Upplýsingaskylda stjórnvalda
Miðvikudaginn 13. mars 1991


     Eyjólfur Konráð Jónsson :
    Herra forseti. Það er að sjálfsögðu rétt sem hv. formaður allshn. Ed. sagði að samkomulag var um að þetta mál gengi til 2. umr. og gegnum þá umræðu ef verkast vill. Þetta er auðvitað mjög flókið mál og þó er enn þá flóknara hitt frv., um stjórnsýslulögin, sem var hér til umræðu áðan. Við vorum sammála um að það væri rétt að þessi hv. deild skilaði sínu áliti og álit hennar er, eins og fram kom, að þetta sé gott mál en þó eru á því margir hnökrar og auðvitað eru skiptar skoðanir um margt. Það er þó mikils virði býst ég við fyrir þá sem leggja kapp á framgang
málsins eða málanna sem raunar taka ekki gildi fyrr en 1992, en til þess að sýna að það sé vilji á þessu þingi, hvað sem verður um það næsta, að greiða fyrir framgangi þessara mála, þá höfum við sameinast um að láta málið ganga til 2. umr. og væntanlega til atkvæðagreiðslu við 2. umr. en gerum ekki ráð fyrir að málið fari til hv. Nd.