Guðrún J. Halldórsdóttir :
Virðulegi forseti. Ég verð að taka undir með hv. 2. þm. Norðurl. e. Hann sagði að þetta frv. kæmi afskaplega seint fyrir okkar deild og væri þar af leiðandi erfitt að gera því nokkur skil sem vert væri. Það er alvörumál þegar fjalla á um grunnskólafrv., frv. sem varðar hvert einasta barn í öllu landinu og má ekki kasta til þess höndum, síður en svo.
Ég er eigi að síður sannfærð um að þetta frv. hefur afskaplega marga góða kosti. Það kveður á um ýmsa hluti sem við kennarar og skólafólk höfum látið okkur dreyma um lengi og höfum barist fyrir lengi. Og það er sama í hvaða flokki við höfum staðið. Má þar nefna fyrst og fremst einsetinn skóla og samfelldan skóladag. Þetta tvennt, einsetinn skóli og samfelldur skóladagur, er höfuðmál fyrir íslensk börn. Það hefur um langan aldur verið þannig að þau hafa þurft að hrökklast milli heimilis og skóla kannski tvisvar eða þrisvar á dag og komið heim á heimilin tóm og köld og orðið svo að passa sjálf upp á það hvenær þau ættu að mæta aftur í aukatímana sína. Það hefur verið óviðunandi allt frá upphafi og verður sífellt meira og meira vandræðamál, a.m.k. á Reykjavíkursvæðinu, eftir því sem borgin tekur á sig meiri stórborgarsvip og fleiri vinna utan heimilis.
Það hafa, eins og við vitum, verið gerðar nokkrar tilraunir til samfellds skóladags hér á Reykjavíkursvæðinu og þess að veita börnum skjól og aðstoð utan skólatíma. Það er auðvitað þakkarvert og ánægjuefni en þetta hefur ekki verið altíða. Þetta hefur aðeins verið í undantekningartilfellum og það hafa í flestum tilfellum verið börn sem voru mikils þurfandi sem fengu notið slíkrar fyrirgreiðslu. Að sjá frv. þar sem gert er ráð fyrir einsetnum skóla og samfelldum skóladegi það finnst mér mjög mikið gleðiefni.
Mig langaði að gera að umtalsefni nokkur fleiri atriði í þessu lagafrv. en get alls ekki gert því nein fullnægjandi skil vegna þess að ég hef ekki haft tíma til þess að kynna mér þau sem ég vildi. Það er gert ráð fyrir kennsluráðgjöfum í þessum lögum. Það er rétt að kennsluráðgjafar hafa verið á vegum fræðsluskrifstofa nú um nokkurt skeið, kannski verið kallaðir ýmsum nöfnum, en mér er það fullljóst og öllum kennurum hversu mikilvægir kennsluráðgjafarnir eru, ekki síst fyrir kennara sem kenna einir í grein sinni eða eru nýir í störfum. Kennsluráðgjafarnir eru ómetanlegir fyrir slíka kennara. Þetta á auðvitað ekki síst við út um landið þar sem oft eru nýir, óreyndir og jafnvel ómenntaðir kennarar. Fyrir slíka kennara er það lífsnauðsyn að eiga aðgang að kennsluráðgjöfum.
Kennslugagnamiðstöðvar við hverja fræðsluskrifstofu eru líka í þessu frv. Það hefur löngum verið draumur Kvennalistans að koma upp slíkum kennslugagnamiðstöðvum. Við höfum borið fram tillögur um þetta og fögnum því auðvitað að sjá það í þessum lögum.
Um aukinn þátt foreldra í stjórnun grunnskóla vildi ég segja það að ég fagna því ef hægt er að koma því svo fyrir að foreldrar taki virkari þátt í stjórnun skólans og í skólastarfinu á ýmsan veg. Það væri til bóta, ekki bara fyrir skólann heldur fyrir fjölskyldurnar sjálfar, því að allt sem eflir fjölskylduna í þessu landi er geysilega mikils virði og mjög mikil nauðsyn núna þegar allt er á hverfanda hveli í tilveru okkar.
Um kennsluafslátt vegna aldurs vildi ég það sagt hafa að það er fagnaðarefni að kennsluafsláttur miðast nú við að hafa unnið 10 ár en ekki 20 ár eins og áður. Þetta kemur ýmsum konum mjög til góða vegna þess að margar hverjar hafa verið inni á heimilum sínum
og koma seint aftur út í kennslu eftir að hafa komið upp barnahóp. Það eru einkum þær sem gætu notið góðs af þessu og auðvitað ýmsir karlmenn líka sem skipta um störf, en ekki síst eru það konur sem hafa verið inni á heimilunum og koma aftur til kennslustarfa og ná alls ekki þessum 20 ára kennslutíma þegar þær eru 55 ára. Það er því mjög ánægjulegt fyrir okkur konur að sjá þetta réttlætismál.
Um fjölgun kennslustunda vildi ég það sagt hafa að mér finnst 25 stundir á viku alls ekki nægja. Ef við ætlum að koma á viðveru í skólum sjö stundir á dag í fimm daga, þá eru það nú 35 stundir svo að 25 stundir eru tæpast nóg. Þegar í efri bekki er komið finnst mér að börn ættu að hafa a.m.k. möguleika á átta tíma viðveru. Þá mundi það þýða 40 stunda viðverutíma í skólunum.
Einu vandræðamáli stöndum við kennarar frammi fyrir og það eru námsgagnamálin. Svo illa hefur verið búið að Námsgagnastofnun ríkisins að hún hefur ekki verið í stakk búin til þess að veita þau kennslugögn sem þörf er á. Hún hefur hvorki getað keypt kennslugögn né framleitt sjálf eins og þörf er á. Ef framfylgja á lögum um það að skyldunámsbörn fái ókeypis námsbækur, þá verður Námsgagnastofnunin að fá rýmri fjárhag og betri starfsaðstöðu, bæði fé til þess að framleiða meira sjálf og fé til þess að kaupa frá öðrum aðilum sem framleitt hafa góð og gild námsgögn til þess síðan að úthluta til skólanna.
Um nemendafjölda í bekk er það að segja að það að fækka nemendum úr 30 í 22 í yngstu bekkjunum er svona rétt á mörkunum að duga. Í litlu bekkjunum þar sem krakkar eru þannig sinnaðir að þeir þurfa helst að sitja í fanginu á kennaranum ef vel á að vera, þá er það ansi breiður faðmur og víður sem þarf til þess að taka 22 í fangið. Ég hefði því gjarnan viljað sjá heldur færri nemendur bæði í yngri bekkjunum og svo líka í 4. -- 10. bekk. Því að 28 nemenda bekkur er afskaplega stór og ég mundi hafa viljað að sú tala færi ofan í 24. Það hefði verið þægilegt. Þá hefði kennarinn getað betur sinnt þeirri skyldu að veita nemendunum þá mannlegu umönnun sem nemendur þurfa svo mjög á að halda.
Ég er sammála síðasta ræðumanni um að það var mjög undarleg ákvörðun sem tekin var þegar 4. bekkur gagnfræðaskólanna var lagður niður. Það var alveg hreint eins og þeir sem sömdu grunnskólalögin þá og framhaldsskólalögin héldu að það væri hægt að strika út nám heils árgangs og í staðinn kom náttúrlega fljótlega núllárgangur af því að í ljós kom að það var
auðvitað ekki hægt að strika kennslu þessa árgangs út. Úr varð dálítið klúður sem enn er ekki séð fyrir endann á. Vildi ég álíta það að 10. bekkur og jafnvel 11. bekkur gæti verið skynsamleg leið í grunnskólanum.
Sérkennsla er nefnd hér og rætt um að mörkuð sé ákveðnari stefna um sérkennsluaðstoð í heimaskóla. Sérkennsluaðstoð hefur verið allt of lítil hingað til í skólanum. Hún hefur verið skorin niður núna allra síðustu árin. Það er til stórra vandræða ef ekki vansa að þetta skuli hafa skeð á sama tíma og fleiri og fleiri börn þurfa á sérkennslu að halda. Fleiri og fleiri börn komast í gegnum skólana án þess jafnvel að læra að lesa og þá hefur þessi aðstoð verið skorin niður. Því er það athugunarefni fyrir hæstv. menntmrh. að bæta þar um mjög.
Það mætti taka hvern einasta lið í þessu frv. og ræða um hann, en ég ætla ekki að gera það að sinni. Vonandi verður þetta rætt af einhverju viti í menntmn. en nú lifir afskaplega stuttur tími eftir af þingi og verður vafalaust erfitt að koma því við. Þó vildi ég gjarnan að við gerðum þessu máli eins góð skil og mögulegt er því að þetta mál varðar, eins og ég sagði áðan, hvert einasta mannsbarn á Íslandi undir 13 ára aldri og alla þjóðina um langa framtíð.