Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Það hafa verið nokkrar umræður bæði í þingsölum og hliðarherbergjum vegna þessa máls og að gefnu tilefni tel ég nauðsynlegt að láta það koma fram að mér finnst mjög mikilvægt að það frv. sem hér er til umfjöllunar verði afgreitt. Það má ekki skilja mín orð eða tillögur á þann veg að ég sé að leggja stein í götu þessa frv. sem hér er til umfjöllunar og ég vildi láta það koma hér fram til þess að forðast misskilning að ég tel mikilvægt að þetta frv. verði afgreitt.