Stefán Valgeirsson :
Virðulegi forseti. Ég ræddi um það í þingskapaumræðu í kvöld að mig undraði nokkuð þessi vinnubrögð á Alþingi nú vegna þess að það var byrjað á þessari umræðu í gær en ekki haldið áfram kl. 9 í kvöld eins og eðlilegt hefði verið. Ég skildi það á hæstv. forseta að það hefði verið samkomulag við formenn þingflokkanna að haga störfum svona. Ég ræddi nú við formann þingflokks Sjálfstfl. og hann tjáði mér að hann hefði einmitt bent forseta á það að eðlilegast væri að byrja á þessari umræðu þegar fundur hæfist í Sþ. kl. 9. Þetta vil ég átelja hér og nú.
Ég mun hér á eftir fara nokkuð út í raforkuverðið og kostnaðinn, en ég sé að hv. 1. þm. Norðurl. v. er ekki hér og hann mun vera sá eini sem er í stjórn Landsvirkjunar hér á þingi, að ég hygg. Það þýðir það að ég mun verða að flytja við síðari umræðu þann hluta af ræðu minni þar sem ég fjalla um það málefni. En áður en ég kem að því vil ég beina orðum mínum til hæstv. umhvrh., og vona að hann hlýði á mál mitt.
Mér finnst það nefnilega ákaflega dapurlegt að hæstv. umhvrh. skuli vera settur í þá stöðu að þurfa að gefa starfsleyfi fyrir þessu risaálveri, og það skuli eiginlega vera hans fyrsta verk sem nokkru máli skiptir í þessu ráðuneyti eftir að hann tekur við.
Eins og hv. síðasti ræðumaður sagði hér --- og ég ætla ekki að fara mörgum orðum um það sem hún fjallaði um en það er mengunin. En þó verð ég að bæta einu við. Ég er með sjónvarpsspólu frá Noregi sem var sýnd í norska sjónvarpinu 6. jan. sl. af álveri þar og þeim áhrifum sem það hefur haft á umhverfið. Ef einhver vildi fræðast um þetta þá get ég lánað þessa spólu. En það var ekki 6 km frá, það var 10 km frá staðnum sem sýni voru tekin til rannsóknar af vísindamönnunum norsku í sambandi við þessa mynd. Það var óhuggulegt að sjá þann skaða sem álverið hafði leitt til á gróðri og á dýrum, t.d. á jórturdýrum. Það var sýnt hvernig þau voru leikin.
Í þessari mynd kemur líka fram að allt líf í þessum þrönga firði, eða a.m.k. að mestu leyti, var dautt. Úrgangurinn úr kerskálunum var settur í flæðigryfju og þetta var árangurinn. Þetta var árangurinn. Svo eru menn að tala hér um hreint land og ætla að ráðast í þetta mannvirki.
Ég hygg að hæstv. umhvrh. hefði gott af því að sjá þessa mynd. Og ég mun reyna að sjá til þess að hún verði sýnd á annarri hvorri sjónvarpsstöðinni áður en langt um líður.
Nú sé ég að hæstv. iðnrh. er horfinn úr salnum. En ég ætla að enda þetta með einni spurningu til hæstv. umhvrh.: Hefur hann ákveðið að gefa út starfsleyfi þó að fyrir liggi að þetta risaálver hefur mjög mikil mengandi áhrif og að í augum erlendra manna er það ekki tákn þess að hér sé hreint land þegar þeir koma og sjá þessi álver hlið við hlið, heldur tákn þess að það sé ekki hreint land hér? Ætlar hæstv. umhvrh. að láta sitt nafn undir slíkt leyfi? Ég vil fá svör við því.
En nú er ég kominn að því efni þar sem ég ætlaði að beina orðum mínum til iðnrh. og raunar líka forsrh. En á meðan það er ekki vil ég leggja eina spurningu fyrir hæstv. landbrh., vegna þess að hann hefur verið með yfirlýsingar um að hann muni aldrei samþykkja álver á Keilisnesi. Já, hæstv. iðnrh. er alveg meistari í sínum blekkingarleik. Hann byrjaði með því að láta í það skína að það kæmi til mála að byggja álver við Reyðarfjörð eða við Eyjafjörð, talaði fyrst og fremst um þessa tvo staði, og svo kæmi til mála að byggja það á Reykjanesi. Þetta vakti miklar væntingar hjá fólki á þessum stöðum. Og hann gerði meira. Hann lét rita bréf að mig minnir 13 bæjarfélögum og 29 hreppum. ( Forsrh.: Átti ég að hlusta á þetta?) Þú áttir að hlusta á það því ég hélt að forsrh. bæri ábyrgð á þeirri ríkisstjórn sem hann stjórnar. Er það misskilningur? Ber hann ekki ábyrgð á henni? ( Forsrh.: Samkvæmt stjórnarskránni fer iðnrh. með þetta mál.) Og koma forsrh. ekkert við þau glappaskot sem ráðherrar hans gera? (Gripið fram í.) Ja, það er alveg nýtt fyrir mér ef forsrh. ber ekki ábyrgð á ríkisstjórn. ( Forsrh.: Jú, jú. Hann ber ábyrgð á ríkisstjórninni.) Það er alveg merkilegt og það er gott að það komi fram í þingtíðindum að hann telji sig ekki ábyrgan fyrir gerðum iðnrh. í þessu máli. ( Forsrh.: Ég get vísað honum úr ríkisstjórninni ef mér líkar ekki það sem hann gerir.) Sem sagt, hann viðurkennir það hér og nú að hann beri ábyrgð á því. Því ef honum fyndist hann ekki standa í stykkinu þá mundi hann vísa honum úr ríkisstjórninni. Það liggur í orðum hæstv. forsrh.
En það var ein setning sem iðnrh. sagði sem varð til þess að ég skildi hvar fiskur lá undir steini. Hann sagði: Auðvitað ráða byggjendurnir, álfurstarnir, því hvar byggingin rís.
Á stórum fundi á Akureyri komu menn frá iðnrn. og það kom maður frá markaðsnefnd iðnrn. og Landsvirkjunar og ég mun koma svolítið að því síðar í ræðu minni sem mönnum fór þar á milli. Þetta var stór fundur og menn voru með miklar væntingar og þar sem ég stóð nú hér um bil einn þarna og benti á hvílíkt glapræði það væri fyrir bæinn, fyrir héraðið að vænta þess sem aldrei mundi koma og halda að sér höndum að byggja annað upp vegna þess að væntingarnar voru það miklar og vegna þess að þeir sáu fram á það að þeir mundu eiga erfitt með að keppa um vinnuaflið þegar verið væri að reisa slíka risabyggingu. Og þegar ég sagði að það mundi aldrei koma hér, og hefði aldrei staðið til, þá komu þeir upp hver af öðrum og töldu mig vera orðinn elliæran og aðrir sögðu: Er verið að hafa okkur að fíflum? Það voru þeirra orð.
En þessi blekkingarleikur varð til þess að menn á Austurlandi, menn við Eyjafjörð, áttuðu sig ekki á þessum vinnubrögðum. En hvað skeði? Allir þingmenn Norðurl. e. fengu fund með stóriðjunefnd og mönnum frá iðnrn., frá markaðsnefndinni, til að ræða þessi mál.
Og þar kom að formaður stóriðjunefndar sagði okkur frá því að Reyðarfjörður væri úr myndinni. Við spurðum nú um Eyjafjörð og hann vildi meina það að
hann væri í myndinni á þeim dögum. Hins vegar var nokkru síðar fjórðungsþing á Sauðárkróki þar sem hæstv. iðnrh. gat um það að allir staðirnir væru í myndinni. Ég segi þetta hér til þess að sýna og sanna hvers konar blekkingarleikur hefur verið viðhafður í þessu máli. En það er fleira.
Ég held það hafi verið í dag sem hv. 1. þm. Norðurl. v. játaði það hér á hinu háa Alþingi að ástæðan fyrir því að hann hefði látið af andstöðu við álver væri sú að það væri komið svo mikið fjármagn í Blönduvirkjun að það yrði einhvern veginn að selja þá orku. Mér fannst þetta ákaflega sérkennilegt, að eins glöggur maður og hv. 1. þm. Norðurl. v. er skuli ekki átta sig á hvað er á ferðinni í þessum samningum um orkuverð til álbræðslunnar, að það er ekki meiningin að fá mikið fyrstu árin eða mörg ár fyrir orkuna í Blöndu. Það er forgjöfin.
Ég hef komist í greiðsluáætlun Landsvirkjunar sem var gerð 1990 og hún er fyrir tímabilið frá 1990 til ársloka 2004. Þar eru um 6 millj. meðtaldar í þeirri skuld, ef ég hef skilið það rétt, sem er miðað við hjá Landsvirkjun um greiðslu á skuldinni þar sem þeir telja að skuldin hafi verið með þessu um 38 eða 39 milljarðar. En miðað við að engin virkjun yrði gerð, miðað við að engin stóriðja yrði byggð, þá væri búið að borga allar skuldir upp í árslok 2004. Miðað við allt óbreytt og verðlag í árslok. Þetta er gert í október 1990.
Þetta segir okkur að það er gert ráð fyrir því að landsmenn, notendurnir í landinu, borgi þessa virkjun á þessu fjórtán ára tímabili. Sagt er að eftir þann tíma standi greiðslur frá stóriðjunni, þ.e. Járnblendiverksmiðjunni, álverinu í Straumsvík og Áburðarverksmiðjunni, undir rekstrarkostnaði Landsvirkjunar. Verðið á orkunni er það hátt að á þessu tímabili á Landsvirkjun að vera skuldlaus, meira að segja búin að borga Blönduvirkjun að fjórtán árum liðnum. Enda náttúrlega þegar menn fara að skoða önnur gögn frá Landsvirkjun þá kemur það í ljós að það nær ekki nokkurri átt að raunverð á orkunni sé innan við 20 mill.
Ég hef hér skýrslu fyrir framan mig sem sýnir held ég fimmtán virkjunarmöguleika sem eru samtals 8000 árs-kílóvattstundir. Auðvitað væri það rétt viðmiðun að miða við það að orkan kostaði að meðaltali það sem þessar virkjanir allar kosta. Ef það er reiknað þannig þá kostar hver ein gwst. að meðaltali tæpar 16 millj. Sem sagt það er um eða yfir 30 mill sem þessi orka raunverulega kostar. Það er nú öll hagnaðarvonin sem er af þessum álsamningi.
Það er auðvitað alveg furðulegt, eins og þessi mál eru í tvísýnu, að það skuli vera óskað eftir því að halda áfram að taka lán og undirbúa virkjun þegar það er engin vissa, m.a.s. mjög mikil óvissa um að þessir samningar fáist.
Hæstv. iðnrh. leggur á þetta slíkt ofurkapp að það er bara eins og hann sjáist ekki fyrir í þessu máli. Auðvitað eru það kosningarnar fyrst og fremst eftir allar yfirlýsingarnar, eftir blaðaskrifin, eftir alla þessa umfjöllun, það komi nú eitthvað fyrir kosningarnar
sem sé hægt að hampa á kosningafundunum. Þáltill. út af fyrir sig er í raun og veru einskis virði, en það á að berja hana hér í gegn á hv. Alþingi til þess að það sé hægt að sýna að það sé samstaða um þessa vitleysu. Það á að sýna það. Og því er treyst að það sé ekki farið ofan í þessi mál nógu grannt til þess að menn sjái og skilji hvað hér er á ferðinni.
Í grg. með þessari þáltill. er ýmislegt sem er dálítið merkilegt, ef maður miðar við yfirlýsingarnar og skrifin og fyrirheitin og allt það. Hér stendur m.a., með leyfi forseta: ,,Keilisnes er einn besti staður sem völ er á undir stóriðju hér á landi og jafnvel sá eini sem til greina kemur á Suðvesturlandi. Því er um skynsamlega framtíðarfjárfestingu að ræða sem nauðsynlegt er að hið opinbera hafi á sínum snærum.``
Þetta er sagt til þess að rökstyðja það að lána Vatnsleysustrandarhreppi mikið fjármagn, til þess að kaupa land, til þess að fara að byggja höfn og það áður en nokkuð liggur fyrir hvort af þessu verður.
Í þessari grg. er einnig sagt frá því að það sé fyrst og fremst tvennt sem standi í mönnum og ekki sé búið að leysa. Annars vegar trygging fyrir því að greiðslur komi þó að álbræðslan stöðvist eða verði lítil framleiðsla, og hins vegar verðið. Sem sagt tvö atriðin sem öllu skipta. Hæstv. iðnrh. hefur margoft tekið það fram að auðvitað verði ekki álver byggt öðruvísi en það fáist fyrir orkuna raunverulegt kostnaðarverð. Ætli þessi orð standi ef grannt er skoðað? Ég segi nei og ég skal segja þrisvar sinnum nei. Og ég skora á hæstv. iðnrh. að koma og hrekja það sem ég hef sagt hér um þann kostnað sem er raunverulegur kostnaður og þó er ekki reiknað neitt með landspjöllum sem af þessu leiðir eða hvað Austfirðingar fái fyrir það að orkan er tekin af þeim og flutt hingað vestur á Vatnsleysuströnd.
En það er fleira sem er sérkennilegt við öll þessi vinnubrögð. Það er enn þá fleira. Ég var með fsp. hér á dögunum um þessi málefni, fsp. sem hljóðaði svo, með leyfi forseta:
,,1. Hefur iðnrh. falið Háskóla Íslands að halda áfram athugun á hagkvæmni vetnisframleiðslu hér á landi í samstarfi við Þjóðverja?
2. Hafi það ekki verið gert, hefur öðrum þá verið falin athugunin? Og þá hverjum?``
Í þessum umræðum kemur fram að það er búið að skipa nefnd um þetta mál og það er sjálfsagt ekki nein tilviljun að sá maður, sem hefur fyrst og fremst haft samskipti við aðrar þjóðir, er ekki settur í nefndina. Maðurinn sem hefur athugað þetta í 30 ár og hefur flutt fyrirlestra, skrifað blaðagreinar, fimmtíu til sextíu sinnum. Og hæstv. ráðherra segir í svari sínu --- ég ætla nú ekki að lesa mikið af því, með leyfi forseta: ,,Og ég endurtek það sem ég sagði hér áðan að frumkvæðið að þessum samskiptum við vetnisfélagið þýska og við Evrópubandalagið er frá iðnrn.`` --- Það segir að vísu til viðbótar ,,í þetta sinn``.
Það vill svo til að ég hef í fimmtán ár fylgst með Braga Árnasyni prófessor í þessu máli. Ég hef látið gera athugun á því hvernig þessi samskipti Íslendinga og Þjóðverja hafa gengið fyrir sig.
Í þetta sinn er það þann 26. febr. 1990 sem dr. Bragi Árnason prófessor hefur samband við Þjóðverjana og hans spurning er almennt hvernig standi þýska vetnisverkefnið. Þetta er í febrúar. Hann fær svar 12. mars sama ár þar sem lýst er áhuga og send rannsóknarskýrsla um þetta verkefni. Dr. Bragi ritar aftur prófessornum sem um þetta hefur forustu 22. mars þar sem bent er á að Ísland sé e.t.v. heppilegri samstarfsaðili en Kanada. Fjarlægð til útflutningshafnar frá þeim stað þar sem virkjað muni verða í framtíðinni er aðeins 35 km, þ.e. fjarlægðin frá austurströnd Íslands til Hamborgar, aðeins 1 / 3 fjarlægðarinnar frá Hamborg til Kanada.
Þann 26. apríl fær dr. Bragi næsta bréf og þar kemur fram mikill áhugi þýskra aðila á samstarfi og óskað er frekari upplýsinga. Hann segist muni ræða þetta mál við hóp sem vinni að þessu samstarfsverkefni við Kanada. Einnig ætlar hann að kynna málið fyrir rannsókna- og tækniráðuneytinu.
Það er ekki fyrr en á þessu stigi að hann fer og upplýsir iðnrn. um hvað hefur gerst í málinu. Það er ekki fyrr en á þessu stigi. Og það kom fram á fundinum í Sjallanum á Akureyri þegar ég spurði um þetta mál að markaðsfulltrúinn, Andrés Svanbjörnsson, hafði ekki hugmynd um að þetta verkefni væri í gangi. Þarna voru 400 manns vitni að þeirri yfirlýsingu. Og þegar ég innti hann eftir því hvernig á þessu stæði --- ja, hvert var svarið? Það var svo mikið að gera hjá markaðsnefndinni í kringum þessa álverksmiðju að þeir gátu ekki sinnt öðru. Þetta eru nú vinnubrögð sem hægt er að hrópa húrra fyrir. Ég geri það a.m.k. ekki.
Ég mun nú, hæstv. forseti, fara að stytta mál mitt. Klukkan er líka að verða þrjú og kominn tími til að fara að hvíla sig fyrir flesta, enda er fámennt hér í þinginu.
En ég vil endurtaka spurningu mína til hæstv. umhvrh., hvort hann ætli virkilega að setja nafn sitt undir starfsleyfið og ég óska eftir því að ráðherrann svari því nú þegar ég hef lokið máli mínu því ég mun ekki dvelja lengur hér í salnum að þessu sinni.