástæðulaust að tala hér í marga sólarhringa um jafnsjálfsagðan hlut. Ég held að við ættum bara að skvera þessu máli af í nótt þannig að það megi koma fyrir fund í atvmn. sameinaðs þings sem búið er að boða í fyrramálið. --- [Fundarhlé.]