Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
Herra forseti. Á þskj. 852 liggur fyrir álit meiri hl. fjh.- og viðskn. um frv. til laga um breytingu á lagaákvæðum er varða fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri. Þetta frv. er fylgifrv. við frv. um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri sem er 320. mál þingsins og það var rætt samhliða því í nefndinni.
Um umsagnir sem nefndinni bárust í málinu vísast til nefndarálits um 320. mál.
Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frv. verði samþykkt. Einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. er fram kunna að koma.
Undir þetta rita Guðmundur G. Þórarinsson, Ragnar Arnalds, Jón Sæmundur Sigurjónsson og Páll Pétursson.