Fjárfesting erlendra aðila í atvinnurekstri
Miðvikudaginn 13. mars 1991


     Friðrik Sophusson :
    Virðulegi forseti. Ég hef lýst því hér í umræðunni að nánast sé óframkvæmanlegt að framfylgja þeirri gagnkvæmnisreglu sem stendur í lok greinarinnar. Þrátt fyrir það hef ég ákveðið að bera ekki fram brtt. Ég tel að síðar þurfi að endurskoða þetta ákvæði, en vegna þess að málið er í sjálfu sér jákvætt, þá segi ég já.